Þessi umræða er hálf skrítin... Ég myndi nú halda að 30-06 í þokkalegum riffli væri alltaf betra til veiða en Bogi og Ör, við allar aðstæður, þó er ég enginn sérstakur aðdáandi 30-06.
Það koma hvergi upp í huga mér aðstæður þar sem menn gætu hugsanlega verið betur settir með boga og ör. Það þjónar engum tilgangi að segja að einhverjir skussar hafi skotið undan hreindýrum lappirnar með ónýtum eða ónothæfum rifflum sem þeir nenntu ekki að æfa sig með áður en þeir fóru á veiðar.
Hvernig myndu slíkir veiðimenn standa sig með boga spyr ég.
Hins vegar er það önnur umræða að leyfa Boga til veiða. Það getur vel verið að það séu til veiðimenn / konur á Íslandi sem séu nógu þolinmóðir til þess að komast í 25 - 50 metra færi við hreindýr og þá nógu færir til þess að fella það með boga og ör.
Og það gerist alltaf öðru hverju að menn komast í svona færi.
Effective Range er samt alltaf miklu lengra á riffli en á boga.
Bogi og ör VS skot úr 30-06
- Stebbi Sniper
- Posts: 492
- Joined: 09 Jun 2012 00:58
- Location: Reykjavík
- Contact:
Re: Bogi og ör VS skot úr 30-06
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs