Page 3 of 4

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 20 Jan 2013 16:28
by E.Har
Snirtilega gert :mrgreen:
Þessi 6,5-47 er alveg eftir minum óskum.
Hvaða lás er í grunnin þar?

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 20 Jan 2013 17:24
by kra
Hér er sá dásamlegi 7mm STW í því hlutveki sem hann var hannaður til að gera. Stoppa rebba :lol:
Krieger hlaup, Jewell gikkur, Mcmillan A5 skepti, Zeiss 6-24x72 sem er alveg dásamlega bjartur.

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 20 Jan 2013 17:43
by Stebbi Sniper
E.Har wrote:Snirtilega gert :mrgreen:
Þessi 6,5-47 er alveg eftir minum óskum.
Hvaða lás er í grunnin þar?

Sæll Einar

Þetta er Stiller Predator eins skota lás í GRS Hunter skepti.
Bc3 wrote:er hylkið turnað alveg niður á axlinar hjá þér? eða lítur það bara þannig út? annars flottir rifflar og endilega komdu með típuna á 22lr keppnisriflinum hjá þér
Sæll Alfreð

Hylkið er turnað alveg niður á axlirnar, þetta er svo rosalega lítið sem er tekið af því að ég veit ekki hvort það skiptir máli, en Arnfinnur hjálpaði mér við þetta, svo það er örugglega ekki verra...

Keppnisriffilinn minn er Feinwerbau 2600 Universal, það er búið að skipta um hlaup á honum og ég nota Centra gata sigti, ef það segir þér eitthvað...

Hér er dæmi um mjög góða æfingu hjá mér um daginn...

[The extension pdf has been deactivated and can no longer be displayed.]


Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 20 Jan 2013 21:38
by Bc3
Er eitthvaðtil af þessum22lr keppnisrifflum hér tilsölu? Og hvað er svona 22lr að kosta?

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 20 Jan 2013 23:36
by Stebbi Sniper
Ég veit ekki um neinn svona riffil til sölu í augnablikinu, en það er stundum eitthver hreyfing á svona byssum hér... svo er örugglega hægt að biðja Hjalla í Hlað að sér panta Anschutz og Gummi í Ísnes flytur inn Feinwerkbau.

Það er erfitt að segja til um verðið á notuðum svona rifflum... líklega öðru hvoru meginn við 300 kallinn. Nýr virðist ál riffilinn frà Feinwerkbau vera á um 600 og Universal, svipaður og minn á 400.

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 22 Jan 2013 10:43
by konnari
atlimann wrote: Við sömdum um verð og ég lét slag standa, þannig að nú er riffillinn komin "heim" og fer líklega aldrei aftur úr mínum höndum. En sem komið er hef ég ekki fellt neina bráð með honum, bara verið að skjóta uppá svæði í Höfnum, en ég gæti ekki verið sáttari með gripinn ;)

Jæja nóg komið af rausi... læt hér 2 myndir fylgja með
Sauer 202 Classic, örvhentur
cal. 6,5x55
með Zeiss Victory Diavari 3-12 x 56 T*

Image

Image
Skemmtileg saga :)

Glæsilegur riffill og frábært gler á honum ! Þú færð ekki betri samsetningu fyrir veiðiriffil. Til hamingju með hann ;)

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 23 Jan 2013 21:12
by atlimann
konnari wrote:
Skemmtileg saga :)

Glæsilegur riffill og frábært gler á honum ! Þú færð ekki betri samsetningu fyrir veiðiriffil. Til hamingju með hann ;)
Takk fyrir það,
ég held að þetta sé bara ágætis combo :D

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 23 Jan 2013 21:25
by jon_m
atlimann wrote:Jæja verður meður ekki að vera með í þessum þræði.
Það er reyndar smá saga á bakvið það hvernig ég komst yfir þennan riffil, þannig er málið að í lok árs 2006 þá fór ég í Ellingsen og pantaði mér Sauer 202 örvhentan í cal.6.5x55, mér var sagt að það væri ca. 3ja mánaða bið eftir honum sem var bara í góðu lagi mínvegna.

Þrír mánuðir liðu og þá fór ég aftur í Ellingsen en þá var komið smá babb í bátinn, því að verksmiðjan úti hafði flutt og allar pantanir voru í einhverju rugli, þannig að þeir voru engu nær hvenær byssan myndi koma til landsins, ég hafð boðist til að borga inn á byssuna þegar ég pantaði hana en sá sem afgreiddi mig sagði að það væri óþarfi því hann þekkti til mín í gegnum starfsmann Ellingsen sem ég þekki. Mér var sagt að þetta myndi á endanum skila sér en enginn tíma setning var á því, þannig að ég kom reglulega í búðina til að taka stöðuna á málunum.

Svo fékk ég úthlutað hreindýri 2007 og þegar líða tók að tímabili þá bólaði ekkert á rifflinum, en þeir í Ellingsen lánuðu mér riffil og fór ég með hann á veiðar.

Árið leið og enn hafði riffillinn ekki skilað sér og var ég ekki sá eini í stöðunni því það höfðu verið pantaðir 5 örvhentir rifflar í hinum ýmsu calíberum og ég held að það hafi verið 2-3 í cal.6.5x55.

Árið 2008 var byssan ekki enn komin, ég fékk úthlutað öðru hreindýri og þurfti þá að leita annað með að fá lánaðan riffil, svo kom kreppa, ég missti vinnuna í lok ársins og þá var ekki lengur í myndinni að fara fjárfesta í riffli.

Í mars/aríl 2009 þá var ég að mæla göturnar og staulaðist inn í Ellingsen og viti menn þá var riffilinn kominn og var upp í hillu tilbúinn fyrir "mig" :) ég talaði við sölumanninn og spurði um þennan riffil og þá sagði hann að þetta væri sá síðasti, ég náttúrulega varð alveg veikur og starði bara í gegnum glerið og þurfti svo að bíta í það súra epli að ég var ekki að fara að eignast þennan riffil þarna á þessum tímapunkti. Og svo til að strá salti í sárin þá vandi ég komur mínar í Ellingsen næstu mánuðina bara svona til að tékka hvort hann væri ekki alveg örugglega enn til, en svo komu vonbrigðin í lok árs 2009, þá var búið að selja hann.

Þar með var þessari þrautargöngu lokið og ég gat hætt að spá í þessu.... þangað til í fyrra (2012), þá hringir hann Tóti Óla í mig og tjáir mér það að riffillinn "minn" sé auglýstur til sölu á annari sambærilegri netsíðu (þar sem menn koma yfirleitt ekki fram undir nafni).

Ég var nú ekki alveg að fara að kaupa mér riffil þá stundina en ég hef samt sem áður samband við manninn eftir að hafa hugsað málið í nokkra daga og hann var enn til sölu.
Ég spurði manninn hvenær hann hafði keypt riffilinn og hann sagði að henn hefði keypt hann nýjan í lok árs 2009, þannig að hér var riffillinn "minn" kominn og með mun betri sjónauka en ég hafði nokkurntíma ætlað mér að setja á hann.

Við sömdum um verð og ég lét slag standa, þannig að nú er riffillinn komin "heim" og fer líklega aldrei aftur úr mínum höndum. En sem komið er hef ég ekki fellt neina bráð með honum, bara verið að skjóta uppá svæði í Höfnum, en ég gæti ekki verið sáttari með gripinn ;)

Jæja nóg komið af rausi... læt hér 2 myndir fylgja með
Sauer 202 Classic, örvhentur
cal. 6,5x55
með Zeiss Victory Diavari 3-12 x 56 T*

Image

Image

Flottur riffill. Ég var búinn að skoða hann nokkuð oft í Ellingsen á sínum tíma, ef ég hefði skellt mér á hann er ég ekki viss um að þú værir með hann í dag. Ég gugnaði meðal annars af því að ég hélt að það gæti orðið erfitt að venjast örvhentum riffli eftir að hafa verið með rétthenta í 20 ár. Hvernig hefur það gengið ?

Ég fór svo með manni á veiðar í sumar sem var með nákvæmlega eins riffil og þá vaknaði áhuginn aftur. En er örvhent málið ?

kveðja
Jón M

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 23 Jan 2013 22:39
by Benni
Allt í lagi að vera með rétthentan riffil á bekknum og veiði sem þú þarft oftast ekki að vera snöggur að skjóta öðru skoti en örfhentur riffill er mikið betri.
Í tildæmis skógarveiði erlendis skiptir öllu máli að geta skotið hratt og þá er riffill með boltanum öfugu meginn einfaldlega alltof hamlandi.

Fór til Svíþjóðar í elg, rádýr og villisvín fyrir nokkrum árum og vildu þeir ekki leifa mér að fara í turninn því ég var ekki með örfhendis riffil.(reddaðist með Browning BAR hálfsjávirkum lánsriffli).

Annað er að rétthendis riffill er gerður til að veita yfirþrístingi frá rétthendum manni sem er frekar óheppilegt fyrir örfhentan því það kemur beint í andlitið á okkur...
Var heppinn að missa ekki sjónina á öðru auga eftir hægri handar byssu, reyndar hálfsjálvirka haglabyssu en eftir það á ég bara vinstri handar!

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 24 Jan 2013 19:27
by atlimann
jon_m wrote: Flottur riffill. Ég var búinn að skoða hann nokkuð oft í Ellingsen á sínum tíma, ef ég hefði skellt mér á hann er ég ekki viss um að þú værir með hann í dag. Ég gugnaði meðal annars af því að ég hélt að það gæti orðið erfitt að venjast örvhentum riffli eftir að hafa verið með rétthenta í 20 ár. Hvernig hefur það gengið ?

Ég fór svo með manni á veiðar í sumar sem var með nákvæmlega eins riffil og þá vaknaði áhuginn aftur. En er örvhent málið ?

kveðja
Jón M
Þetta hefur gegnið bara mjög vel.
Þegar ég byrjaði að skjóta þá var ég með rétthenda remington pumpu (sem ég á enn), og fannst það bara allt í lagi, nema að öryggið er öfugt við það sem er á örvhentri byssu og það truflaði mig alltaf.

Svo fékk ég mér örvhenta Benelli Super Black Eagle II (sem er besta byssa í heimi :D ) og þá var eins og allt hafi smollið saman, öryggið a réttum stað og skeptishalli og sveigja eins og sniðið fyrir mig.

Svo þegar ég var búin að skjóta úr henni í töluverðan tíma þá prufaði ég Remman aftur og þá fór ég að taka eftir púður ögnum sem flugu framhjá í sjónlínunni hjá mér og það var frekar pirrandi, sem mér fannst frekar skrýtið því ég hafði aldrei spáð í þessu áður en ég fékk SBEII, kannski vegna þess að ég hafði ekki reynslu af neinu öðru.

Varðandi riffilinn þá hef ég aldrei átt "stóran" riffil áður, en ég hef nokkrum sinnum fengið að skjóta úr hjá vinum og kunningjum og ég fann það strax að ég myndi vilja fá mér örvhentan riffil þegar ég myndi loksins fá mér riffil.

Öryggið hefur reyndar ekkert að segja á rifflinum, það er bara í miðjum riffli og er staðsett fyrir framan gikkinn.
Kosturinn við að hafa riffilinn örvhentan er eins og Icefox nefnir, ef maður þarf að hlaða hratt þá er þetta aljgört MÖST (allavega fyrir mér). Ég líka bara svo ótrúlega mikið örvhentur að það jaðrar við áráttu ;) ...... svo er þetta líka bara flott og gaman að vera með eitthvað öðruvísi en allir hinir.
En ef þú getur komist yfir örvhentan riffil eða haglara þá skalltu ekki hika við það og skella þér á það, þú átt ekki eftir að sjá eftir því :D

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 24 Jan 2013 21:06
by jon_m
Einmitt, ég hef ekki prófað skógarveiðina og hafi ekki áttað mig á að þetta gæti skipt svona miklu máli. Eins og Benjamín segir þá er lítið mál að hlaða rétthentan riffil þegar maður situr við borð eða liggur með riffilinn á tvífæti. Ætli maður verði ekki bara að fá að prufa þetta til að sannreyna.

Ég er sjálfur með örvhenta Benelli Duca di Montefeltro og gæti ekki hugsað mér að skipta aftur yfir í rétthenta haglabyssu. http://www.benelli.it/en/products/fucil ... ro-mancino

En ég get þá haldið áfram að láta mig langa í örvhentan Sauer fyrst að það er ekkert mál að venjast því að skipta yfir og það er nauðsynlegt í skógarveiðina. :D

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 24 Jan 2013 21:20
by Veiðimeistarinn
Jón ég held að það sé líka hægt að fá Sako 85 og kannski líka 75 típuna fyrir örfhenta :D
Jói Vill veit það allavega, hann er nýbúinn að vera þarna úti í Finnlandi hjá Sako sjálfum.

Vel á minnst fyrst verið er að tala um Sako, ég veit að einkanúmerið SAKO er laust 8-)

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 06 Mar 2013 21:35
by GummiValda
Sælir.
Gaman að sjá fallegar byssur.
Hér er einn sem ég er að dunda mér við. Smíðaði skeptið úr áli. Á eftir að smíða kinnpúða og handfangið úr spýtu. Stiller predator V lás. cal 6xc krieger hlaup 1 á 8" tvist.
DSC00090.JPG
DSC00090.JPG (117.2 KiB) Viewed 7638 times

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 06 Mar 2013 21:51
by Gísli Snæ
Já sæll vinur. Þetta er glæsilega gert - alveg magnað. Menn sem geta gert svona eiga allt hrós skilið. Núna er bara að fara að fjöldaframleiða fyrir okkur hina :)

Hvernig er skeftið málað svart? Sprautað, duracoat eða eitthvað annað?

Stóru rifflarnir mínir eru nú hér á fyrstu síðunni en eftir breytingar lítur Tikkan svona út í dag. Endanlega mynd, nema ég gæti svo sem skipt um hlaup einhvern daginn (samt áfram í 260 Rem).

Image

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 06 Mar 2013 21:59
by Bc3
Glæsilegt hjá þêr! Mjöög flott skepti en er lásin frí fljótandi? Er hann bara festur við skeptið fremst á hlaupinu a svona barrel block?

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 06 Mar 2013 23:07
by GummiValda
Skeptið er rafhúðað hjá Álverinu í Garðabæ. Það er bæði hægt að festa hann í skeptið með hefðbundnum hætti og svo í hlaupklemmuna, þá er lásinn frífljótandi. Ég bíð í ofvæni eftir betri tíð svo ég geti farið að gera einhverjar tilraunir með þetta.

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 07 Mar 2013 09:50
by E.Har
Frábær smíði stefnir í eðalgræju :-) :P Gummi Valda (Húni) :twisted:
Er þetta ástæðan fyrir að þú ert að fækka í byssuskápnum eða er það Afríkutúrinn :mrgreen:

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 07 Mar 2013 10:44
by GummiValda
hehe.. Er að spá í að fá mér GRS skepti til skiptanna á þennan, þetta er aðeins of þungt að bera fyrir svona öldung eins og mig ;o) þarf að smíða mér annað léttara úr áli. Alltaf gaman að smíða....

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 07 Mar 2013 18:41
by Magnus
Flott byssusafn hjá Ingvari. Ég öfunda þig :mrgreen: Væri gaman að vita hvernig sjónauka þú ert með á þeim. Það hljóta að vera nokkrar milljónar sem þú hefur fjárfest þarna.

Re: Verkfæri manna (myndaþráður)

Posted: 07 Mar 2013 20:30
by konnari
Magnus wrote:Flott byssusafn hjá Ingvari. Ég öfunda þig :mrgreen: Væri gaman að vita hvernig sjónauka þú ert með á þeim. Það hljóta að vera nokkrar milljónar sem þú hefur fjárfest þarna.
Takk fyrir það ! Ég var nú svo heppinn að kaupa megnið af safninu fyrir hrun :D
En ég er með þrjá schmidt&bender, tvo Zeiss victory diavari, einn nightforce og bushnell elite á 22LR.