Page 1 of 1

veiði þættir

Posted: 20 Feb 2013 16:04
by ísmaðurinn
Sælir drengir ég er að reyna að finna einhverja þætti inni á deildu um annað hvort skot eða stangveiði en finn bara ekkert nema arthur oglesby!! vitið þið um einhverja þætt þarna sem maður getur skoðað..
Með bestu kveðju Bergþór

Re: veiði þættir

Posted: 20 Feb 2013 23:03
by baikal

Re: veiði þættir

Posted: 21 Feb 2013 01:31
by Stebbi Sniper
Þetta er dæmi um þráð sem er ekki til fyrirmyndar, ef menn eru að ná sér í höfundaréttarvarið efni á netið þá finnst mér það lágmarks kurteisi að halda því fyrir sig eða ræða það á öðrum vettvangi.

Á ljosmyndakeppni.is er öllum þráðum þar sem menn eru að reyna að nálgast ílla fengið efni eytt og mér finnst að þið ættuð að sýna Magga og félögum í skotfélaginu Skyttum þá virðingu að vera ekki að ræða þetta hér.

Re: veiði þættir

Posted: 21 Feb 2013 13:05
by baikal
Stebbi, ef þú hefur ekkert að segja, þá hljómar það svona,
http://www.youtube.com/watch?v=5nt-1kLMp7E
ps þeir sem opna þennan link gera það á eigin ábyrgð. :twisted:

Re: veiði þættir

Posted: 21 Feb 2013 13:12
by TotiOla
baikal wrote:Stebbi, ef þú hefur ekkert að segja, þá hljómar enska útgáfan hljóðar svona, http://www.youtube.com/watch?v=toxIiMWQgKA
ps þeir sem opna þennan link gera það á eigin ábyrgð. :twisted:
Baikal. wrote:"Vandaðu orð þín, vegna þess að orð verða aldrei til baka tekin."
:roll:

Re: veiði þættir

Posted: 21 Feb 2013 13:50
by baikal
Þetta er alveg rétt hjá þér Tóti, maður á að þegja ef maður hefur ekkert að segja, en þetta átti að vera smá djók til Stebba, er búinn að laga linkinn, er þessi ekki betri.

Re: veiði þættir

Posted: 21 Feb 2013 13:56
by TotiOla
Eitt af mínum uppáhalds ;) Hann er þokkalegur á nikkunni þessi.

Re: veiði þættir

Posted: 21 Feb 2013 14:11
by TotiOla
En svona án allra leiðinda og bara til upplýsingar þá hafa allir notendur spjallborðsins samþykkt eftirfarandi skilmála.
Þú samþykkir að senda aldrei inn ólöglegt efni, dónaskap, kynþáttahatur, ógeðslegt, ærumeiðandi, hótanir eða kyn-tengt efni, eða neitt álíka sem gæti brotið lög viðkomandi lands(Ísland), lands þar sem spjallborðið er hýst (Ísland) eða æru lesenda.