Page 2 of 2
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 28 Jan 2014 13:11
by Sveinn
Ekkert mál að fá skot í flestum skotveiðibúðum eða láta Hlað hlaða fyrir sig, kúluúrvalið er ekki alveg eins mikið og í 30 cal og 6.5 mm en feikinóg fyrir alla hluti. Dugir á allt hér heima. Hér er linkur á dóm um Marlin X7:
http://www.longrangehunting.com/article ... view-1.php
og hér almennt um 25-06:
http://www.chuckhawks.com/why_25-06.htm
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 28 Jan 2014 13:38
by Jón R
já mér lýst bara fjandi vel á þennan grip
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 28 Jan 2014 13:57
by Jón R
Spurning um hvaða gler ætti að fara á þetta?
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 28 Jan 2014 16:30
by ísmaðurinn
Sæll mundi skoða Vortex gler kostar ekki mikið en frábærar græjur einnig er Sightron flottur hef horft í gegnum þessar teg og finnst þeir mjög svipaðir ...
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 28 Jan 2014 16:46
by Jón R
Jæja lét verða af því fór og keypti mér Marlin XL7 25-06 Hawke sjónaukafestingar og hawke Endurance 2,5-10*56 er spenntur verður gaman að púsla þessu saman og skjóta hann til

Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 28 Jan 2014 17:20
by Veiðimeistarinn
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 28 Jan 2014 20:01
by Jón R
Þakka þér fyrir það þá er bara næsta mál að skjóta hann inn á blað

Ætlaði setja mynd með en hun er of stór getiði græjað það
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 29 Jan 2014 00:03
by Sveinn
Glæsilegt, svona á gera þetta, láta vaða

Hér a.m.k. mynd af innvolsinu, Pro-Fire stillanlegur gikkur (svipaður og AccuTrigger Savage), stillanlegur niður í 2,5 pund, pillar beddun, flútaður bolti o.fl. sem er venjulega tengt við dýrari verkfæri. Auðvitað er allt gert til að ná niður verðinu t.d. er innbyggt magasín (ekki laust) sem menn ættu að geta vanist.

- marlin x7 2.jpg (15.13 KiB) Viewed 3315 times
Myndi ekki bíða lengi eftir að setja hann í Boyds límtréskefti

og láta bedda hann.
http://www.boydsgunstocks.com/product.h ... 7&cat=1223
Ef þú ert ekki vanur að setja kíki á þá ætti fagmaður að gera það og létta um leið gikkinn ef þarf.
Þrífa svo milli skota í fyrstu tilkeyrslu og fylgjast vel með hita á hlaupi.
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 29 Jan 2014 07:39
by Jón R
með hverju á ég að þrífa hann ? Þarf ég að þrífa hann sérstaklega áur en ég læt fyrsta skotið fara í gegn?
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 29 Jan 2014 09:18
by Sveinn
Ráðlegg þér að fara í verslunina sem seldi þér riffilinn, fá ráð, hreinsivörur og -búnað til að þrífa. Þeir geta sagt þér hvort eigi að þrífa fyrir fyrsta skot, fer eftir hvað hefur verið sprautað inn í hlaupið frá verksmiðju til að verja það við geymslu.
Almenna reglan (t.d. frá Krieger hlaupaframleiðandanum) við tilkeyrslu (barrel-break-in) er að þrífa eftir hvert skot við fyrstu 5 skotin, síðan á 3-5 skota fresti í nokkur skipti og síðan 15-25 skota fresti. En það eru til ótal sérviskur í þessu, fer eftir hvern þú spyrð. Nota heila grafítstöng og bore-guide. Lélegar stangir og enginn bore-guide hefur stytt líftíma margra hlaupa og er verra en engin þrif.
http://www.kriegerbarrels.com/Break_In_ ... wp2558.htm
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 29 Jan 2014 10:48
by Gisminn
Ég er alveg sammála síðasta ræðumanni með þaetta allt hefði ekki getað orðað það betur.
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 29 Jan 2014 14:51
by konnari
Hún ætlar að vera býsna lífseig sú míta að ekki séu til kúlur í 25 cal. Var staddur í hlað í morgun og taldi í fljótu bragði 12 gerðir ! Í Ellingsen taldi ég um 10 gerðir þannig að bara í þessum tveimur búðum eru til yfir 20 gerðir af kúlum í 25 cal. sem ætti að duga fyrir vel flestar skyttur

Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 03 Feb 2014 21:07
by Jón R
Jæja þá er það næsta skref í þessu sem var það að ég ætlaði að fara panta skepti frá boyds en lenti í vandræðum með það hafa einhverjir hér pantað skepti þaðan?
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 03 Feb 2014 22:54
by Sveinn
Pantaði skefti frá þeim fyrir rúmri viku á 22lr og það er komið til landsins, er í tollmeðferð. Þeir senda ekki út fyrir USA ef skefti kostar yfir 100 USD hjá þeim (fyrir utan frakt). Flest límtrésskefti á ameríska riffla eru undir 100 USD hjá þeim. Hnotan (walnut) er dýrari.
Hvernig er hann að grúppa?
Re: Fyrsti stóri riffillinn.
Posted: 04 Feb 2014 00:27
by Jón R
Já þetta var einhver klaufi í mér pantaði skepti og samkvæmt tollur.is þá verður það á 25500 heim komið