Page 2 of 2

Re: Hvaða caliber mynduð þið velja af þessum?

Posted: 31 May 2012 07:26
by gkristjansson
Eins og er þá er ég með þessa riffla í skápnum:

Steyr Mannlicher 300 wm
Sauer 6,5 x 68
Sauer 375 H&H

Ég hef tekið hreindýr með bæði 6,5x68 og 300wm og báðir hafa verið mjög góðir. Í dag myndi ég taka 300wm riffillinn bara vegna þess að ég er með sjónauka á honum sem hefur meiri stækkun (3-12 * 56 á móti 1.5-6 * 42) ef ég hefði sambærilegan kíki á 6,5x68 þá myndi ég taka hann með frekar.

Ef ég væri hinsvegar að tala um krjónhjartar veiðina hér erlendis væri 300wm hins vegar valið burtséð frá kíkinum.....