Page 3 of 4
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 26 Jun 2012 00:51
by cruser 90
Sæll hann er ekki búin að skjót úr honum leingi en ég held að kíkirinn sé ekki réttur það þarf að skjóta hann betur inn en hvernig er það er hægt að fá leingri tíma eða ,vitið þið það en ég fékk riffilin í hendurnar á sunnudag og þá var hann alveg út úr kortinu en ég er þó búin að koma honum á blað þannig að ég prófa aðeins áfram eða reini að fá annan lánaðan takk kærlega fyrir svörin
nei það var ekki vindrek takk fyrir þetta Gisminn maður er alltaf að læra
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 26 Jun 2012 07:59
by Veiðimeistarinn
Sæll cruser.
Það geta verið ýmsar ástæður fyrir þessu.
Þetta er of langt mál til að spjalla um það hérna, það eru margar spurningar sem vakna þegar byrjað er að spjalla, þú getur hringt í mig ef þig langar að koma frekara skikki á þetta og reyna að laga þetta betur.
Síminn er 899-1070
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 26 Jun 2012 14:54
by skepnan
Sæll, miðað við 3ja skota grúppuna þá held ég að hann sé stilltur inn á 150 eða 160 metrum. Eins og Steini bendir þér á þá er bara að færa krossinn niður og til vinstri og þá ert þú kominn inn á blaðið eða þá að þú lærir á ákomuna og miðir neðar en þú þarft samt að rétta sjónaukan af til hliðar.
Svo þegar þú ert búinn að taka prófið og floginn í gegn, þá er bara að æfa sig bláann í framan og læra alveg inn á vopnið

þó svo að önnur öxlin verði tveim númerum stærri í smá tíma
Gangi þér vel á prófinu
Kveðja Keli
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 26 Jun 2012 21:59
by Veiðimeistarinn
Sæll Jóhann G. (cruser 90)
Vona að seinni riffillinn dugi betur, við græjum þetta svo!
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 26 Jun 2012 22:58
by cruser 90
Takk fyrir hugulsemina félagar en þetta á að ganga með nýja vopninu
Sigurður ég verð í bandi við þig sendi þér mail takk fyrir kv jói
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 07 Jul 2012 23:16
by maggragg
http://mbl.is/frettir/innlent/2012/07/0 ... l_a_profi/
Einhvernvegin er ég sammála þessu. Þetta próf hefur sýnt það að það var þörf á því. Það er komið til að vera það er nokkuð ljóst og það er skyttunum sjálfum að þakka. Það sem kom mér mest á óvart að menn voru að mæta í próf óundirbúnir og ekkert búnir að stilla, sumir höfðu aldrei skotið úr stórum riffli áður þegar þeir mættu beint í próf. Þetta próf er þannig að allir sem eitthvað hafa æft sig og eru með rifflana í nothæfu ástandi eiga að fara í gegnum prófið auðveldlega enda ekki mjög stífar kröfur.
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 08 Jul 2012 00:00
by iceboy
Ég er í raun alveg sammála Magnúsi með það að það var nauðsynlegt að setja á þetta próf, EN það er einn þáttur sem gleymdist og hann kemur vegna klúðursins frá ráðuneytinu og það er það að menn sem eru vanir að skjóta en eru ekki vanir að skjóta á skotsvæði, menn sem komast í aðstöðu t.d út í sveit hjá kunningja eða jafnvel hjá sjálfum sér. Það setur auka pressu á þá að hafa her manna inni í húsi og allir með kíkinn uppi að sjá hvar kúlan lendir. Þetta gerir auka stress, ég talaði við einn sem er mjög reynd skytta og á skotsvæðum líka, hann sagði að það hefði gefið nokkur auka slög að vita af öllum þessum mönnum fyrir aftan hann inni í húsinu, hann sagði að af því að þetta var hann þá hefði hann bara beðið eftiir þvi að þakið færi af kofanum ef hann kúðraði einu skoti, sem hann gerði reyndar ekki.
En fyrir menn sem eru ekki vanir á skotsvæðum og þurfa að koma þegar það er svona margt fólk, þetta setur óþarfa pressu á þá, þetta fólk er ekki allt að horfa á þegar á veiðar er komið.
En það verður væntanlega betra á næsta ári, allavega miðað við textann þá þarf bara að skila inn staðfestingu á skotprófi staðist síðustu 12 mánuði og því þarf að skila fyrir 1 júli, þannig að það eru ansi margir sem ekki þurfa í skotpróf á næsta ári, semsagt allir þeir sem taka prófið frá 1 júli til 20 júli.
Sem aftur sýnir hversu ílla þetta er skipulagt.
Svo nú er spurning hvort maður á ekki bara að skella sér í skotpróf aftur í vikunni fyrst það er enþá verið að halda þetta, ég tók mitt fyrir mánaðarmót en þá er ég bara búinn að þessu fyrir næsta ár.
p.s frúin prófaði riffilinn eftir að ég var búinn að taka prófið, fyrstu 5 skotin hennar með þessum riffli og annað skiptið sem hún skítur úr stórum riffli eftir að hún tók skýrteinið, hún skaut á æfingarskífuna á 100 metrum. Öll skotin voru vel innan hringsins. Hún hefði semsagt staðist prófið, verst að hún var nr 800 og eitthvað á biðlista

Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 08 Jul 2012 11:50
by skepnan
Sælir, auðvitað var þetta þarft próf, enda hef ég ekki verið á móti prófinu sem slíku. En þetta er mjög klúðurslega unnið svo ekki sé meira sagt. Þetta er eitthvað sem hefði átt að senda aftur í hérað svo maður vitni í dómstólamálfluttning
Aftur á móti, þá hegg ég eftir ósamræmi í tilvitnun við þennan dýralækni/prófdómara:
"„Maður er bara sjokkeraður að sjá hvernig fólk skýtur. Það eru ekki nema um 30% veiðimanna sem hitta 14 cm blað á 100 metra færi þó að blaðið sé kyrrt og notast sé við tvífót." tilvitnun líkur.
Samkvæmt þessum tölum þá er 70% FALL hjá þessum prófdómara, það er ansi hátt hlutfall og langt frá þriðjungi. Þetta á að vera bein tilvitnun í hann
Önnur tilvitnun
" Það þyrfti m.a. að athuga hvort lásinn eða kíkirinn væri laus."
Lásinn???? ég er ekki alveg að skilja þetta
Kveðja Keli
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 09 Jul 2012 14:21
by cruser 90
sælir félagar þá er þessi höfuðverkur búin og ég náði prófinu með glans

takk fyrir mig
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 10 Jul 2012 11:07
by E.Har
Á hvaða borðsenda sat Skotvís maður?
Það sat allavega engin frá félagi leiðsögumanna.
Þessu var hennt í tölvupósti á einhverja aðila með mikklum flýti og það sést.
Ég er jákvæður fyrir prófinu en það er bara klaufalega útfært. það er ekki eins og menn hafi ákveðið þetta með 10 daga fyrirvara. Þeir hafa haft nægan tíma til að gera þetta almennilega.
Krafan er ekki óeðlileg þó 3 skot egi að duga.
Öryggisreglur er eðlilegt að hafa en að þær séu orðið einhvað atriði er skondið.
Þær eiga að vera til hliðsjónar og ef menn fara eftir reglum skotsvæða þá eiga þær ekki við.
E.Har
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 13 Jul 2012 23:46
by Veiðimeistarinn
Jæja, ég fór í þetta blessaða skotpróf í dag
Var hreint ekki ánægður með árangurinn
Byrjaði á að fá tvo flyera, vissi ekki hvað var að gerast, svo grúppan á þremur síðustu skotunum var ekkert sérstök

Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 15 Jul 2012 03:09
by iceboy
Siggi ef þú svarar alveg hreynskilningslega og alveg satt þá verðuru að viðurenna að ef ég eða einhver annar kæmi með þessa skífu til þín þá fengi ég ekki að hausskjóta hreindýr

er það nokkuð? að sjálfsögðu færi maður fram á að fá að skjóta og sýna færnina á borðinu í Vaðbrekku áður en maður fer af stað og sýna fram á að maður geti betur en þetta því allir geta átt slæma daga EN þetta er ekki nógu gott fyrir hausskot... eða hvað?
Með fullri virðingu að sjálfsögðu
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 15 Jul 2012 12:47
by Veiðimeistarinn
Jú Árnmar, ég mundi leyfa þeim að skjóta í haus sem kæmi með svona skífu til mín (svo framalega sem hann væri ekki með 308

)
Skotin 3 við miðjuna segja allt sem segja þarf, auk þess sem frávikið er ekki nema 4-5cm. til vinstri og 3,5 til hægri, samtals um 8 cm. það er dauðaskot í haus í öllu falli sé notuð ballistc tip kúla, en ég leyfi einungis skot í haus með léttri ballistic tip eða sambærilegri kúlu á miklum hraða, helst ekki undir 3200 fetum.
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 15 Jul 2012 13:50
by gkristjansson
Mig langar bara að bæta við að þetta sýnir (mér allaveganna) að jafnvel bestu skyttur eiga stundum sín feilskot....
Spurningin sem kemur hins vegar upp í mínum huga er, ef við viðurkennum að allir geta átt eitt og eitt feilskot, hvers vegna er þá krafa um það að öll 5 skotin verða að vera innan hrings en ekki, til dæmis, 4 af 5 eða þannig lagað.....
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 17 Jul 2012 14:08
by E.Har
4 af fimm er ekki í lagi.
Skífan er það stór að flierar eiga að vera innan hennar.
Hitt er annað að mér finnst 3ja skota grúppa alveg segja nóg.
E.Har
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 18 Jul 2012 09:07
by gkristjansson
Mér er enn spurn, af hverju eru 4 af fimm ekki í lagi?
Sem dæmi þá var ég eitt árið að eltast við krónhjört með leiðsögumanni. Við sátum í turni að kvöldlagi og sáum góðan hjört. Mér var sagt að taka hann. Fyrir slysni þá ýtti leiðsögumaðurinn aðeins við olnboganum á mér rétt er ég tók í gikkinn og kúlan fór fyrir framan dýrið. Á innan við 10 sekúndum var ég búinn að setja annað skot í hlaupið, skjóta og fella dýrið. Sem sagt einungis 50% skotanýting, en dýrið féll.
Reyndur veiðimaður á að geta náð sér eftir feilskot nógu fljótt til að ná að fella dýr þrátt fyrir feilskotið.....
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 18 Jul 2012 15:35
by Veiðimeistarinn
Pabbi skrapp í skotprófið í dag, stendur á áttræðu og stóð sig bærilega, þó hann gengi á Snæfellið í fyrradag
Inga systir hefur samt ekki mikið álit á skotfimi hans, segir að árangurinn sé allur rifflinum hennar að þakka
Held samt að hið fornhveðna sé enn í fullu gildi ,,Veldur hver á heldur"

Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 18 Jul 2012 15:53
by iceboy
Til hamingju með gamla.
Á hvaða skotsvæði var þetta próf tekið?
Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 18 Jul 2012 15:56
by Veiðimeistarinn
Dreka í Fjarðabyggð

Re: Blessaða skotprófið.
Posted: 18 Jul 2012 16:07
by iceboy
Þetta er nú sú aðstaða af þeim sem ég hef séð sem er líkust því sem fyrirkemur á veiðum lítið um það að menn liggji á borði eins og t.d á álfsnesinu þegar á veiðar er komið
