Page 2 of 2
Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
Posted: 26 Jan 2013 00:13
by iceboy
Þú ert líka bara durgur..hehe
Til hamingju gamli
Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
Posted: 27 Jan 2013 14:42
by Bowtech
Ekki veit ég hvað menn eru að kvarta með skilavefinn, gekk hnökralaust fyrir sig bæði að skila tölum og sæka nýtt kort og dýr.
Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
Posted: 27 Jan 2013 15:56
by TotiOla
Bowtech wrote:... gekk hnokralaust fyrir sig ...
Þetta hlýtur að vera afstætt hugtak

Jahh, eða þú einn af hinum útvöldu

En við hljótum að geta verið sammála um að vefurinn lítur út fyrir að vera forritaður 1995 og virknin eftir því.
Þrátt fyrir að einn af hverjum tíu komist stóráfallalaust í gegnum þennan úrelta vef þá finnst mér þetta ekki boðlegt

Gerum við ekki orðið meiri kröfur en það sem notendur?
Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
Posted: 27 Jan 2013 19:37
by Bowtech
Já þetta tókst hjá mér í fyrstu tilraun. En ég verð að vera sammála að á köflum var vefurinn hægur. En svo er spurning hvort að það sé hýsíngaraðilinn en ekki kerfið sjálft sem er vandmálið, nú eða bæði.
Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
Posted: 27 Jan 2013 20:22
by gkristjansson
Ég vinn reyndar sjálfur (meðal annars) við svona lagað (hönnun og forritun á vef síðum) og ég held að þeir aðilar sem upprunalega hönnuðu og forrituðu þessar síður eru ekki lengur hjá UST og núna eru einhverjir nýir að reyna að breyta þessu (að sjálfsögðu á síðustu stundu) og kunna ekki alveg inn á hvernig þetta all virkar (eða á að virka) þannig að allar breytingar eru erfiðar......
Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
Posted: 27 Jan 2013 20:43
by Árni
Það er bara enginn hæfur að sjá um þennan vef, það þarf ekkert að fegra það.
Að það standi hér og það að það megi alls ekki ýta á enter hér er bara skýr leið að sjá að það er enginn að sjá um þennan vef.
Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
Posted: 27 Jan 2013 21:33
by gkristjansson
Kannski ekki alveg sammála um "...að enginn hæfur að sjá um þennan vef...", ég held að það sé fullt af góðum mönnum sem eru alveg hæfir um að sjá um svona lagað.
Hins vegar held ég að, því miður, að við erum minnihluta hópur og hún Svíndís er ekki að eyða of milklum kröftum (fjármunum) í það að þjóna þessum hluta af hennar starfi........
Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
Posted: 27 Jan 2013 21:40
by gkristjansson
Bara rétt til að bæta við:
Ég náði (einhvern veginn) að bæði senda inn veiðiskýrslu, sækja um veiðikort og hreindýr en ég persónulega er ekki svo viss um að þetta hafi gengið rétt að þannig að ég senti tölvupóst á 'veidistjorn@umhverfisstofnun.is' um að ég vildi fá staðfestingu um að þetta hafi nú skilað sér rétt til þeirra (ekki gaman að halda að maður hafi sótt um hreindýr og veiðileyfi en er ekki satt / rétt)
Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
Posted: 27 Jan 2013 21:44
by TotiOla
gkristjansson wrote:ég senti tölvupóst á 'veidistjorn@umhverfisstofnun.is' um að ég vildi fá staðfestingu um að þetta hafi nú skilað sér rétt til þeirra (ekki gaman að halda að maður hafi sótt um hreindýr og veiðileyfi en er ekki satt / rétt)
Ég fékk staðfestingu senda, bæði fyrir skil á veiðiskýrslu/umsókn um veiðikort sem og umsókn á hreindýraleyfi
Það kom reyndar alveg góðum 1-2 tímum eftir að ég skilaði en ef þú hefur ekki fengið svoleiðis þá skaltu fylgja þessum póstum þínum eftir (eða skoða SPAM-filterinn á pósthólfinu þínu)

Re: Hreindýraleyfin og skilavefurinn
Posted: 27 Jan 2013 21:56
by gkristjansson
Sæll,
Ég fékk reyndar staðfestingu um að ég hefði skilað inn veiðiskýrsu (2012) en þar sem síðan þar sem ég fyllti inn tölur var að sýna ýmis ártöl þá fannst mér réttast að bara fá staðfestingu um að ég hafi skilað rétt.
Ég reyndi að fara aftur inn á skilavefinn bara til að sjá skilaboðin "Þú ert þegar búinn að skila inn...." 2012" tölum en þegar að vefsíðan bara fraus aftur og aftur þá ákvað ég að senda tölvupóstinn.
Eins og ég reyndi að segja hér áður, þá finnst mér betra að vera viss heldur en að hafa trú á því að þetta (skrýtna) apparat virki.