Page 3 of 3
Re: Fjórðungs fall á hreindýraprófi
Posted: 20 Jul 2014 19:13
by KarlJ
Eigum við ekki að flækja þetta aðeins meira, hvað ef skotin sem ég tók prófið með eru uppseld eða kúlurnar sem ég notaði? Þessi staða viðrist vera algeng í dag.
Re: Fjórðungs fall á hreindýraprófi
Posted: 20 Jul 2014 23:52
by TotiOla
KarlJ wrote:Eigum við ekki að flækja þetta aðeins meira, hvað ef skotin sem ég tók prófið með eru uppseld eða kúlurnar sem ég notaði? Þessi staða viðrist vera algeng í dag.
Ég er nákvæmlega í þessari stöðu í dag (vantar 140 gr. GameKing í 6,5) og hef farið 4x á æfingasvæðið frá prófi og skotið yfir ca. 200 skotum

til þess að reyna að finna veiðikúlu með ásættanlega (sambærilega) nákvæmni (við þá sem ég tók prófið með - lágmark að mínu mati).
Ef það hefði hins vegar verið skilyrði að dýrið væri skotið með sömu kúlu og prófið er tekið (sem ég er þó ekki að tala fyrir) þá hefði ég auðvitað kannað framboð á þessum kúlum sem ég ætlaði mér að taka prófið með áður en ég tók það, og þá breytt um kúlu ef í ljós hefði komið að hún væri ófáanleg (eins og staðan er í dag).
Ég hefði betur gert þetta svona og væri þá ekki á síðasta séns núna að reyna að finna réttu kúluna

Re: Fjórðungs fall á hreindýraprófi
Posted: 21 Jul 2014 00:04
by Sveinbjörn V
Mönnum er treyst í dag til þess að taka prófið á sömu kúlu/hleðslu og menn fara á veiðar með.
En því miður þá eru ekki allir að gera góða hluti þar

Re: Fjórðungs fall á hreindýraprófi
Posted: 21 Jul 2014 00:11
by KarlJ
þórarinn þú átt einkaskilaboð.
Kv. Kalli
Re: Fjórðungs fall á hreindýraprófi
Posted: 21 Jul 2014 00:44
by Aflabrestur
Sælir.
Það er hvergi neitt í reglunum um það að þú verðir að nota sönu kúlu í prófið og á dýrið bara að það sé notuð veiðikúla í prófinu.
og ég get ekki skilið það öðruvísi en að það má taka próf á eins marga riffla eftir að hafa staðist prófið í fyrstalagi.
Tóti ef allt þrýtur hafðu samband get örugglega bjargað þér um kúlur í eitt dýr eða svo.
Re: Fjórðungs fall á hreindýraprófi
Posted: 21 Jul 2014 00:45
by TotiOla
Sveinbjörn V wrote:Mönnum er treyst í dag til þess að taka prófið á sömu kúlu/hleðslu og menn fara á veiðar með.
En því miður þá eru ekki allir að gera góða hluti þar

Ég tek þetta á mig Sveinbjörn. Hugsaði málið ekki alveg til enda þegar ég æfði mig "of mikið" fyrir prófið og eyddi öllum GK kúlunum, sem ég hélt í einfeldni minni að væru auðfáanlegar hjá þeim hlaðmönnum.
Ég er þó að gera mitt besta í að reyna að finna veiðikúlu sem skilar mér mjög góðri nákvæmni og er hugsanlega of kröfuharður við sjálfan mig í þeirri leit.
KarlJ wrote:þórarinn þú átt einkaskilaboð.
Kv. Kalli
Sæll KarlJ
Pósturinn hefur farið í vitlaust hús með þessi skilaboð.
Þau eru amk. ekki í innhólfinu mínu

Endilega prófaðu að senda aftur.
P.s. Hér með líkur mínu off topic-i um kúlur og kröfur þar um.
Re: Fjórðungs fall á hreindýraprófi
Posted: 23 Jul 2014 22:56
by Sveinbjörn V
Það sem ég var að segja er að reglurnar og eftirlitið í prófunum verður bara hert ef menn fara á svig við reglurnar. Búðirnar eru að selja mönnum heilar kúlur fyrir veiðar og of léttar kúlur líka.
Bara til að selja eithvað !
Alls ekki meint til þín Tóti. Ég nota sjálfur Sierra GK og virkar best.
Re: Fjórðungs fall á hreindýraprófi
Posted: 26 Jul 2014 20:46
by sindrisig
Þegar þú segir of léttar. Hvað áttu þá við? Kúlan þarf að hafa ákveðinn slagkraft, 1300 pundfet ef ég man rétt. Það er ekkert mál að ná því með léttari kúlu en 100 grain, ef kaliberið getur höndlað hraðann.
kv
Re: Fjórðungs fall á hreindýraprófi
Posted: 27 Jul 2014 10:34
by skepnan
Sæll Sindri, samkvæmt textanum þá mega kúlurnar ekki vera léttari en 100gr.
Nota skal riffla með hlaupvídd 6 mm eða meira. Kúluþyngd skal ekki vera minni en 6,5 g (100 grains) og slagkraftur ekki minni en 180 kgm (1300 pundfet) á 200 metra færi.
Svo hvort menn séu sammála því læt ég liggja milli hluta
Kveðja Keli
Re: Fjórðungs fall á hreindýraprófi
Posted: 28 Jul 2014 10:56
by E.Har
Þetta er einfaldlega rétt hjá Kéla enda hversvegna að gera veður út af þessu.
Eðlilegt að gera kröfu um veiðikúlu löglega til veiða. Hvort þú notir sömukúluna er í mínum huga aukaatriði. Þú hefur sýnt fram á að bæði þú og rifillin uppfyllið lágmarksskröfur. Hvað þarf meira?
Ég er td altaf með 2 tegundir með mér.
Eina balt -tip og aðra sveppandi. ( Hef verið að breytast í skoðunum á þessu í rólegheitunum)
Notast eftir aðstæðum. Ætla mér ekki að taka prófið með báðum
Er líka með mismunandi sjónauka ofan á rörið.
Aftur eftir aðstæðum.
Persónulega þá hef ég ekki mikklar áhyggjur þú þú takir prófið með vld hunting en mætir með TSX...
Hvernig þú berð þig að og hve mikið þú hefur veitt, ræður hvort ég samþykki að þú teygir þig einhvað langt. Skotpróf á 100 m segir ekkert um það og hvaða veiðikúla var notuð ekki heldur.
Perónuleg findist mér í lagi að menn tækju 3ja skota gruppu og færu að reglum viðkomandi skotsvæða en það er heldur ekkert vandamál. Vandamál við hreindýr byrja þegar búið er að skjóta þau.