Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Jón Pálmason »

Sælir/ar.

Veit að margir af ykkur hafa áhuga á refaveiðum og öllu því sem tengjast þeim.
Langar því að mynnast á refaskyttu af gömlu kynslóðinni, sem að mínu mati mætti gera hærra undir höfði. Að minnsta kosti má minning hans ekki falla í dá.
Refaskyttan hét Gunnar Einarsson og kenndi sig við Bergskála á Skaga. Hann var fæddur árið 1901 og andast árið 1959. Lenti í tveimur alvarlegum slysum tengdum skotvopnum á lífsleiðinni, en hélt ótrauður áfram starfi refaskyttunnar.
Var heiðraður af Búnaðarfélagi Íslands árið 1956, en þá hafði hann fellt um 1800 refi og 300 minka.
Vil ekki segja þeim ykkar sem ekki þekkja sögu Gunnars, of mikið, en bendi ykkur á frásögn af honum í Skagfirðingabók-riti sögufélags skagfirðinga. Hefti nr. 18 sem kom út árið 1989.
Er sannfærður um að ykkur leiðist ekki að lesa um kappann.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Spíri »

Eru frásagnir um Gunnar aðgengilegar á netinu? Mjög gaman að lesa frásagnir af veiðiköppum fortíðarinnar.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Jón Pálmason »

Sæll Þórður.

Veit ekki hvort efnið er aðgengilegt rafrænt. Skal athuga það fyrir þig.
Geri ráð fyrir að þessar bækur séu til á öllum betri bókasöfnum landsins.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég reyndi að fara inn á timarit.is og leita en fann bara ritfrétt úr Morgunblaðinu um 18 árgang Skagfirðingabókar þar sem sagt er frá frásögninni af Gunnari.


Það er ýmsan fróðleik að finna á timarit.is
Ég fór að gamni mínu eftir ábendingu frá Gunnari Þórarni Grettissyni, inn á timarit.is og sló inn leitarorðin ,,refaveiðar Jóhann Halldórsson", þá kom þessi síða upp með fullt af fróðleik um refaveiðar úr ýmsum tímaritum frá ýmsum tímum.

http://timarit.is/search_init.jsp?lang= ... ld%F3rsson
og ,,refaveiðar"
http://timarit.is/search_init.jsp?lang= ... avei%F0ar+

Þegar farið er að lesa ákveðnar greinar í tímaritunum, til dæmis, ANDVARI - 1900, þá kemur upp stika lengst til vinstri á skjánum þar sem stendur grein ýta á örina við Velja og smella á Um refaveiðar.
Síðan flettir maður í stikunni fyrir ofan þar sem stendur Blaðsíða smella á örina hægra megin við blaðsíðutalið 127 í þessu tilfelli.
Þarna er hafsjór af fróðleik um refaveiðar.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Jón Pálmason »

Sæll Sigurður.

Takk fyrir þínar upplýsingar.
Varðandi Skagfirðingabók, þá er ég búinn að senda inn fyrirspurn og bíð eftir svari.
Hef þó grun um að ekki sé hægt að nálgast bókina rafrænt.
Þeir sem nenna á bókasafnið verða ekki fyrir vonbrigðum með þáttinn um Gunnar.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Jón Pálmason »

Sælir/ar.

Var að fá póst varðandi það að ekki er hægt að nálgast þessar bækur rafrænt.
Þær eru ennþá fáanlegar og til sölu hjá Sögufélagi skagfirðinga.
Hef grun um að eldri bækurnar fáist á mjög lágu verði.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
User avatar
hpþ
Posts: 38
Joined: 24 Aug 2012 12:06

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by hpþ »

Einhvern tímann var ég að leita að efni tengdu refaveiðum og rakst þá á síðu sem heitir ismus.is. Efst í horninu hægra megin er leitarvél, skrifið refaveiðar og þá koma upp þó nokkrar gamlar upptökur af viðtölum við gamla grenjakalla og aðra því tengdu allt aftur á miðja síðustu öld, lofa ykkur góðri skemmtun. ;)
Last edited by hpþ on 01 Feb 2013 00:13, edited 1 time in total.
Kveðja,

Halldór P. Þrastarson
halldor@gks.is
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Spíri »

Takk fyrir þetta Jón, mun hafa samband við sögufélagið :)
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Garpur
Posts: 88
Joined: 26 Mar 2012 17:50
Location: Skagafjörður

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Garpur »

Sælir, hérna er fín frásögn eftir Gunnar. Á þessum tíma var nánast árlega dýrbítur í Tindastól eða á Reykjaströndinni og eitt vorið, ég held að það sé vorið fyrir þessa frásögn, voru nánast allir vopnfærir menn fengnir til að leita í Stólnum. Eftir að Múkkinn fór að sjást minnkaði þessi barátta við dýrbýta, allavega þarna.

http://timarit.is/view_page_init.jsp?is ... FDrb%FDtur
Kv. Garðar Páll Jónsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Veiðimeistarinn »

Takk fyrir þetta, þetta er frábær frásögn, virkilega gaman að lesa þetta.
Ég þekki vel tilfinninguna sem Gunnar lýsir undir lok frásagnarinna þegar rebbi var fallinn ,,Ég settist niður hjá hinumfallna lambabana og naut þess að hafa sigrað".
Þessi frásögn er ekta :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Spíri »

Var að panta mér eintak og kostar bókin 1500kr með sendingarkostnaði sem er gjöf en ekki gjald :lol:
Kærar þakkir fyrir að vekja áhuga minn á þessu Jón :)
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Re: Refaskyttan Gunnar á Bergskála.

Unread post by Jón Pálmason »

Sæll Þórður.

Ekkert að þakka, mín var ánægjan.
Við erum hérna jú til að miðla af fróðleik.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
Post Reply