Page 3 of 3
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 24 Feb 2014 20:00
by Gisminn
Númer 230 á bið á Tarf á sv1 þegar búið er að setja þessa 16 af 17 framfyrir í biðröðini

á hellings séns í águst að fá hringingu

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 24 Feb 2014 20:31
by karlguðna
haha,, er aðeins betur settur ,, nr. 163

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 24 Feb 2014 22:36
by Björninn
Er ekki enn búinn að fá póst

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 25 Feb 2014 01:39
by benellim2
Fékk svæði 7
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 25 Feb 2014 10:05
by petrolhead
Var jafn heppinn og venjulega þegar happadrætti á í hlut

fékk ekki úthlutað og laaaangur biðlisti áður en kæmi að mér.
Óska ykkur sem fenguð úthlutað til hamingju og vona að þið eigið góðan veiðitúr í haust.....held bara áfram að öfunda ykkur
kv
Gæi
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 25 Feb 2014 10:49
by gkristjansson
Þá er bara að skella sér í rekstrarveiðina hér í Ungverjalandi í staðinn sem ég var að auglýsa hér fyrr í morgun

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 25 Feb 2014 10:55
by iceboy
240 000 plús flug til Ungverjalands er ekkert mikið dýrara en að fara Austur á hreindýr, svona fyrir flesta.
Mér skilst að þetta sé töluverður peningur með gistingu og öllu fyrir þá sem það þurfa.
Ég hef hugsað það að fara út þegar ég hef ekki fengið dýr
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 25 Feb 2014 23:06
by cruser 90
Ég er númer 102 á biðlista svæði 1 haldið þið að það sé möguleiki

Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 25 Feb 2014 23:19
by petrolhead
Já Guðfinnur það væri örugglega gaman, eini gallinn að maður fengi ekki að hafa með sér svo mikið sem eina steik heim....ef ég þekki kerfið rétt.
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 25 Feb 2014 23:46
by Veiðimeistarinn
Nei Jóhann, ég held að það sé ekki möguleiki!
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 26 Feb 2014 07:42
by iceboy
Garðar afhverju ætti ekki að vera hægt að taka með kjöt heim?
Það hlýtur að vera hægt að sækja um sama magn og ef maður fer til t.d Grænlands eða Noregs, semsé 20 kg.
Hinsvegar skilst mér að ekki sé leyfinlegt að taka með villisvínakjöt (þið leiðréttið mig ef það er rangt) en hjartarkjötið má taka.
Þarf bara að sækja um innflutningsleyfið og borga einhverjar kr per kilo.
Það var allavega svoleiðis þegar ég fór til Noregs
Re: Voru menn dregnir út?
Posted: 26 Feb 2014 08:25
by gkristjansson
Svona rekstrarveiði er reyndar "trófí" veiði þannig að menn fá venjulega ekki kjöt. Það væri hins vegar sjálfsagt hægt að redda einhverju kjöti fyrir menn ef menn myndu vilja taka með heim og það væri hægt / leyfilegt vegna innflutnings reglna.