Page 3 of 11
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 18 May 2014 14:15
by Gisminn
Jú Jón ég er með mína í skúrnum og hiti misjafn og einmitt fannst þetta sama vigtin.En ég er ekkert að kúlusetja eða neitt og vandin er að vigtin sýnir alltaf alt í lagi þegar pannan er sett á en er eins og hún sé með innri leiðréttingu erfitt að lýsa því en ég sé það best ef ég tara og lyfti pönnuni af þá vil ég sjá -130,00gr en sé jafnan eftir fyrstu vigtun -130,1 og upp í 130,3 eða 129,8-129,9. En ef statikin ætti að vera rétt og vill fá 28,8 (miðað við -130) ég sé 130,1 ætti ég að vigta 28,9 en raun ef ég geri það þá getur sú hleðsla einhverra hluta verið frá 28,7-29gr. Tók smá test um daginn þar sem ég vigtaði 8 hleðslur og skráði þyngd hverrar tók um mínutu.Taraði svo í hvert skipti og viktaði og mesti munurinn var 0,6gr.Er með massíft slétt borð en það getur verið að hún sé svona fjandi viðkvæm fyrir hitabreytinguni því ég kyndi upp þegar ég er í skúrherberginu mínu.
Og alveg rétt ábendingin um að vera að fikta í mörgum vogum er góð. En samt treysti ég skálavogini betur að því leyti að maður sér ef hún ætlar að breyta sér vegna ytri aðstæðna strax og vigt sem var vigtuð fyrir 30mín og tékkuð af nú er enn sú sama.
Ég fór í digitalið af því að ég get ekki haft skálavogina í þægilegri hæð til að stemma línurnar.
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 18 May 2014 21:43
by Padrone
Losaði aðeins til hjá mér og fékk mér í staðin
Beretta ES100 í camo
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 18 May 2014 21:47
by Gísli Snæ
Já og áður en ég gleymi því.
Aron - alveg hrikalega flottur riffill hjá þér.
Til hamingju með hann.
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 18 May 2014 22:07
by Aron Kr Jónsson
takk fyrir Gísli vonandi á hann eftir að virka vel:-)
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 19 May 2014 00:43
by Aflabrestur
Sælir.
Það hefur ýmislegt komið í hús seinnipartin í vetur kem með eh. myndir af því seinna. En þetta er það nýasta var færð þessi snildar græja í dag XXL trikler frá Petrolhead Enginering þessi er sko full sise

Takk Gæi
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 19 May 2014 11:07
by Gísli Snæ
Aron - hvernig gler setja menn á svona flottan riffil?
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 19 May 2014 13:57
by konnari
Gísli Snæ wrote:Aron - hvernig gler setja menn á svona flottan riffil?
ehmm ehmm.....á svona alvöru riffil setja menn bara alvöru sjónauka þ.e. Zeiss, Schmidt & Bender, Swarovski eða Kahles

Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 19 May 2014 14:08
by Gisminn
Merkjasnobbari

Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 19 May 2014 17:51
by Aron Kr Jónsson
sælir strákar ég er með zeiss conquest 6,5-20x50 sem verður notaður í sumar

en stefnan er sett á zeiss victory 6-24x56 eða nightforce

Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 19 May 2014 19:33
by konnari
Aron Kr Jónsson wrote:sælir strákar ég er með zeiss conquest 6,5-20x50 sem verður notaður í sumar

en stefnan er sett á zeiss victory 6-24x56 eða nightforce

Ég get sagt þér af eigin reynslu að ég hef átt alla þessa sjónauka sem þú nefnir og ég myndi aldrei skipta Zeiss conquest út fyrir nightforce !! Hins vegar myndi ég hiklaust mæla með zeiss victory, ég á 2 slíka og það er topp græja og þú færð ekki mikið betri sjónauka.
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 19 May 2014 20:33
by Gísli Snæ
Af hverju ekki Ingvar? Nightforce er snilldargræja sem tracka frábærlega. Glerin er flott en, ekki eins og Zeiss Victory en mjög fín. Síðan er það ATACR eða nýji Competition. Einhver er amk ástæðan fyrir því að þetta er algengasta gerðin í BR og F-Class.
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 19 May 2014 21:54
by konnari
Ástæðan Gísli er einmitt eins og þú segir að Zeiss er með mun betri gler en Nightforce....hins vegar framleiðir Zeiss ekki BR eða F-class sjónauka og því er það augljóst að þeir eru ekki brúkaðir þar
Fyrir long range tactical þá ber ég ekki saman gæðamunin á Schmidt & Bender 5-25x56 PMII og svo Nightforce NXS 5.5-22x56 eða NXS 8-32x56.........búinn að bera þá sama og það er himinn og haf þar á milli enda verðmiðinn eftir því.
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 19 May 2014 21:58
by Gísli Snæ
If you can see it - you can shoot it.
Við erum allt of snobbaðir í glerjum - þ.e. leggjum of mikila áherslu á að allt sé sem skírast.
Verð að segja eins og er að síðustu 2 dýr sem ég hef skotið, með S&B sjónauka ofan á rifflinum, horfði ég á í nokkrar sekúndur samanlagt. Gat lítið pælt í því hversu skýr þau voru.
En jú - menn hafa nú víst notað Zeiss/Hensholt í F-Class

En nóg um það - tölum um græjur.
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 20 May 2014 23:07
by Aflabrestur
Sælir.
Sagðist ætla að koma með eitthvað meira hér er vetrardundið.

- BSA
- IMG_3713.JPG (112.64 KiB) Viewed 7865 times
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 22 May 2014 22:54
by Aflabrestur
Sælir.
Góður vinur færði mér langþráðan pakka í dag nú verður sko gamann að fikta

verst að það er allt að gerast þegar ég hef akkurat engan tíma fyrir þessa hluti.

- IMG_3723.JPG (60.08 KiB) Viewed 7771 times
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 22 May 2014 23:17
by Gisminn
Koma tímar koma ráð til lukku með dótið

Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 26 May 2014 20:08
by Aron Kr Jónsson
Sælir ég hef verið að reina að versla hjá
http://www.sinclairintl.com/ en eitthvað er ekki rétt hjá mér sem gerir það að verkum að ég næ ekki að klára pöntun........
ég væri til i aðstoð ef hún er í boði
http://www.sinclairintl.com/reloading-e ... Benchrest)
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 27 May 2014 01:17
by KarlJ
Sæll Aron lenti í þessu um daginn. Þá var vandamálið að borga með vísakortinu inn á pöntunarsíðunni. Ef þú skoðar ferlið þá er boðið upp á að hringja inn og borga, þú vísar í order conformation númerið sem þú færð sent í tölvupósti. Þ.e. Þú klárar pöntunina merkir við að þú munir hringja inn seinna, hringir svo inn og borgar með kortinu.
Vona að þetta skiljist.
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 27 May 2014 10:28
by Gisminn
MÉR HEFUR GENGIÐ MJÖG VEL AÐ PANTA FRÁ ÞEIM EN ÉG NOTA REYNDAR PAY PAL
Var of fljótur á mér þarna er með masterinn á sinclair en á paypal allstaðar annarstaðar þar sem það er í boði
Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Posted: 27 May 2014 21:16
by Árni
Var að fá þessa elsku í hendurnar í dag
Schmidt & Bender 3-12x50 Zenith með flashdot, að sjálfsögðu með nýju festingunum (hringirnir hefðu mátt vera aðeins lægri...)
Það verður farið beint uppá svæði á morgun!