Page 1 of 3
Útdráttur
Posted: 07 Feb 2013 02:23
by ísmaðurinn
Hvernær verður útdrátturinn á hreidýraleyfunum??
Re: Útdráttur
Posted: 07 Feb 2013 09:35
by jon_m
Laugardaginn 23. febrúar, kl. 14:00
Re: Útdráttur
Posted: 07 Feb 2013 13:48
by ísmaðurinn
Takk kærlega fyrir þetta Jón

Re: Útdráttur
Posted: 09 Feb 2013 20:30
by jon_m
Það var ekkert, nú er bara spurning hvort að sú dagsetning standist hjá UST.
Re: Útdráttur
Posted: 17 Feb 2013 11:14
by gkristjansson
Veit einhver hvort það verði bein útsending í gegnum netið af úrdrættinum, eins og var í fyrra?
Re: Útdráttur
Posted: 17 Feb 2013 17:57
by jon_m
Já það verður bein útsending eins og verið hefur sl. ár.
kveðja
Jón Magnús
wwww.facebook.com/hreindyr/
Re: Útdráttur
Posted: 19 Feb 2013 19:29
by jon_m
Re: Útdráttur
Posted: 21 Feb 2013 13:37
by Guðni Einars
Mbl.is greinir frá því að uppundir 700 færri umsóknir hafi borist nú um hreindýraveiðileyfi en í fyrra. Nú eru þær tæplega 3.600 en voru 4.270 í fyrra, samanber
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... eidileyfi/.
Ég var að velta því fyrir mér hvort þessi munur á fjölda umsókna sé einhver mælikvarði á kennitölusöfnun undanfarinna ára. Hvað segja menn um það?
Re: Útdráttur
Posted: 21 Feb 2013 14:08
by konnari
Með gamla fyrirkomulaginu þ.e. þegar hægt var að sækja beint um hreindýr þegar lokið var við veiðiskýrsluna þá sóttu nokkur hundruð manns um dýr sem ætluðu sér aldrei í hreindýr. Sem svo kostaði bara fyrirhöfn og vesen við endurúthlutun á leyfum. Það vita það allir sem vilja að það eru engir 4000-4500 hreindýraveiðimenn á íslandi !.....Í besta falli eru þeir 2000-2500 (að mínu mati). Kennitölusafnarar eru einhver X tala sem er erfitt að segja til um. Nýja fyrirkomulagið er að mínu mati til mikilla bóta og minnkar fyrirhöfn og vesen við endurúthlutun. Eins hefur skotprófið örugglega fælt marga frá.
Re: Útdráttur
Posted: 21 Feb 2013 17:50
by Bowtech
Mér barst það til eyrna að líkur á flestum svæðum að fá dýr væri í kringum 18-25%. En það verður gaman að sjá raunlíkur

Re: Útdráttur
Posted: 21 Feb 2013 22:40
by TotiOla
Bowtech wrote:Mér barst það til eyrna að líkur á flestum svæðum að fá dýr væri í kringum 18-25%. En það verður gaman að sjá raunlíkur

Skv. tölfræðinni ættu meðaltalslíkur að vera um 34% en hitt getur svo sem staðist ("á flestum svæðum") ef t.d. fáir sóttu um á svæði 7. En um leið þá rjúka líkurnar upp þar
Það verður gaman að sjá þetta á lau.

Re: Útdráttur
Posted: 22 Feb 2013 02:22
by Morri
Sælir
Já það er óhætt að segja að breytt fyrirkomulag og breyttar reglur frá því veiðimönnum bauðst síðast til að sækja um viðileyfi á hreindýr hafi breytt nokkru.
Það er nokkuð ljóst að töluverður fjöldi sækir ekki um dýr af því að umsóknin kom ekki strax í framhaldi af skilum á veiðitölum og umsókn um veiðileyfi fyrir komandi ár.
Það sem mest fælir frá að ég held, er skotprófið. Gæti trúað að það svona 90%/10% skipting. Margir kolféllu á prófinu í fyrra og sumir ýtrekað. Aðrir þorðu ekki að sína hvað þeir gátu og vildu ekki fara í prófið, skiluðu því inn sínu leyfi. ( ég veit um 2 dæmi þess, og er þau eru örugglega miiikið fleiri.)
Einhverjir fóru ekki í prófið til að mótmæla því að það var sett á eftir að menn voru búnir að borga staðfestingargjaldið.
Kallar sem skutu einu skoti í 2ltr kókflösku á 100m helgina áður en þeir áttu að fara til veiða ( og ekkert annað á árinu) og feilskutu svo á dýrið sitt á 200m heyra nú vonandi sögunni til.
Ps. er samt ekki ánægður með skotprófið eins og það er í dag, ekki nógu vel staðið af því hvernig því var komið á. Hefði verið betra að fresta því um eitt ár og gefa öllum hagsmunaaðilum kost á því að segja álit sitt og komast að niðurstöðu sem svo væri endurskoðanleg að ári með tilliti til galla.
Re: Útdráttur
Posted: 23 Feb 2013 14:12
by ísmaðurinn
sælir drengir átti ekki útdrátturinn að byrja kl 14??
Re: Útdráttur
Posted: 23 Feb 2013 14:33
by Árni
Var seinkað til 14:30 en kl er nú þegar orðin meira en það...
Re: Útdráttur
Posted: 23 Feb 2013 16:22
by gylfisig
Ég fékk tarf á sv. 7 annað árið í röð. Heppinn !
Re: Útdráttur
Posted: 23 Feb 2013 16:42
by ísmaðurinn
Til lukku með það meistari Gylfi... Fékk sjálfur tarf á 1

Re: Útdráttur
Posted: 23 Feb 2013 16:56
by Björninn
Tuddi á svæði 8!

Re: Útdráttur
Posted: 23 Feb 2013 17:04
by Aron Kr Jónsson
Ég fékk Tarf á svæði 9

Re: Útdráttur
Posted: 23 Feb 2013 17:52
by kúla
Fekk kú á sv 1 nú er spurning um að fara að fá sér góðan hest til að þvælast um norður
heiðarnar

Re: Útdráttur
Posted: 23 Feb 2013 20:13
by karlguðna
Tarf svæði 5.