
Persónulega finnst mér Siggi ódýr en hann þarf að vísu ekki að sjá sér fyrir fæði og húsnæði fjarri heimahögum.
Held að við eigum að sleppa öllum þéttbýlis landsbygðar kritum það er nóg um þær á alþyngi.

Við eigum það allir sameiginlegt að vera útivistarmenn, náttúruunnendur en fyrst og fremst veiðimenn.

það er það sem sameinar okkur , ættum að sleppa öllu öðru röfli.

Þráðin setti ég saman vegna þess að einhverjir voru að böggast um að leiðsögn væri dýr.
Mín skoðun er að þegar verðið er komið niður í að nálgast hálfdrætting við iðnaðarmann þá sé þetta það ódýrt að það standi ekki undir sér fyrir mig sem einstakling. Ef aðrir geta gert þetta fyrir minna eða jafnvel gefa sýna vinnu þá er það bara fínt. Klagar ekkert upp á mig.
Hvað varðar að ég vilji veiða ódýrt þá er það rétt. Ég er soddan ræfill að ég hef ekki efni á að leigja akra fyrir hundruð þúsunda. Rjúppna lönd fyrir annað eins. Hef prófað það og síðan keppst við að veiða upp í kostnað. Þá hætti þetta bara að vera gaman.
Niðurstaðan er einföld. Veiði með lágmarkskostnaði og nýt hverrar mínútu, legg meira upp úr gleðinni og felagskapnum en magninu.



