Val á hleðslutækjum/hjálp

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Val á hleðslutækjum/hjálp

Unread post by Stebbi Sniper »

Sæll Einar

Það er rétt hjá þér að það þarf líka svona pressu eins og RCBS pressuna til þess að full-sizea. En þú getur farið með Wilson kúlusetjaran þinn út á skotvöll þegar þú ert búinn að finna þá hleðslu sem þú ætlar að nota og prufað kúlusetningu. Reyndar þarftu ekki þessa míni pressu því það er ekkert mál að íta kúluni ofan í með höndum, þó pressan sé alltaf betri.

Stífur bolti, röng kúlusetning og fastar kúlur fram í rílum eru ekki endilega fylgifiskur þess að hlaða nákvæmar hleðslur með Wilson die-um. Sumir Benchrestarar full-sizea alltaf hylkin sín og það er ekki endilega besta nákvæmnin að setja kúlurnar fram í rílur, sumir jumpa þeim eitthvað smá.

Þetta með stífan bolta eða of langa kúlusetningu getur komið fyrir hjá flestum sem eru að endurhlaða skot. Kunningi minn lenti í þessu í haust á hreindýraveiðum, hann þurfti að labba tvisvar upp í 800 eða 900 metra hæð vegna þess að kúlan sat eftir í hlaupinu þegar hann ætlaði að hætta við skot. Þau skot voru örugglega ekki hlaðin með Wilson og alveg örugglega ekki kúlusett fram í rílur, þar hefur bara eitthvað klikkað í hleðsluferlinu eða skotin lent í hnjaski.

Kúlusetjarinn á Wilson er nú líka þannig gerður að þú getur alveg sett kúluna neðar ef þú vilt... 8-) Þau vandamál sem þið nefnið tengjast þannig séð ekki græjunum sem menn nota til að hlaða heldur ferlinu sem menn fylgja þegar þeir endurhlaða skotin sín.
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Val á hleðslutækjum/hjálp

Unread post by Stebbi Sniper »

Sæll Vagn

Það sem þú þarft aukalega við listan þinn að mínu mati. Flest hefur komið fram hérna áður og þú ættir kannski að spjalla aftur við Benchrest vin þinn þegar þú ert komin með það sem þú telur að þú þurfir.

Primmer töng
Gott skífumál digital
Body die-a + Shellholder fyrir það hylki sem þú ert að nota
Pressu fyrir body die-an
Vigt
Trekt
Feiti eða smurningu
Deburring tool
Kúlupúllara
Púður skammtara

Trimmari er náttúrulega eitthvað sem þú notar sennilega ekki mikið. Það eru líka til fullt af hlutum sem eru nice to have en skila líklega litlu sem engu í viðbót hvað nákvæmni varðar við það sem áður hefur verið talið upp. Set hérna inn mynd þegar tækifæri gefst af því sem ég er með.
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
johann
Posts: 95
Joined: 18 Jul 2012 08:48

Re: Val á hleðslutækjum/hjálp

Unread post by johann »

Get stutt það að vera með robust skot á veiðum, fullsizað og kúlan vel frá rílum - míkrómeters nákvæmnisstillingar eru óþarfar þega vindrekið er 15 - 20 sm á 100m.
-----
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
Guðmundur
Posts: 23
Joined: 14 Dec 2012 12:02

Re: Val á hleðslutækjum/hjálp

Unread post by Guðmundur »

Til E.Har
Hvernig/hvar keyptirðu þér Blaser riffil ?
kv Guðmundur
Guðmundur Jónsson
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Val á hleðslutækjum/hjálp

Unread post by E.Har »

Búin að vera með R-93 offroad í nokkur ár. :D

Ellingsen er með umboðið, en fékk minn notaðan með óskottnu 300 wsm hlaupi frá Einari Pípara.
Bætti við hann 6,5-284 flutuðu hlaupi og stuttu 9,3-62 hlaupi líka.
Er með Aimpont, 3-12*50 og 6-24 *50 zeissa á þeim.
Harris til að halda honum stöðugum. ;)

Er alveg með delluna farin að horfa eftir Bix & Andy gikk, lsr2 skefti, 338 hlaupi, 204 +243 hlaupum!
Moderatore, öðru skefti ö .......... þar sem þetta rúllar allt saman og sundur þá er þetta svona dellukarlalegt!

Einhver sagði að þetta væri Þýsk verkfræðingabyssa, sem á kannski bara vel við :lol:

Er bara sáttur sendi kannski fjölskyldu mynd einhverntíman. :mrgreen:
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
Post Reply