Page 2 of 4
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 12 Jun 2012 21:33
by skepnan
Jahérnahér

skotfélög að semja um skotfélög við skotfélög, hver var að tala um LÍÚ
Svo mikið grín, svo mikið gaman hahahahahaha-lalala (smá grínverji hérna hjá minns)
Kveðja Keli sem kann á skítakvíslar ef þarf að moka út

Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 12 Jun 2012 23:16
by Aflabrestur
Sælir.
Jááááááá nú skil ég þetta er allt eitt alsherjar samsæri ég er viss um að norðmenn koma að þessu líka prófið er jú sniðið eftir því norska og þar verður þú að vera í skotfélagi til að fá veiðileyfi

Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 13 Jun 2012 07:49
by Veiðimeistarinn
Nei, þetta er eitt allsherjar klúður, eins og annað sem kemur frá Umhverfisráðuneytinu og UST, þeir virðast ekki geta komið með neinar breytingar nema það sé ekkert á hreinu varðandi þessar breytingar, hafa lítið sem ekkert samráð við þá sem hafa vit á praktísku hlið málanna, athuga nær aldrei hvort sé lagaheimild fyrir breytingunum. Sé á annað borð lagaheimild, kemur strax upp spurningin um ,,löglegt en siðlaust".
Sporin hræða, dæmi af handahófi, veiðbann í Vatnajökulsþjóðgarði, námskeið hreindýraleiðsögumanna, skotprófið, málefni hreindýraveiða flutt úr heimabyggð og svo má lengi telja

Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 13 Jun 2012 16:20
by Spíri
Jæja piltar, nú hef ég þreytt þetta blessaða próf og er skemmst frá að segja að ég náði

En það kom mér verulega á óvart að menn eru að falla á þessu, og veit ég fyrir víst að það er töluvert fall á meðal þeirra sem hafa tekið prófið, en um 15% þeirra sem ætla að skjóta hreindýr hafa þreytt prófið. Þannig að til ykkar sem eruð á leið í próf, æfið ykkur og prufið að skjóta á skífuna áður en þið farið í prófið
hérna er tengill á skotskífuna:
http://www.ust.is/library/Skrar/Einstak ... fa2012.pdf
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 14 Jun 2012 22:40
by sindrisig
Já það er alltaf skemmtilegra að vera búinn að skjóta sig inn fyrir átökin. Hvort sem heldur þau eru á vafasömu skotprófi eða í raunveruleikanum.
Var að slást við verkfærið mitt og komst að lokum að því að vaktaskipti á slípimassanum í hlauphreinsunninni voru nauðsynleg til að ná honum á blaðið. Tala nú ekki um hinn áhættuþáttinn sem yfirþrýstingurinn er. Þetta er árangurinn, nb. átti eftir að stilla inn kíkinn sem nýlega var settur á. Hugmyndin er að sýna myndina, ef ég bara væri viss um að hún birtist.... Sem hún gerir ekki blessunin, hvernig laumar maður mynd hér inn ?
kv.
Sindri
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 16 Jun 2012 12:13
by Veiðimeistarinn
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 17 Jun 2012 09:46
by sindrisig
Auðvitað gat ekki verið flókið að setja inn mynd, þegar búið er að útskýra hvernig það er gert....
Skotprófið er ekkert leyndarmál, frá mínum bæjardyrum séð. Kemur á hlið en hvað um það.
Já og til þess að róa ykkur hin niður, 2 mínútur og 52 sekúndur. Með öðrum orðum þá er nægur tími, ég hlóð 1 skot í einu.
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 17 Jun 2012 15:26
by Bowtech
Flott, en hins vegar þá virðist það vera aðalástæðan að fólk er ekki að hitta. en það getur verið um fyrsta skot og eða síðasta skotið um að ræða. En þar sem þessi próf eru háð trúnaði að þá er spurning hvort það verði gefið upp hvað það er sem fólk er að falla á en maður skyldi halda að það væri æskilegt að opinbera niðurstöður sem fyrst til að gagnsæis sé gætt í þessu og að menn séu ekki með einhverjar getgátur og líka þannig að hægt sé að vinna upp úr þessum upplýsingum með áframhald.
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 17 Jun 2012 15:50
by sindrisig
Sælir.
Nei.
hittni í þessu vita sumir að betra er ósagt látið.
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 17 Jun 2012 16:25
by Bowtech
Það er kannski rétt hjá þér. En mér finnst samt spurning að velta þessu fyrir sér gagnvart heildarmynd..
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 18 Jun 2012 17:46
by TotiOla
Til lukku með þetta Sindri

Mig langar að forvitnast um það hjá þér hvort prófdómari hafi verið stífur á því að þú gengir með opinn riffil að skotmarkinu eins og kröfur prófsins virðast gera ráð fyrir? Ég lái þér það auðvitað ekki ef þú kýst að halda þessu fyrir þig. Bara forvitni af minni hálfu þar sem ég er á leiðinni í prófið.
Eins findist mér áhugavert ef UST gæfi út tölfræði um hver væri helsti fall-liður veiðimanna. Svo er aftur spurning hvort það yrði svo kannski bara notað gegn okkur veiðimönnum

Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 18 Jun 2012 19:52
by sindrisig
Jú það er þannig, tók lásinn úr og setti hólkinn á bakið. Þetta er í sjálfusér ekkert flókið og menn ættu nú ekki að hafa einhverjar áhyggjur af skotprófinu sem slíku. Það er rétt sem haldið er á lofti að framkvæmdarvaldið er ábyrgðalaust í þessu og þó að það sé ekki sagt opinberlega þá er hægt að taka þetta próf alveg þangað til farið er á veiðar. Enda get ég ekki annað séð en að það væru auðsóttar skaðabætur í gegnum dómstóla ef svo bæri undir. T.d. veiðimenn erlendis frá osfrv.
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 24 Jun 2012 23:24
by maggragg
Prófaði að taka þetta skotpróf og er bara mjög sáttur. Ég vildi auðvitað setja á mig meiri pressu þar sem ég er líka prófdómari og setti skífuna því á 200 metra og skaut svo 5 skotum undir mínútu og er bara nokkuð sáttur

Reyndar skotið af 6+ kg riffli með sjónauka í 32x stækkun en að öðru leyti á sama hátt og prófið.
Varð bara að monta mig

Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 25 Jun 2012 23:25
by cruser 90
sælir félagar er að vandræðast með þetta skotpróf og er alveg að guggna á þessu ég er með 30 06
næ ekki að setja nema 3- 4inn í hringin hitt 3-4 cm frá er að vísu með lítin kíkir 3-9x32 hvað er til ráða
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 25 Jun 2012 23:39
by Gisminn
Nú eru góð ráð dýr ég vill þér vel en ég hreinlega get í bestafalli stungið upp á nokkrum tillögum.
Ertu nokkuð óvanur að skjóta úr riffli en vanur að skjóta úr haglabyssu og ert þessvegna að kippa í gikkinn í stað þess að þrýsta?
Fáðu reynda skyttu til að taka 3-4 skot og heyra hvað hann segir.
Ef þú sérð tölurnar á skotskífuni í mestu stækkun er það nó og þú þarft ekki annan kíki nema vandamálið sé að kíkirinn haldi ekki núlli þá þarft þú nýjan kíki helst í gær.
Þekkir þú einhvern sem er með nákvæman riffil og er til í að lána þér hann á hreindýr og til æfinga ?
Prófaðu aðra kúlutegund eða aðra hleðslu en sú aðferð er að brenna inni því miður,
En vonandi gat þetta hjálpað pínulítið og gangi þér vel
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 26 Jun 2012 00:10
by TotiOla
Fljótlegast væri auðvitað, eins og Þorsteinn bendir á, að fá lánaðan riffil ef þú ert í aðstöðu til þess.
Annars myndi ég halda að næsta skref væri að bruna á næsta skotsvæði og fá vanann mann til þess að skjóta úr honum. Ef það gengur jafn illa þá er bara að breyta einum þætti í einu. Kíkir, festingar, kúla, hleðsla, etc.
Annars er ég viss um að vanari menn hér á spjallinu geta ráðlagt þér enn betur.
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 26 Jun 2012 00:14
by cruser 90
hér er skífan kanski er þetta bara klaufaskapur
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 26 Jun 2012 00:28
by cruser 90
heldur ekki núlli þú seigir nokkuð þegar ég fékk byssuna lánaða þá var hann lánt frá því að vera á núlli
ég þarf að skoða þetta en þetta er í fyrsta skiftið sem ég fer á hreindír hef aðalega verið að skjóta gæs og fleirra
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 26 Jun 2012 00:33
by TotiOla
Einhvertíman var mér kennt að riffill á núlli fyrir einn mann væri ekki endilega á núlli fyrir annan. Sérstaklega óvana menn.
Þ.e.a.s. menn rífa mismunandi í gikkinn og þ.a.l. verður ákoman mismunandi. Ég held að sért þú óvanur þá verður þú að stilla sjónaukann inn fyrir þinn skotstíl/ávana eða æfa þig þangað til skotstíllinn samræmist stillingunum (erfitt og tímafrekt).
Það er kannski lítill tími í það en þú hefur þó nokkra daga til þess að æfa þig ef þú kemst að hjá prófdómara á síðustu metrunum.
Ein spurning. Gat sá sem á riffilinn skotið þokkalega úr honum þegar hann lánaði þér hann?
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 26 Jun 2012 00:38
by Gisminn
Var vindrek frá vinstri til hægri ?
Ef ekki þá myndi ég skrúfa hæðarstillinguna niður um 6 klikk og hliðarstillingunguna 8 klikk en bara ef það var ekki hliðarvindur frá vinstri til hægri en ef það var hliðarvindur úr hinni áttinni þá skaltu hafa skífuna með þér á völlinn og fá góð ráð hjá góðri skyttu.