Page 1 of 1
Seríal númer á sjónaukum
Posted: 10 Feb 2013 22:26
by atlimann
Sælir,
ég er mað Zeiss riffilsjónauka og mig langaði til að athuga hvenær hann er framleiddur, ég er búin að reyna að googla og leita á netinu en finn ekki það sem ég leita af.
Er ekki til einhver síða þar sem maður getur slegið inn seríalnúmerið og séð hvenær sjónaukinn er fæddur

Re: Seríal númer á sjónaukum
Posted: 11 Feb 2013 09:05
by konnari
Fylgdi ekki ábyrgðarskírteinið með ? Það er amk 10 ára ábyrgð á Victory Diavari línunni ef ekki meira !
Re: Seríal númer á sjónaukum
Posted: 11 Feb 2013 09:52
by E.Har
Lífstíðarábirgð.
Annars veit ég ekki hvort hægt sé að googla þetta

Re: Seríal númer á sjónaukum
Posted: 11 Feb 2013 09:58
by atlimann
Ég keypti riffilinn og sjónaukan saman notað, fylgdi ekkert með
Re: Seríal númer á sjónaukum
Posted: 11 Feb 2013 10:41
by gkristjansson
Spurning hvort þú getir ekki bara sent inn fyrirspurn til Zeiss:
http://sportsoptics.zeiss.com/company/c ... ntact.html
Bara hugmynd....
Re: Seríal númer á sjónaukum
Posted: 11 Feb 2013 11:09
by konnari
Atli !
Hafðu samband við fyrri eiganda....hann á að eiga skírteinið ! Það er plastkort (hvítt og með bláum stöfum) eins og debetkort í laginu
Svo fylgdu verkfæri og ábyrgðarskírteini líka með rifflinum...fékkstu það ekki örugglega ?

Re: Seríal númer á sjónaukum
Posted: 11 Feb 2013 18:55
by atlimann
konnari wrote:Atli !
Hafðu samband við fyrri eiganda....hann á að eiga skírteinið ! Það er plastkort (hvítt og með bláum stöfum) eins og debetkort í laginu
Svo fylgdu verkfæri og ábyrgðarskírteini líka með rifflinum...fékkstu það ekki örugglega ?

Ég veit að hann keypti riffilinn nýjan og ég fékk ekkert með honum, en sjónaukan veit ég að hann keypti notaðan, stakan, og ég fékk ekkert með honum heldur, allavegva enginn skírteini

Re: Seríal númer á sjónaukum
Posted: 11 Feb 2013 22:10
by konnari
Þig vantar þessi verkfæri t.d. til að taka skeptið af rifflinum eða skipta um hlaup ! Nauðsynlegt fyrir alla Sauer eigendur

Re: Seríal númer á sjónaukum
Posted: 12 Feb 2013 23:54
by atlimann
konnari wrote:Þig vantar þessi verkfæri t.d. til að taka skeptið af rifflinum eða skipta um hlaup ! Nauðsynlegt fyrir alla Sauer eigendur

Ég hafði samband við fyrri eiganda og það stóð ekki á svörum, hann var með þetta í skápnum hjá sér og pappírana líka.
En hann keypti sjónaukan notaðan og á ekkert yfir hann enn hann benti mér á að Hlað-verjar gætu flett þessu upp og líklega útbúið nýtt skírteini, sjáum hvernig það gengur.
Re: Seríal númer á sjónaukum
Posted: 13 Feb 2013 09:20
by konnari
atlimann wrote:
Ég hafði samband við fyrri eiganda og það stóð ekki á svörum, hann var með þetta í skápnum hjá sér og pappírana líka.
Snilld !
