Page 2 of 2

Re: Hvernig sjónauka?

Posted: 06 Mar 2013 12:47
by karlguðna
ok það meikar sens. svo maður noti ástkæra og ylhýra) :?

Re: Hvernig sjónauka?

Posted: 06 Mar 2013 14:41
by Sveinbjörn V
Eitt sem hefur ekki komið fram hér sem mér finnst skipta máli, það er að það sé parallax stilling á sjónaukanum. Einhverjir af ódýru sjónaukunum eru ekki með þessa "fjarlægðar stillingu" .
Á einn 3-12x56 sem er ónothæfur yfir 100m vegna þessa galla og kannski líka vegna þess að hann heitir nikko stirling :)

Re: Hvernig sjónauka?

Posted: 06 Mar 2013 15:17
by E.Har
""#### Það breytir svo sem engu.....það eina sem 30mm túba hefur fram yfir 25.4mm túbu er meiri stillingar upp/niður og hægri/vinstri ! Þ.e. þú getur fært krossinn meira........ það breytir hins vegar engu varðandi birtumagn eða slíkt sem sagt alveg jafn bjartir. #####"""



Birta sjónauka fer fyrst og fremst eftir safnglerinu, það er ystu linsu. Ásamt gæðum glerja. :P
Allir sjónaukar eru með svipaða öftustu linsu þar sem augasteinnin er takmarkandi.

Það sem græðist við breyðari túbu er meira fild of viuv, það er breiðara sjónsvið. 8-)
Annað sem græðist er minkun á tunnel vition, það er að segja færð minna á tilfinningu að þú sért að horfa í gegnum rör. Einhverjir segja skerpa líka, en held að glerin ráði þar langmestu.

S&B er t.d farnir að framleiða enn breiðari túnur, 35 mm :twisted:
USA farið meira og meira út í 30 mm.

Ef þú átt 2,54 tommu þá er ekki ástæða til að skipta en ef þú ert að leita að nýjum þá myndi ég mæla með 30 mm tubu.

E.Har

Re: Hvernig sjónauka?

Posted: 06 Mar 2013 17:03
by ísmaðurinn
sömuleiðis færðu vortex með 35mm túpu, Razor HD er með 35 mm túpu hjá þeim og hefur verið þannig frá byrjun!!

Re: Hvernig sjónauka?

Posted: 06 Mar 2013 17:08
by Gísli Snæ
Vortex Razor undir 100 þúsund :)

Re: Hvernig sjónauka?

Posted: 06 Mar 2013 19:17
by ísmaðurinn
haha nei vara bara að benda á annann með 35mm túpu virkaði hjá E.HAR eins og S&B væru einu að framleiða með 35mm túpu :-)

Re: Hvernig sjónauka?

Posted: 06 Mar 2013 22:15
by skúliskytta
Takk kærlega fyrir þetta, sérstaklega hjá þér Einar, fróðlegt, þarf að fara aðeins Meira í búðirnar hér heima og horfa í gegn, og sjá hvað mér líst á, er fullkomnlega sammála um að maður eigi að kaupa gott og vandað gler, eina bara sem ég er að hugsa, að ég hef allavega ekki verið að nota riffilinn minn nógu mikið hingað til, kanski af hluta til vegna þess að mér finnst glerið ekki nógu gott á honum.
Takk fyrir aðstoðina og lærdóminn, en samt svo mörg merki til að maður fær valkvíða, en þarf að Skoða betur.

Takk, kv. Adolf

Re: Hvernig sjónauka?

Posted: 07 Mar 2013 00:07
by Sveinn
Gott mál, mundu bara að það eru til margar gæðalínur í hverju merki, Leupold er ekki það sama og Leupold. Held að margir lágpríssjónaukar hér heima séu að matcha einhverjum gæðamerkjum í lággæðalínu, t.d. held ég að Weaver 40/44 sé betra en Leupold VX-1 svo dæmi sé tekið. Þú sérð þetta strax ef þú mætir í rökkri í búðir og kíkír í gegnum sjónauka út í myrkrið, erfitt núna þegar er bjart til ca 7 á kvöldin.

Dæmi:
Vortex: Crossfire (verst), Diamondback, Viper, Viper PST,Razor (verðbil frá 100 USD til 2000 USD)
Leupold: VX-1 (verst), VX-2, VX-3 og svo eru fleiri línur. VX-3 eru mjög góð kaup í USA.
Nikon: ProStaff (verst), Buckmaster, Monarch, Monarch 5 o.fl.
Weaver er líka með margar línur,
og svona mætti lengi telja.

Re: Hvernig sjónauka?

Posted: 07 Mar 2013 09:41
by E.Har
Og til að gera þetta enn flóknara :-)

Þá keypti t.d Leopuld Redfield.
Betri línur Redfild eru sömusjónaukar og medium Leopould bara ódyrari :-)

Þetta var auðveldara fyrir 10 árum þegar 3-4 Þýsk merki báru af.
Núna er þetta eins og með Cannon og Zeiss, toððlinsa frá cannon digar.

I-phone er gerður í kína! En samt var t.d á markaði fyrir mörgum árum Jagermeister sjónauki smíðaður í Bern! Við nánari skoðun kom í ljós að verksmiðja með nafninu Bern var í Kóreu :-)
Hélt alveg á 22- eða hornet :-)

Ég er búin að fara nokkra hringi :-)