Re: Val á hleðslutækjum/hjálp
Posted: 13 Dec 2012 11:19
Sæll Einar
Það er rétt hjá þér að það þarf líka svona pressu eins og RCBS pressuna til þess að full-sizea. En þú getur farið með Wilson kúlusetjaran þinn út á skotvöll þegar þú ert búinn að finna þá hleðslu sem þú ætlar að nota og prufað kúlusetningu. Reyndar þarftu ekki þessa míni pressu því það er ekkert mál að íta kúluni ofan í með höndum, þó pressan sé alltaf betri.
Stífur bolti, röng kúlusetning og fastar kúlur fram í rílum eru ekki endilega fylgifiskur þess að hlaða nákvæmar hleðslur með Wilson die-um. Sumir Benchrestarar full-sizea alltaf hylkin sín og það er ekki endilega besta nákvæmnin að setja kúlurnar fram í rílur, sumir jumpa þeim eitthvað smá.
Þetta með stífan bolta eða of langa kúlusetningu getur komið fyrir hjá flestum sem eru að endurhlaða skot. Kunningi minn lenti í þessu í haust á hreindýraveiðum, hann þurfti að labba tvisvar upp í 800 eða 900 metra hæð vegna þess að kúlan sat eftir í hlaupinu þegar hann ætlaði að hætta við skot. Þau skot voru örugglega ekki hlaðin með Wilson og alveg örugglega ekki kúlusett fram í rílur, þar hefur bara eitthvað klikkað í hleðsluferlinu eða skotin lent í hnjaski.
Kúlusetjarinn á Wilson er nú líka þannig gerður að þú getur alveg sett kúluna neðar ef þú vilt...
Þau vandamál sem þið nefnið tengjast þannig séð ekki græjunum sem menn nota til að hlaða heldur ferlinu sem menn fylgja þegar þeir endurhlaða skotin sín.