Page 1 of 1

Grenjaskyttan.

Posted: 03 Feb 2013 11:45
by Spíri
Í dag hefði hann afi minn orðið eitthundrað ára hefði hann lifað, en hann var grenjaskytta í Álftaneshrepp á mýrum um áraraðir og set ég hér mynd af gamla er hann var að koma af grenjaleit á milli 1950-60. Þess skal getið að vopnið sem hann er með á öxlinni er Browning A5 sem er núna í minni eigu :)

Re: Grenjaskyttan.

Posted: 03 Feb 2013 12:36
by Veiðimeistarinn
Takk fyrir þetta, alltaf gaman af svona, átt þu ekki mynd af byssunni til að setja hérna inn?

Re: Grenjaskyttan.

Posted: 03 Feb 2013 16:31
by gylfisig
Magnað.
Og líka magnað hvað gömlu kallarnir voru góðir veiðimenn, og hve miklum árangri þeir náðu, oft með afar frumstæðum tækjum. Rifflar voru frekar sjaldséðir, og þeir fáu sem voru í notkun, myndu tæplega teljast brúkhæfir til refaveiða nú til dags.
Ég á einmitt Browning A-5 byssu líka, en hún er nú frekar nýleg, keypt ´68 og hefur aldrei slegið feilpúst.
Reyndar á ég sendibréf frá Theodóri Gunnlaugs. refaskyttu, þar sem hann skrifar pabba mínum heitnum, og fer þess á leit við hann, að útvega " 5 skota sjálfhlæðu með listagóðu langdrægu hlaupi " því það myndu verða heppilegar byssur til tófuveiðanna. Oft þurfti kallinn að hafa hraða hönd við að koma öðru skoti í Húskvörnina sína, þegar þörf var á öðru skoti á þessum veiðum. Þá var víst eins gott að nýta færið vel með þessu eina skoti sem var í byssunni :D
Ég setti fyrir 2-3 árum sögur af Theodóri inn á Hlað, og á þær reyndar til í tölvuformi ennþá, ef einhvern skyldi vanta það efni.

Re: Grenjaskyttan.

Posted: 03 Feb 2013 17:51
by Veiðimeistarinn
Gylfi, það væri gaman ef þú birtir þessar sögur aftur hérna inni á spjallinu, það er upplagt að birta þær undir þræðinum Fróðleikur og skemmtun sem er hérna rétt fyrir neðan, sá þráðaur hentar prýðilega til þess háttar birtinga.

Re: Grenjaskyttan.

Posted: 03 Feb 2013 17:58
by gkristjansson
Gylfi,

Endilega skelltu inn þessum sögum af Theódóri. Ég var að enda við a lesa bókin hans "Á refaslóðum" virkilega skemmtileg lesning.

Re: Grenjaskyttan.

Posted: 06 Feb 2013 19:38
by Spíri
Hér kemur mynd af Browningnum mínum, mér skilst að hún sé árgerð 1937 en það má eflaust sannreyna það með auðveldum hætti. Ég fékk þessa byssu fimmtán ára gamall eftir að afi var gengin og mun einhver af mínum afkomendum fá hana eftir minn dag ;) Þess skal getið að ég lét bláma hana fyrir ca fimmtán árum og þó að meðferðin hafi ekki verið uppá marga fiska hjá afa er hún nánast eins og ný utan rispur á skeftum.

Re: Grenjaskyttan.

Posted: 06 Feb 2013 20:17
by Jón Pálmason
Sæll Þórður.

Til lukku með glæsilegan grip og nauðsynlegt að halda sögunni á lofti.
Ertu búinn að fá Skagfirðingabók í hendur og ef svo er, hvernig líkaði þér frásögnin af Gunnari?

Re: Grenjaskyttan.

Posted: 06 Feb 2013 20:47
by Spíri
Skagfirðingabók kom inn um bréfalúguna í fyrradag og er þetta ákaflega skemmtileg lesning.

Re: Grenjaskyttan.

Posted: 06 Feb 2013 21:16
by Jón Pálmason
Sæll Þórður.

Átti von á því.