Page 2 of 2

Re: 130 HP Norma í 6.5x47

Posted: 26 Mar 2013 13:34
by TotiOla
Snilld. Takk fyrir þetta svar Magnús :D Þessi bók er greinilega eitthvað sem þarf að fara á næsta jólagjafalista ;) Er hægt að fá hana einhver staðar hérna heima eða þarf að panta hana að utan?

Varðandi BC stuðullinn, aftur, þá finnst mér samt alveg magnað að framleiðendur kúlunnar skuli láta einhvern "einyrkja" standa sér framar í raunmælingum á kúlunum sínum. Maður sér alveg fyrir sér að menn sem eru all-in í þessu myndu jafnvel færa sig (hætta að nota kúlur) frá framleiðendum sem væru ekki að gefa "réttar upplýsingar" (nothæfar/nákvæmar) frá sér. Heldur bara það sem liti best út á blaði eða eitthvað sem væri fengið út með ónákvæmum útreikningi.

En það er kannski lítill hluti af öllum riffileigendum sem fer svo djúpt í þetta sport að pæla í aukastöfum af BC-stuðli og þeir sem það gera hafa líklega flestir komist í tæri við Bryan Litz og hans niðustöður :)

Varðandi hvort þetta sé over-kill á 100-200m eins og Gylfi bendir kannski réttilega á, þá hef ég bara ekki ennþá rekist á (prófað) neina sem skýtur betur á 100m úr mínum 6.5x55 en þessa Lapua Scenar 139 gr. (sem er auðvitað ekki titluð veiðikúla), en ég á þó nóg eftir að prófa úr allri flórunni. T.d. Berger hunting kúlurnar. Annars var, eins og áður kom fram, 140 gr. Sierra GameKing að koma mjög vel út líka. Man þó ekki hvaða BC stuðul hún hefur.

Re: 130 HP Norma í 6.5x47

Posted: 26 Mar 2013 14:32
by maggragg
Það er allveg rétt sem Gylfi segir. Á 100-300 skiptir þetta ekki miklu máli. En þegar færin eru komin yfir 500 metra þá fara allir litlu hlutirnir að skipta máli. Þessar kúlur eru hannaðar fyrir long range og koma sterkar inn á löngum færum, litlu léttu kúlurnar virka betur á venjulegu veiðifærunum, bæði hraðari og flatari, þótt þær hafi lægri BC stuðul. Hinsvegar ef vindur er aðalmálið þá er vert að skoða BC stuðul því hann hefur meiri áhrif á vindrek en hraði eins og ég hef skrifað um áður. Ég myndi alltaf nota þessar löngu kúlur í markskotfimi á hvaða færum sem er nema kannski 100 metrum þar sem færið er þekkt og fallið því ekki vandamál og því aðal atriðið að minnka áhrif vinds en með veiði þá skaltu hlusta á reynsluboltana í veiðinni :)

Re: 130 HP Norma í 6.5x47

Posted: 26 Mar 2013 14:59
by TotiOla
Auðvitað. Það var alls ekki ætlun mín að gera lítið úr þessu með að BC stuðull hefði engin/lítil áhrif á 100m. Ég var einungis að benda á að þangað til ég finn léttari/ódýrari/hentugri kúlu sem skýtur betur á 100-200m en Scenar (fyrir markskotfimi) og GameKing fyrir veiði þá sé ég ekkert að því að nota þær þó þær séu kannski ætlaðar fyrir lengri færi :) Btw. ég þigg allar ábendingar með hentugri veiðikúlur á þessum styttri færum (þó það sé kannski ekki alveg eftir upphaflegu efni þráðarins - erum við ekki allir að læra hérna ;) ).

Re: 130 HP Norma í 6.5x47

Posted: 26 Mar 2013 15:05
by maggragg
Jú akkurat. Þetta gerir þetta einmit svo skemmtilegt. Það er hægt að pæla niður í minnstu smáatriði þótt það skiptir kannski ekki öllu máli þegar litið er á heildina þá er bara svo skemmtilegt að fínstilla allt :) Ég myndi varla nenna þessu ef það væri til ein ríkiskúla ;)