Re: Nýr veiðitími á hreindýr!
Posted: 19 Dec 2013 11:03
Félagi Sindri, þó þitt nef nái ekki lengra en þetta, nær það samt nógu langt til að þetta sem þú segir er allt gott og gilt, ég hefði ekki getað orðað það betur
Það er svo sem ekkert sem mælir á mót því að skjóta kýr fram yfir 20. sept. nema það sem Sindri segir, þessi sífelldi órói í hjörðinni.
Þessi hætta á að villast á litlum törfum og beljum er fyrir hendi allt veiðitímabilið og breytist ekki þó komið sé fram yfir miðjan sept. og hornin orðin hvít.
Ég hef líka velt þessu fyrir mér með hlutfallið milli tarfa og kúa í veiðikvótanum og hef þá skoðun að það mætti að skaðlausu auka hlut tarfanna í þessari veiði.
Sveinbjörn minn, þú ert nú frekar gáfuleg pappaskytta verð ég að segja, miðað við margt annað sem ég hef séð á ónefndum spjallborðum hér á alheimsnetinu
Mér finnst ekkert að því að veiða kýr fram á vetur, ef menn nenna því eins og þú segir Sveinbjörn og ég held að reynslan af haustinu sé bara góð svo ég sé ekkert því til fyrirstöðu að þetta verði reynt áfram.
Sveinbjörn, mæl þú manna heilastur færa veiði á trófítörfum aftur á fengitímann og fyrst eftir hann.
Hins vegar er of seint að færa hann aftur í desember vegna þess að þá eru stæstu tararnir farnir að fella hornin og ekki svo eftirsótt trófi svona bandsköllóttir
Trófiveiðin erlendis til dæmis á rauðhirti í Pólandi fer öll fram á fengitímanum, vegna þess að þá er auðveldast að ná stærsu törfunum.
Ég hef gert tillögur um að gera þetta hér á landi en vægast sagt fengið dræmar undirtektir, eða kannski frekar algert skilningsleysi
E.S.
Þetta er skemmtilegur þráður, takk fyrir hann Einar, það er langt síðan ég hef haft tækifæri til að láta ljós mit skína svona skært