Page 1 of 1

Þar sem hreindýr halda sig

Posted: 11 Feb 2013 09:11
by Björn R.
Góðan dag.
Ég er nú ekki tíður penni hér en hef eina spurningu til þeirra leiðsögumanna sem þekkja. Þannig er mál með vexti að ég fór í fyrra á svæði 3, Loðmundarfjörð sem farþegi með öðrum sem átti hreindýraleyfi, gríðarlega fallegur fjörður Loðmundarfjörðurinn. Af öðrum fjöllum ólöstuðum varð ég næstum dolfallinn að sjá á leið minni Hvítserk. Hvílíkt fjall frá réttu sjónarhorni! Þar áður hafði ég verið sem skytta og eða farþegi, hér og þar á svæði 2

Nú langar mig til að sækja um svæði 3 aftur en í ljósi frétta þá heyrist mér að dýrin séu að færa sig yfir á 6 og 7 vegna beitar. Á maður að hlaupa eftir svona fréttum eða er þetta kannski engin frétt og nóg að hafa á svæðum eins og 2 og 3

Allt er þetta nú sagt og pælt í þeirri von um að vinna í lottoinu góða seinna í mánuðinum :?

Með kveðju
Björn Róbert Jensson

Re: Þar sem hreindýr halda sig

Posted: 11 Feb 2013 09:51
by E.Har
Stór hluti dýranna af 2 flutti sig niður á firði. 6 og 7.
svæði 3 og 4 eru bara svipuð og þau hafa verið.
Ef þig langar að veiða þar þá sækirðu um þar :D
Falleg svæði og gott að eiga góða gönguskó og fitt vini sem gormenn. :mrgreen:

Getur aðveg bætt 5 við í þessa upplifun, fátt skemtilegra eða meira púl en að fara í Sandvík eftir tarfi með mökk af burðarmönnum :-) Bootcamp er fyrir kellingar miðað við Sandvíkurtúr :twisted:

8 og 9 eru líka forvitnileg.
Annars er Ísland bara æði :roll:

Re: Þar sem hreindýr halda sig

Posted: 11 Feb 2013 10:03
by Björn R.
Gönguskó á ég ágæta og vinir mínir flestallir með um það bil rétt mittismál. Ég sæki þá sæll og glaður um nr 3
Mig minnir einmitt í fyrra að þá ókum við af stað frá Egilsstöðum um kl 08:00 og skriðum heim með tarfinn einhverntímann eftir miðnættið. Erfitt var það en ferðin var eftirminnileg fyrir vikið
Kærar þakkir fyrir skjót svör

Með kveðju
Björn Róbert Jensson