Page 2 of 4
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 02 Oct 2013 15:52
by E.Har
Persónulega finnst mér að menn oft vera með rangar kúlur fyrir tvist riflana sinna.
100 gr í 243 er þungt og gerir sjaldan lítil göt.
125 -110 gr í 308 og jafnvel sumum 6,5 er of létt þar sem tvistið hentar illa.
Færð flatari feril en nákvæmnin gefur eftir.
Ef menn vilja flatskjótandi riffla sem ég er svo sem fylgjandi, þá er hentugra að vera með hlaup með hæfilegu tvisti.
Ég skil alveg bæði sjónamiðin. Auðvelt að eiga við mismunandi færi með flatar skjótandi riffli.
Hraðinn drepur,
Auðvelt fyrir góða skyttu að reikna dropp eftir fjarlægðarmælingu og erviðara að reikna vindrek en dropp. Þung kúla drepur vel og rifnar síður.
Niðurstaðan er samt sú að flet hreindyr eru skotin á undir 200 m. Ef menn er með rifflana sína ca 5-7 yfir á 100 þá geta þeir skotið hugsunarlaust út yfir 200m. Geri t.d ekki mikin mun á 6,5-55 og 308 með sömu kúlu. Og mikið af 6,5 eru með tvisti hugsuðu fyrir þungar langar Elg kúlur, sem bara enda út um allt blað með 100 g kúlum
Persónulega vil ég kúlurnar mínar á 3400 fetum algjört lágmark.
En það er bara ég. End vil ég geta skotið 100-200 metrum eftir að allt klikkar

En þetta dugar allt ef menn bara hitta

Re: Til veiðimeistara !
Posted: 02 Oct 2013 15:59
by Stebbi Sniper
Reyndar sýnist mér að ef þú ert með hann 4 cm yfir á 100 þá er hann í núlli c.a á 225 metrum og 12 cm undir á 300... Þetta er allt innan skekkju marka hjá þér!
Taflan verður samt ekki rétt fyrir riffilinn hjá þér nema þú hraðamælir hann.
Þarna liggur samt hudurinn grafin hvað samanburðinn við .308 varðar!!! Því hann var settur í 0 á 100 metrum.
Ég er hættur.... lofa!!!
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 02 Oct 2013 16:51
by johann
Nú spyr sá sem ekki veit, eru dýrin virkilega almennt að drepast svona illa með .243? Væri t.d. 95gr BT á 3100 fps of lítið á kú?
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 02 Oct 2013 16:52
by Veiðimeistarinn
Mín hleðsla er hraðamæld 3500 fet pr. sek. með HvolsvallarSkyttuhraðamælinum meira að segja

Stefán þú þarft nú ekkert að lofa því að hætta, þetta eru hin fróðlegustu og skemmtilegustu skoðanaskipti og ekkert við þessa umræðu að athuga
P.S.
Mikið af dýrum sem skotið er með 243 er skotið með 70 gr. Ballistic tip, svo 95 gr. ættu alveg að duga.
Minni á eins og ég hef oft sagt áður að áður en ég varð leiðsögumaður með hreindýraveiðum, skaut ég öll min hreindýr með 222 Rem. og 40-52 gr. kúlum og þau voru öll jafn steindauð og dýrin sm skotin hafa verið hjá mér með 375 H&H og 300 gr. kúlum.
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 02 Oct 2013 17:54
by Jenni Jóns
Já það er alveg rétt sem þú segir Siggi cal 308 er gríðarlega

vanmetin sem veiðiriffill á hreindýri með léttari kúlunum, mér sýnist munurinn á falli á þeim kúlum og upphafshraða sem við erum að gefa upp vera 2,5 cm á 200 metrum og 8,3 cm á 300 metrum eftir það fer verulega að halla undan fæti hjá 308. og er munurinn kominn fast að 20 cm á 400 metra færi.

Re: Til veiðimeistara !
Posted: 07 Oct 2013 22:27
by Veiðimeistarinn
Set þetta hérna inn til gamans til að lengja lif þessarar umræðu sem var bæði skemmtileg og fróðleg.
http://www.youtube.com/watch?feature=pl ... lQZ4txTXW8
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 08 Oct 2013 09:27
by Stebbi Sniper
Sæll Siggi
Ég og frúin skutum sitthvort hreindýrið í bógin með 130 grs VLD Hunting. Annað var á 130 metrum og hitt á 270 metrum. Það er skemmst frá því að segja að í báðum tilfellum hlupu dýrin svona 50 - 70 metra áður en þau duttu niður steindauð.
Það voru frekar litlar kjötskemmdir, en mér fannst samt útgatið vera mjög lítið og ég er helst á því að þessi kúla sé ekki að opnast mikið þegar skotið er á hreindýr. Slapp reyndar við bein í öðru tilfellinu en klippti í sundur rifbein á leiðinni inn í hinu og það skipti engu máli upp á útgatið.
Hafa einhverjir verið að nota þessar kúlur hjá þér og hvernig hafa þær komið út?
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 08 Oct 2013 10:14
by Gisminn
Ég get bara sagt þér Stefán að ég prófaði 140gr VLD Match hunter í 6,5x55 svaka nákvæm en þegar ég fór að nota hana á gæs þá kárnaði gamanið. Í 100% tilfella voru 9 flugu þær upp sá 3 af þeim detta fljótlega en svo var ég heppin með 4 því hún hafði dottið í vatn tæpum 500 metrum frá og gat sent hundin eftir þeim en þær voru allar óskemdar.Restina fann ég aldrei og fór að googla og kanna og komst að því að þessi kúla þarf tælega 5 tommu mótstöðu til að oppna sig alveg.
Ég nota hana bara í dag til að skrokkskjóta sel og er hún mjög góð í því.
Bara varð að koma þessu á framfæri. En ef ég færi á skotmótið refur þá myndi ég líklega nota hana þar sem pappadýriin eru þegar dauð

Re: Til veiðimeistara !
Posted: 12 Nov 2013 18:43
by Veiðimeistarinn
Ég uppfærði og leiðrétti töfluna um kaliberin milli ára, sem er ofarlega á síðu 1 í þessum þræði

Re: Til veiðimeistara !
Posted: 08 Dec 2013 01:25
by Hailtaxi
Hver var með 7x64 og hvers lags vopn var það? Ekki algengt kaliber hérna á klakanum.
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 23 Sep 2014 09:40
by Veiðimeistarinn
Kalíber......2009.......2010......2011......2012......2013......2014
243..............21.........13........12........14..........10...........7
6,5x55.........14.........19........11........12...........11..........12
6,5-284.........4............9..........5..........4...........7.........11
6,5x57..........0............0..........0..........0..........0...........1
6,5x65...........0...........1..........3..........1...........1..........1
270...............4............4..........8..........7..........6..........6
7-284.............0............0..........0..........0.........1..........0
7 mm Rem...4............4...........2..........3............5..........0
308.............12............9.........13.........6...........5..........1
3006.............4............2...........0.........2...........1.........1
300 Win........3............3...........0.........3............0.........1
300 WSM.....1............2...........0..........1.............0.........0
270 WSM.....0............0............0.........1.............0.........0
2506.............4.............1...........1.........2..........5.........2
7x57.............5.............0...........0.........0..........0.........0
7x64.............1.............0...........0.........0..........0.........0
7x65.............1.............0...........0.........0..........0.........0
300 H&H.....1.............0..........0..........0.............1.........1
300 Wetherby Mag........0.........0...........0............0.........1
375 H&H.....0.............0...........0.........0.............2........0
338 Blazer....0.............0..........1..........0............0........0
.........alls......79..........67........56........56..........55......45
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 23 Sep 2014 09:43
by Veiðimeistarinn
Hérna setti ég inn árlega þróun calibera hjá mönnum sem veiddu með mér á þessu veiðitímabili.
Það eru áhugaverðar breytingar!
7x64 er ef ég man rétt þá nýlegur Mauser 03 eigandi Ásgeir Guðmundsson
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 23 Sep 2014 10:34
by TotiOla
Vona að þér sé sama Sigurður. Ég skellti þessu í "Code" og setti upp í vinsældarröð 2014 til gamans.
Code: Select all
Kalíber 2009 2010 2011 2012 2013 2014
6,5x55 14 19 11 12 11 12
6,5-284 4 9 5 4 7 11
243 21 13 12 14 10 7
270 4 4 8 7 6 6
2506 4 1 1 2 5 2
6,5x57 0 0 0 0 0 1
6,5x65 0 1 3 1 1 1
308 12 9 13 6 5 1
3006 4 2 0 2 1 1
300 Win 3 3 0 3 0 1
300 H&H 1 0 0 0 1 1
7 mm Rem 4 4 2 3 5 0
7-284 0 0 0 0 1 0
300 WSM 1 2 0 1 0 0
270 WSM 0 0 0 1 0 0
7x57 5 0 0 0 0 0
7x64 1 0 0 0 0 0
7x65 1 0 0 0 0 0
375 H&H 0 0 0 0 2 0
338 Blazer 0 0 1 0 0 0
Alls 79 67 56 56 55 45
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 23 Sep 2014 12:28
by Veiðimeistarinn
Flottur Þórarinn.
Takk fyrir þetta!
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 23 Sep 2014 12:51
by Gisminn
Sé eina áhugaverða þróun hjá þér og hún er sú að þú ert að verða búinn að útrýma 308 í veiðimönnunum þínum

Re: Til veiðimeistara !
Posted: 23 Sep 2014 19:06
by Morri
Það þorir varla nokkur maður að biðja Sigga um að leiðsegja sér, ætli viðkomandi að nota .308 til veiðanna.
Aðeins kallar eins og Andrés Ívarsson sem hafa bein í það!
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 23 Sep 2014 19:35
by gylfisig
Ég á eftir að fara með Sigga. Búinn að lofa sjálfum mér því, að fara með 308 win. Ég á jú tvo (:
Kúlan verður ekki léttari en 165 grs. Helst þyngri (:
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 24 Sep 2014 11:58
by Veiðimeistarinn
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 24 Sep 2014 15:33
by Morri
Haha, ja þessi er goð. .308 getur það sem eigandinn getur og kann, eins og önnur cal.
Re: Til veiðimeistara !
Posted: 24 Sep 2014 16:03
by Veiðimeistarinn