Fékk mér líka tálgaðan spýtukubb frá Boyds. Pantaði hann 15. apríl og fékk hann í hendurnar 6. maí. Svo þarf bara rétt að pússa smá innanvert og Bob's your uncle!
Sælir félagar.
Þá er skeptið mitt búið að skila sér, tók um 3 vikur en ég hlakkaði bara til á meðan
Ég sé ekki annað en þetta sé góð smíði, gat sett járnið í spítuna án þess að tálga nokkuð, en verð víst aðeins að massa þetta því hlaupið liggur í, en fyrir innan við 25 kall komið heim þá er ég mjög ánægður....svo er bara að vinda sér í að fínpússa og olíbera
MBK
Gæi
Attachments
Kvörnin komin í nýju spýtuna
Gamla og nýja spítan
Í gömlu spítunni
Garðar Tryggvason Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
Sæll Garðar, það var eins hjá mér. Allt smellpassaði saman hjá mér vandræðalaust og hlaupið er alveg frífljótandi, eins og lofað var. Mitt kom fullklárað að utan og pússeríið að innan var bara til þess að fínvinna það, þess þurfti svo sem ekki en ég bara varð - þú skilur
Ég svo sem átti þess ekki kost að fá skepti sem passaði alveg fyrir þann contour sem er á hlaupinu á '48 módeli af Husqvarna, mil-step shape passaði best af því sem var í boði hjá honum Boyd, svo ég vissi að ég mundi þurfa að fiffa þetta til.
LOL ég hef fullan skilning á þessu hjá þér....ég bara varð aðeins að strjúka mínu með sandpappír að innan ...svona í leiðinni þar sem ég var að fínpússa að utan
En góð kaup, mundi hiklaust fá mér svona skepti aftur....eee já og á það örugglega eftir .
MBK
Gæi
Garðar Tryggvason Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
Nýkominn frá Ameríkunni og pantaði mér nokkra smáhluti á hótelið eins og torque wrench og flip-up lok.
Er að fá nýjan sjónauka svo ég ákvað að fara "all-in" í festingum. Fór reyndar kannski of mikið "all-in" því hringirnir eru mjög þungir, þarf að sjá til hvernig þetta verður þegar sjónaukinn er kominn á, enda mögulega á að selja þá og fá mér léttari.
+ stig fyrir þann sem getur sagt hvaða teg af pic raili og hringjum þetta er
Neibb,
Þetta munu vera rail frá Badger Ordnance og Max50 hringir frá Badger líka, keypti inlets með ef ég skyldi eignast tommu túbu scope í framtíðinni.
En þeir eru tommu breiðir og eru 430 grömm... :/
Flott mál endilega láttu vita þegar þú ert búinn að prófa ég er í vandræðum með mína hvað hún er fljót að skekkjast. Ég þarf að tara á 1-2 skota fresti
Last edited by Gisminn on 17 May 2014 11:36, edited 1 time in total.
Gisminn wrote:Flott mál endilega láttu vita þegar þú ert búinn að prófa ég er í vandræðum með mína hvað hún er fkjót að skekkjast. Ég þarf að tara á 1-2 skota fresti
Hvernig vog ertu með?
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Þessa http://www.ellingsen.is/verslun/vorur/f ... vara/77781
Og grínlaust ef ég hlæði 10 skot í röð án þess að tara þá gæti skekkjan auðveldlega verið 0,8 grain og alltaf uppávið svo fyrir mig sem dansa á línuni er þetta ekki gott en skálavogin sem ég auglýsi hér á vefnum benti mér í raun á skekkjuna þegar ég var að byrja að nota hana þá hlóð ég einmitt 10 skot og í ganni ákvað ég að bera þær saman og þegar skálavogin sýndi rétt fyrstu 2 skotin en fór svo að syna að púðurmagn færi hækkandi þá taraði ég vogina og vigtaði sýðasta skotið og skemst frá því að segja að upprunalega vigtunin var sögð 28.8gr en eftir törun var hún 29,5 grain en ef ég tara á 2 skota fresti þá er allt í góðu en bara pínu leiðinlegt.
Ætti maður að vera með skálavog til að tékka á þessum digital vogum til öryggis ? Ég endurstilli mína digital vog reglulega og mæli svo aftur hleðslu sem ég var búin að vikta til að sjá hvort hún sé að breyta sér. ??
Fékk mér þessa og er mjög ánægður http://hlad.is/index.php/netverslun/end ... 00-purvog/ eina skiptið sem ég tók eftir skekkju var þegar það var vont veður og konan var að opna útihurðina upp í vindinn og loftþrýstingur breittist mikið í húsinu ,, reyndar endurset ég alltaf vigtina í hvert skipti sem ég byrja að hlaða ..
Þessi Gempro 250 er einmitt þekkt fyrir að halda stillingunum sínum einstaklega vel og vera líka mjög nákvæm, Var prófuð með nokkrum öðrum og gaf dýru iðnaðarvogunum ekkert eftir þegar kom að skekkju. Þessvegna valdi ég hana en hef haft augastað á henni í nokkur ár. Ég skrifa svo nýjan þráð um reynsluna af henni þegar ég verð búin að nota hana
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Sælir.
Steini og Guðmundur, ég hef ekki getað séð annað en að þetta sé nákvæmlega sama voginn bara sitt hvor miðin áhenni, er með svona vog verslaða á e-bay ca 2008 með 3 lookinu hún hefur reynst mér ágætlega miðað við að hafa kostað innan 2000- kall á sínum tíma komin heim, búinn að hlaða nokkur þús. skot á henni síðan þá.
Það er 3 sem þessum græjum er ílla við og þarf að varast, það er loftþrýstingur, hitastig og undirlag.
Það er ekki gott að vera að hlaða með þessum græjum þar sem einhver umgangur er inn/út og hitastig hefur áhrif, í skúrnum hjá mér rokkar hitinn töluvert 12-4 til 20 gráður og hún er mun viðkvæmari eftir því sem kaldara er inni, og ef undirstaðann er ekki alveg stöðug þá fer allt í fokk strax! borðið hjá mér er boltað bæði í vegg og gólf og það þarf samt ekki að reyna að kúlusetja um leið og það er verið að vigta. Tók eftir því í morgun að vindur gæti haft áhrif það er töluvert hvasst hér og ég í timburhúsi og vigtin óvenju viðkvæm.
Ég geri þetta alltaf eins kveikji á græjunni bíð í ca 1 mín meðan hún hitnar tékka með lóðinu eða pönnuni og calibrera ef þarf, byrja að hlaða en legg alltaf tóma pönnuna á vigtina á milli skamta til að tékka hana af og fylgist með hvort eh. breitist.
Í guðsbænum ekki nota tvær vigtar eða fara að bera þær samann þá endar þetta þannig að þið teystið hvorugri á endanun, finnið hleðslu á ykkar vigt sem virkar, og haldið ykkur við hana.
Maggi bíð spenntur eftir hvernig þetta kemur út, langar í betri vigt en hef varla ráð á RCBS eða Hornady sem stendur.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson