Page 2 of 2

Re: Hraðfleygar sexkommafimmur

Posted: 30 Nov 2013 19:47
by gylfisig
VV manualinn segir að 140 grs Accubond nái mestum hraða í 260 Rem með N 560 . Hraði upp á 2700 ft.
139 grs scenar nær mestum hraða úr 6,5-284 með N-560 .Hraði 3015 ft.
Mesti hraði sem gefinn er upp í 6,5 x 55 er 2887 ft. með N- 560.
Tekið úr VV 2012

Reyndar held ég að flestir... amk margir séu hættir að nota 500 línuna frá VV.
Ég hætti því snarlega, þegar ég sá aukna sótmyndun í hlaupum hjá mér, sem hafði áhrif á nákvæmni.
Mér er minnistætt þegar við gerðum hraðamælingarnar á þessum kaliberum, hvað kom heim og saman, mældur hraði, á 260 Rem miðað við VV. og niðurstöður úr QL .
Liklega er ég vaxinn upp úr þessari fíkn í að ná sem mestum hraða á kúlu. Nákvæmnin er málið.
SAmt er það þannig, að sum kaliber eru nákvæmust, hlaðin heitt. Önnur eru það ekki.
Svo einfalt er það nú :D

Re: Hraðfleygar sexkommafimmur

Posted: 30 Nov 2013 21:08
by Gísli Snæ
Flottur þráður.

Ein spurning til ykkar fyrst við erum að tala um 6.5ur. Er að hlaða í 260 Rem. Hef mest verið að nota Lapua Scenar 139 gr. Þær hafa ekki verið til undanfarið og því fór ég að prufa 140 gr. A-Max.

Er kominn í 42,5 gr af N-160 og það er að koma ágætlega út. Ætla að hlaða aðeins heitar næst þegar ég kem í land.

Er einhver með hleðslu sem hefur verið að virka með þessari kúlu og púðri í 260 Rem?

Re: Hraðfleygar sexkommafimmur

Posted: 01 Dec 2013 15:11
by konnari
Gylfi ! Þú verður að athuga það að 260 rem með 140 gr. kúlunni í VV bókinni er að ná 2700 fetum með bara 18 tommu hlaupi !! Þannig að ná yfir 2800 með 24 tommu hlaupi er eins og ég sagði leikur einn og ég hef þegar hraðamælt :mrgreen:

Þessi hraði sem gefinn er upp fyrir 260 rem i VV bókinni gefur ekki góða mynd af hraðanum sem það kaliber getur náð því þeir notast við svo stutt hlaup eða bara 18,75".