Page 2 of 2
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 20 Nov 2012 22:57
by Gisminn
Ekki er gott að heyra ég sendi þér skilaboð
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 20 Nov 2012 23:01
by TotiOla
Þetta hringir bjöllum hjá mér og ég hef upplifað sambærileg vinnubrögð þegar ég fór með minn fyrsta riffil til byssusmiðs. Fer ekki þangað aftur í bráð og grunar að þetta sé sami maður sem þú ert í veseni með. Vona að þetta fari þó allt vel að lokum hjá þér og hann finni sjónaukann.
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 20 Nov 2012 23:34
by Stebbi Sniper
Það er mjög erfitt að segja hvað er eðlilegt og hvað ekki í þessu. Ef þú hefur gefið í skyn að það lægi ekkert rosalega mikið à þessu, en ert orðinn pirraður à biðinni þà myndi ég nú bara sækja hann og setja kíkirinn sjálfur à. Það er ekki svo mikið mál að setja kíkir à riffil. YouTube er endalaus uppspretta af fróðleik um svona mál. Mæli með aðferðinni sem Ryan Cleckner hjá NSSF notar.
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 20 Nov 2012 23:37
by Björninn
Stebbi Sniper wrote:Það er mjög erfitt að segja hvað er eðlilegt og hvað ekki í þessu. Ef þú hefur gefið í skyn að það lægi ekkert rosalega mikið à þessu, en ert orðinn pirraður à biðinni þà myndi ég nú bara sækja hann og setja kíkirinn sjálfur à. Það er ekki svo mikið mál að setja kíkir à riffil. YouTube er endalaus uppspretta af fróðleik um svona mál. Mæli með aðferðinni sem Ryan Cleckner hjá NSSF notar.
Ég gaf ekkert í skyn um hvað mér lægi á þegar ég fór með riffilinn. Hann sagði að það væri ca vika, en núna eru liðnar 3 vikur, og hann veit ekki hvar sjónaukinn er? Mér finnst það ekki eðlilegt...
og fyrir utan það, þá get ég ekki sótt hann og sett kíkirinn á sjálfur ef hann veit ekki hvar kíkirinn er...
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 00:05
by Stebbi Sniper
Slakaðu à Björn, ég er aðeins að svara þér miðað við þær forsendur sem ég fékk hjà þér àðan, þar sem stendur að gaurinn viti hvar sjónaukinn er fyrst þú ert búinn að segja honum hverrar gerðar hann er.
Ég trúi varla að það verði mikið màl að leysa úr þessu...
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 00:12
by Björninn
Stebbi Sniper wrote:Slakaðu à Björn, ég er aðeins að svara þér miðað við þær forsendur sem ég fékk hjà þér àðan, þar sem stendur að gaurinn viti hvar sjónaukinn er fyrst þú ert búinn að segja honum hverrar gerðar hann er.
Ég trúi varla að það verði mikið màl að leysa úr þessu...
ég er sultuslakur karlinn minn
það stendur reyndar ekkert um að hann viti hvar sjónaukinn er, enda efast ég um það þar sem hann vill ekki svara mér. en ef þér finnst það í lagi að fara með græjur upp á hundruði þúsunda til "gaurs" eins og þú kýst að kalla það sem veit síðan ekkert hvað hann gerir við þær, þá samgleðst ég þér fyrir að hafa það allt of gott.
Þætti svo vænt um að þú sæir þér fært að lesa efnið sem þú ert að tjá þig um í framtíðinni.
Kv.
Bjössi
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 09:29
by Stebbi Sniper
Hann sagði nei nei, ég finn hann pottþétt núna fyrst ég veit hvernig sjónauki þetta er...
Segðu mér, hvernig er hægt að túlka þessi orð á annan hátt en að náunginn sem þú vilt ekki nafngreina, viti hvar sjaunaukinn er.
Ég veit um nokkra byssusmiði og mér finnst ótrúlegt að þetta séu vinnubrögðin hjá að minnsta kosti þremur þeirra og sennilega er bara einn sem kemur til greina. Hér er listinn.
Arnfinnur - Það er svo mikið að gera hjá honum að ég geri ekki ráð fyrir að hann hafi tekið þetta verk að sér. Þ.e. að skjóta riffilinn inn fyrir þig, enda skil ég ekki afhverju þú ættir ekki að geta það sjálfur.
Halli Álftanesi - Ég þekki Halla ekki af öðru en fínum vinnubrögðum.
Valur Ísafirði - Mér finnst ólíklegt að þú hafir talað við hann.
Eftir stendur, af þeim sem ég man eftir í bili.
Bobo (Jóhann Norðfjörð)
Jóhann Vilhjálmsson
Örn
Agnar
Skelltu bara nafninu hérna inn, þá hefur sá hin sami tíma til þess að leiðrétta mistök sín og klára málið. Ég skil ekki afhverju má ekki nafngreina menn sem eru með slaka þjónustu, svo aðrir geti þá beint viðskiptum sínum annað.
Í þínum sporum hefði ég keypt mér Tikku í Hlað, frekar en þessa Howu og fengið sjónaukann settan á og tilbúinn fyrir mjög lítið hjá Hjálmari og sloppið við að tala við byssusmið.
Þú virðist nú bæði skír og vel læs, þannig að það ætti nú ekki að vera mikið mál að fyrir þig að lesa þér til um það hvernig þú grófstillir sjónauka. Þetta er nú ekki mjög flókið og ætti að ganga hjá þér með c.a. 3 - 5 skotum.
Hvað finnst þér eðlilegt að borga fyrir sjónaukaásettningu og að fara með riffilinn fyrir eigandan á skotsvæði og skjóta hann inn?
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 09:49
by Gisminn
Sæll Stefán ég ættla aðeins að blanda mér í þetta.
Afhverju segir þú að miðað við undargefnar forsendur þegar Birni var ráðlagt miðað við fjárhag í mörgum póstum hér á undan. Að þá í hanns sporum ætti hann að taka Tikku í Hlað en nefnir ekki hvaða gerð en það reyndar skiptir ekki máli því þær hafa flestar verið uppseldar og eru miðað við forsendurnar sem voru gefnar upp 65 þúsund krónum dýrari og upp úr.
En ég held að þar sértu bara að benda á kostnaðin við ásetninguna á kíkinum ekki satt ? miðað við frítt hjá sumum þjónustuaðilum. Kannski mátt sleppa Tikkuni þar sem hún var ekki í boði.
Og ein svona smá smviskuspurning.
Fórst þú eftir youtupe þegar þú settir þinn fyrsta sjónauka á ?
en ég ættla ekki að fara að rífast bara langaði að benda á orðavalið því ég held að meiningin hafi verið góð.
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 11:16
by T.K.
Leitt að heyra með þetta. Hef aldrei lent í neinu svona. Ekki nema með þjónustu iðnaðarmanns í pípulögnum (sem er hættur í dag).
Ef málavextir eru eins og þú segir þá er þetta ekki góð þjónusta. Ég skil samt ekki af hverju er vandamál að nafngreina aðilann. Það er ekki verið að tala niður persónuna, erum bara að tala um þjónustu sem menn eru að borga fyrir stórar upphæðir. Gegnsæi er gott og gefur fólki líka tækifæri að bæta sig.
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 11:32
by Björninn
Sælir
Byssusmiðurinn var að hringja og sjónaukinn er fundinn. Líklega var ég of fljótur á mér að vera að básúna þetta hér, en fannst þrjár vikur vera orðinn ansi langur tími.
Stefán, það að ég hafi bara átt að kaupa mér Tikku staðfestir það sem ég hélt, að þú ert ekki búinn að lesa eitt eða neitt um það sem þessi þráður snýst um.

Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 11:51
by Veiðimeistarinn
Strákar mínir.......strákar mínir......þetta er nú orðið ágætt hjá ykkur
Hvað á það að þíða að vera að velta sér upp úr svona málum hérna, ég fékk svakalegt ,,flassbakk" þegar ég fór að lesa þetta, hélt að ég væri að lesa allt annað spjallborð hér á netinu, áður en mér var ,,nóta bene" hent út af því, fyrir að gagnrýna þjónustu hjá tengdu veiðitækjasölufyrirtæki suður þar í höfuðborg óttans.
Jæja Björninn minn, þú segist ekki ætla að fara að níða skóinn af einum eða neinum, en því miður er það orðið svoleiðis eins og umræðan hefur þróast hérna.
Það er engin von til að viðkomandi byssusmiður fari að svara fyrir sig hérna óg útskýra sína hlið á málinu, maður í hans stöðu getur ekki hætt á að hann lendi í rifrildi hérna á spjallinu eins og þessi þráður hefur þróast og gefur sannalega tilefni til að halda.
Nei Björninn minn, við skulum halda svona málum fyrir okkur og vera menn til að leysa þau agliti til auglitis við viðkomandi án allra æsinga, þá fyrst kemur fram frá fyrstu hendi hvort aðlilegar orsakir valda svona töfum og þá er líka hægt að koma svona skilaboðum bent til skila til viðkomandi án þess að senda honum svona óbein skilaboð eins og þú varst að reyna hérna, elsku kallinn minn

Það var gott að þetta er komið í lag, ég vona að þú hafir verið maður til að biðja viðkomandi fyrirgefningar á þessari fljótfærni þinni

Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 12:10
by Stebbi Sniper
Sæll Þorsteinn, ég byrja á því að svara þér.
Það er auðvitað kannski ekki rétt af mér að segja að ég hefði gert hitt eða þetta í hans sporum, því ég get ekki sett mig í hans spor, ég þekki manninn ekki neitt. Ég las þennan þráð á sínum tíma en verð að viðurkenna að ég nennti því ekki aftur, því ég hef ekki áhuga á viðskiptum við veiðihornið, sportbúðina eða ellingsen, svo einfalt er það.
Ég versla allt það sem ég get verslað hjá Hjálmari eða Jónasi í Hlað, annað pannta ég af netinu. Ég var að kaupa gikk í nýjan riffil fyrir 60.000.- er það eðlilegt? Já mér finnst það, vegna þess að mig langaði í hann, en Birni finnst það ekki og örugglega eru margir sem finnst það ekki í lagi.
Að rifflunum. Tikka vs Howa, ég hef ekki hugmynd um það hvor er betri, ég á Tikku, en hef aldrei séð Howu í Hlað, svo ég á ekki svoleiðis. Howa eru örugglega ekkert verri eða betri rifflar en Tikka og ég hef ekki heyrt neitt slæmt um þá sem hönd á festir. Ég hefði samt safnað mér aðeins lengur og keypt Tikkuna eða leitað að notuðum SAKO/Tikka.
Samviskuspurningin. Ég keypti Tikkuna í Hlað ásamt sjónaukanum og stóð þar með ekki frammi fyrir þessu vandamáli. Hjálmar setti sjónaukann á fyrir mig og gaf mér svo aflátt af skotum, sem ég var mjög sáttur við og fór út að skjóta með fullt af góðum ráðleggingum í farteskinu frá honum.
En ég held samt að það ættu allir að skoða þetta video með Ryan Cleckner þar sem hann kennir mönnum að stilla sjónaukan á réttan stað með tiliti til eye relef eftir því í hvaða stöðu menn eru að skjóta og festa hann örugglega.
Það er samt gott að heyra að sjónaukinn er kominn í leitirnar og nú er það í höndunum á Birni hvernig hann klárar þetta mál. Vonandi gengur honum líka vel að fóta sig sem riffil skytta, þetta er alls ekki einfaldur heimur, þó ekki eins flókinn og í fyrstu sýnist.
Ég ekki endilega sammála Sigga um að þetta meigi ekki ræða. Viðkomandi byssusmiður getur að sjálfsögðu sagt bara hvernig var. Kannski hafði hann ekki tíma, nennti þessu ekki eða komst ekki í verkið af öðrum ástæðum. Ég skil ekki hvernig það getur verið feimnismál.
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 13:13
by Stebbi Sniper
Hér er vídeó-ið með Ryan Cleckner fyrir þá sem vilja prófa. Þarna er farið yfir þetta allt saman.
[center]
http://www.youtube.com/watch?v=COoXVpGfXQE[/center]
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 13:26
by Veiðimeistarinn
Ég sagði aldrei að það mætti ekki ræða þetta hérna inni, ég var að benda á að það væri tilgangslaust að ræða þetta hérna vegna þess að svona mál er ekki hægt að leysa nema augliti til auglitis.
Þá er líkt á komið með okkur Stebbi, ég versla allt sem ég kaupi til skotveiða hér heima, annarsstaðar en í heimabyggð, á sama stað en bara ekki á sama stað og þú, en ég hef haldið því að mestu fyrir sjálfan mig vegna þess að ég tel það ekki eiga heima á þessu spjallborði.
Mér finnst svo tilgangslaust að vera með hornin í þeim verslunum sem ég versla ekki við hérna á spjallinu og vera að tilgreina mínar misvitru ástæður þess hér, þar sem viðkomandi verslanir hafa ekki möguleika til að bera hönd fyrir höfuð sér fyrr en ég er búinn að mála allan málatilbúnað mjög dökkum litum og jafnvel ,,abstrakt" (eða drulla yfir þá svo töluð sé íslenska).
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 13:41
by Björninn
Já alveg rétt, hefði ekkert átt að vera að nefna þetta hér

Stundum þegar maður er pirraður er betra að telja upp að 10.
En ástæðan fyrir að ég lét gera þetta fyrir mig Stefán, er að ég var líka að láta létta gikkinn, og fannst fínt að fá fagmanninn til að gera þetta í leiðinni, ég þyrfti þá ekkert að vera að efast um að þetta væri rétt gert, eins og ég var lengi vel að efast um með hinn riffilinn.
Ég kíki kannski með Howuna til þín í hreindýr einhvern tímann Sigurður
Elskum friðinn.
Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 13:55
by Stebbi Sniper
Þá er líka rétt að ég fyrirbyggi allan misskylning áður en fólk heldur að ég sé að úthúða þessum búðum sem ég versla ekki við, eða drulla yfir þær. Því ástæðan fyrir því að ég versla ekki við þær er sú að ég hef aldrei haft neina þörf fyrir það, ekki vegna þess að þessar búðir séu slæmar, með lélega þjónustu eða vörur, enda hef ég ekki reynslu af þeim þar sem Hlað hefur reynst mér vel.
Það er aftur á móti hárrétt hjá þér að svona hluti eins og í tilfelli Björns á að leysa augliti til auglitis, ég bar heldur ekki á móti því við Björn.
Það hefur stundum skinið í það hjá þér Siggi minn að þú ert ekki aðdáandi Hlaðs, mér kemur það ekkert við og þú hefur þínar ástæður fyrir því, sem mér koma heldur ekki við. Ég get aðeins tjáð mig um mína reynslu og hún er góð, eins og hjá flestum viðskiptavinum Hlaðs sem ég þekki, annras kæmu menn ekki þangað aftur og aftur.
Segðu mér hvað af þeim ástæðum sem ég nefni fyrir því að ég beini viðskiptum mínum til Hlaðs eru misvitrar?
Þú hamrar á því að menn skrifi undir nafni og það geri ég og get alveg staðið við allt sem ég set hérna inn. Mér leiðist líka ekkert að taka smá snerru við þig og aðra til þess að lífga aðeins upp á þetta hjá okkur hérna. En þetta hefur verið með daufara móti undanfarið...
Að létta gikk er líka verk sem maður á að láta byssusmið um og ég get alveg sagt þér að ég myndi biðja Arnfinn um að gera það fyrir mig, vona að ég sé ekki að drulla yfir aðra byssusmiði með því að segja það...

Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 14:23
by Björninn
Menn mega nú alveg vera sammála um að vera ósammála

Re: Nýr riffill í sigtinu...
Posted: 21 Nov 2012 14:38
by Veiðimeistarinn
Vertu velkominn með Howuna á hreindýraveiðar til mín Björn, ég geri ekkert upp á milli riffiltegunda.......ennnn ég er dalítið mislyndur hvð kalíberin varðar...
