Page 2 of 2

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Posted: 03 May 2012 10:33
by Veiðimeistarinn
Takk fyrir svörin, nú veit ég hvað 260 stendur fyrir, vissi það svosem áður 6,5-08 kveikti alveg á perunni.
Já ég er svakalega ánægður með þetta spjallborð, ég get alveg spurt svona aulaspurninga án þess að það sé snúið út úr fyrir mér og hraunað yfir mig.
Flottar myndir hjá þér Magnús, þær sýna vel muninn á þessum caliberum.
Gætir þú ekki tekið nýja mynd af þessum fjórum hylkjum saman sem eru á neðri myndnni og bætt 6,5x55 inn á myndina?
Þá væri samanburðurinn fullkominn!

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Posted: 03 May 2012 10:44
by Gísli Snæ
Bræður, frændur?

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Posted: 03 May 2012 10:47
by konnari
Systkinabörn !

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Posted: 03 May 2012 10:49
by Gísli Snæ
Ok. Kannast við kauða, keypti fyrsta riffilinn minn (sem ég hef m.a. notað í veiði hjá Veiðimeistaranum) uppi í Veiðilandi. Síðan eru hann og Finnbogi bróðir mjög góðir vinir

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Posted: 03 May 2012 12:24
by maggragg
Veiðimeistarinn wrote:Takk fyrir svörin, nú veit ég hvað 260 stendur fyrir, vissi það svosem áður 6,5-08 kveikti alveg á perunni.
Já ég er svakalega ánægður með þetta spjallborð, ég get alveg spurt svona aulaspurninga án þess að það sé snúið út úr fyrir mér og hraunað yfir mig.
Flottar myndir hjá þér Magnús, þær sýna vel muninn á þessum caliberum.
Gætir þú ekki tekið nýja mynd af þessum fjórum hylkjum saman sem eru á neðri myndnni og bætt 6,5x55 inn á myndina?
Þá væri samanburðurinn fullkominn!
Ég vísaði í þessar myndir af netinu þannig að ég get ekki bætt við nýju hylki en ég gleymdi að geta heimilda með því: http://www.6mmar.com/65_SuperLR.php

Set hér inn tvær myndir teknar af 6mmbr síðunni:

Image
Image

Og svo er hér pistill um samanburð á .260 Rem og 6.5x55 :)
http://bulletin.accurateshooter.com/201 ... artridges/

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Posted: 04 May 2012 09:34
by konnari
Gísli ! Það er mjög sniðugt og ódýrt að útbúa eitt svona hylki til að mæla COAL....svo klemmir þú aðeins hálsinn....setur kúluna í og lokar boltanum og mælir ! einfalt.... :D

Image

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Posted: 04 May 2012 10:10
by Gísli Snæ
Líst vel á þetta. Með hverju skerðu niður í hálsinn?

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Posted: 04 May 2012 10:35
by konnari
Bara með fínni járnsög !

Re: Hleðsla í Tikka Varmint í 260 Rem

Posted: 04 May 2012 11:00
by Veiðimeistarinn
Já þetta verð ég að prufa!