Page 1 of 1

TS: Öryggisflögg

Posted: 08 Feb 2013 09:35
by Dui Sigurdsson
Í ljósi nýrra reglna hjá ISSF og STÍ
http://bit.ly/YMF8hA
Öryggisflögg. Notkun á öryggisflöggum verður nú skilyrt til að sýna að byssur séu
óhlaðnar ef um er að ræða hálfsjálfvirkar haglabyssur, skammbyssur og rifla

Með flögg til að setja inn í hlaup í gegnum láshúsið til að sýna fram á að vopn sé óhlaðið.
Passar í nær öll skotvopn, er frekar þröngt að setja í .22LR sökum þess hve stutt láshúsið er, væntanlega hægt að stytta plastið til að það passi betur í .22LR.

Plastið er þannig að það hefur engin áhrif á hlaupið og rispar það ekki.

Image

Image

1stk 700kr/stk
2stk 600kr/stk
3+stk 500kr/stk

Dúi Sigurðsson
lotus@eldhorn.is

Re: TS: Öryggisflögg

Posted: 09 Feb 2013 10:41
by 257wby
Sé að þú hefur verið í sama veseninu með pístólugripið á Marocchi og ég :)

Kv.
Guðmann

Re: TS: Öryggisflögg

Posted: 09 Feb 2013 10:50
by Dui Sigurdsson
Já tók mig smá tíma að fatta hvað væri nákvæmlega að ekki funkera rétt, settist svo eina kvöldstund með smá trefjagler og góða skapið og þetta er allt önnur byssa núna.

-Dúi

Re: TS: Öryggisflögg

Posted: 09 Feb 2013 11:28
by 257wby
Ég er með Techno byssuna frá þeim. Var lengi að velta fyrir mér hvort og hvernig ég ætti að breyta orginal skeptinu,endaði svo á að smíða nýtt á hana.

Held að Browning Maxus sé eina semi-auto byssan á markaðnum sem er með almennilegu skepti :)

Kv.
Guðmann

Re: TS: Öryggisflögg

Posted: 09 Mar 2013 11:20
by maggragg
Þetta er snilld. Ætli ég taki ekki nokkur svona, og einnig fyrir skotfélagið til að nota. Verð í bandi.

Re: TS: Öryggisflögg

Posted: 13 Mar 2013 21:54
by Dui Sigurdsson
Hentu endilega skeyti á mig og við getum rætt málið :)