Page 2 of 2

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 20:37
by karlguðna
Kannast ekki við þessa lýsingu á lyklinum sem þú nefnir Steini ,, mínum fylgir túpulykill sem fer upp á þríhyrndan boltahaus ,,, en svo eru sexkantur á restina og ein "mínus" skrúfa sem heldur hvorum hryng á stól sem festist svo aftur á basan,,, ætlaði að setja inn mynd en er í einhverju brasi með það

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 20:48
by Aflabrestur
Sælir.
Kominn lausn á þessu til prufu, eitt svona á leiðinni af evilbay.
Image
2039 kall og málið dautt ef það er algjört drasl þá það.
Ég fór í herslumælir af ástæðu, er búinn að skemma fleiri en eitt sett af hringum og einn sjónauka :cry:
en það er að vísu ekki alveg að marka mig er járnsmiður í toghleraogjarðýtuviðgerðardeildinni :P
þannig að ég slít oftar en ekki allt undir 12mm 10.9 boltum þegar ég tilli að þessu helv.... :roll:
Ef þið viljið festa draslið varanlega þá er best að nota "slífalím" frá locktite eða bara superglue en dropi af treadlocker frá sama er fínn ef losa á aftur.
Ef hringir eru vandaðir og rétt hertir þá á ekki að þurfa eh. efnasull, er með 7 lbs. riffil með 18,5" hlaupi og 325 grn kúlur Leupold gler og Burris stálhringi og þetta haggast ekki. 30-06 Baikalinn hjá mér aftur á móti barði allt laust þar til ég límdi draslið í kaf og pinnaði hringina í lásinn, enda ekki vönduðr festing og sporið veigalítið.

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 20:56
by Aflabrestur
sælir.
Karl þú ert örugglega með Recknagel festingar Jói Vil var með þetta hér áður og þá væntanlega Ellingsen í dag, þetta á að vera gott dót. Bara að herða þetta hæfilega aftur.

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 20:58
by Gisminn
Karl ég átti við sexkant :-) og Vonandi er þatta bara nó handa þér Jón

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 21:27
by karlguðna
takk fyrir þetta ,, ætla að reyna að læra á þessi myndaminkun og senda inn mynd ,,, það væri gaman að vita hverslags festingar eru á tikku :P :oops:

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 21:44
by karlguðna
jæja þarna kom kvikindið :P segiði svo að maður sé ekki tölfugúrú :lol: :lol: :lol:
og hverslags festingar eru þetta kæru spekúlantar ??

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 22:14
by Gisminn
Held ég dragi til baka tikka basa en segðu mér nú eitt elsku kallinn minn eru basarnir alveg sléttir að neðan eða er stokkur sem gengur á milli pinnana á railinu ?
Ég kannast ekki við þessa útfærslu af bösum

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 22:30
by karlguðna
það gengur "stokkur" á milli pinna á reilinu ,,,en eitt fynnst þér skrítið ,, afhverju er ekki notast við raufina á lásnum í staðin fyrir þetta "REIL" sem ég hélt að héti basi

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 22:38
by Gisminn
Það er önnur spurning ég er ekki með neitt auka hvorki á Sako eða Tikkuni eins og þú sérð af myndini af Tikkuni þarna í sjónaukaprófununi og á þeim basa er pinni sem gengur ofan í sporið á rifflinum en það eru nú meiri tæknimenn í þessum fræðum en ég hér inni sem geta mögulega komið með snildar svörin
sérðu pinnan á þessum bösum þetta er sá sem fer ofan í sporið mitt
http://veidiflugan.is/is/vorur/flokkur/ ... la/2?rada=

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 22:45
by Aflabrestur
Sælir.
Steini of mikið er nóg ;)
Þið ættuð að finna eh. þessu líkt hér:
https://www.google.is/search?q=recknage ... 0QWFmoDwAg

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 22:47
by karlguðna
já þetta er mjög skrítin útfærsla ,,, ekki alveg sáttur :cry: en þarna er svipuð útfærsla

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 22:56
by Gisminn
Of mikið er nóg skrifrar minn kæri Jón :)
og ég svara bara þú meinar og þó 8-)

Re: Átakslykill/herslulykill (torque wrench)?

Posted: 05 Feb 2014 23:19
by karlguðna
Takk fyrir þetta Jón Aflabrestur,, Recknegel hlýtur þetta að vera ,,, virðist vera alvöru :?
kannski er nauðsinlegt hjá mér að hafa þetta reil því mér sýnist að annars yrði kíkirinn of lágr,, en er ekki viss, ætti kannski að kíkja til jóa og láta hann gera þetta betur ??
held ég verði að byðja Svein afsökunar á að leggja þráðin undir mig ,,, sorry,,, :oops: