Page 1 of 1

Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 20 Feb 2013 19:07
by Bowtech
Veit einhver hvar hægt er að finna 3-D og 2-D teikningar af riffilskepptum.

Sem væri svo hægt að smíða eftir...

Re: Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 20 Feb 2013 19:42
by iceboy
Þú getur fengið að skoða og mæla skeptið mitt ef þú vilt, ef þú er á höfuðborgarsvæðinu,
ég á aukaskepti sem er reyndar ófræst en það er ekkert mál að mæla eftir því ef þú vilt, það er ef þér líst eitthvað á það skepti.

Bjallaðu á mig ef þú vilt, er í síma 8578769.
Ég kannski spyr þig aðeins um boga og þessháttar í staðinn

Re: Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 21 Feb 2013 01:41
by Stebbi Sniper
Sæll Indriði

Þú ættir kannski að prófa að heyra í Halla Einars á Álftanesinu, hann á svona græju sem hann getur gróffræst (klónað) skepti fyrir þig, sem þú getur svo full unnið sjálfur.

Hann á að ég held eintak af bæði vinstri og hægtihandar Walter keppnisskepti sem eru bara alveg nokkuð flott skepti. Myndi örugglega spara þér hellings vinnu, ef það er það sem þú vilt!

Síminn hjá honum er: 895-9545

Re: Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 21 Feb 2013 07:41
by iceboy
Um að gera að tala við Halla, hann fræsti fyrir lásnum og hlaupinu á mínu skepti, ég mætti bara með gamla skeptið af rifflinum nýja skeptið, kvöldið eftir þá var þetta klárt. Svo vara bara að fara heim að pússa :-)

Re: Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 13 Mar 2013 21:35
by Dui Sigurdsson
Hvað tók Halli fyrir að fræsa fyrir láshúsinu og hlaupinu?

Re: Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 13 Mar 2013 22:32
by iceboy
25 kall

Re: Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 14 Mar 2013 00:56
by Dui Sigurdsson
Er það ekki rétt hjá mér að Halli er með stock duplicator?
Fann þetta á instructibles ef einhver er til að föndra http://www.instructables.com/id/Dremel- ... er-CNC-Ro/

Re: Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 14 Mar 2013 09:53
by iceboy
jú það er rétt.

Ég lét hann hafa gamla skeptið og það nýja og hann fræsti innan út skeptinu með græjunni.
Hann hafði eitthvað lítið að gera þegar ég kom með þetta , ég kom með þetta um kl 20 og hann hringdi í mig um hádegið daginn eftir og var þá búinn að þessu

Re: Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 19 Mar 2013 00:51
by Atli S
Indriði.

Ertu að hugsa um hefðbundið skepti eða eitthvað meira tactical eins og PDC custom eða XTR skeptin? Það er eitthvað til inná grabcad veit ég. Bæði fyrir solidworks og inventor.

Re: Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 19 Mar 2013 07:33
by Bowtech
Ég er að hugsa um skepti sem er í þessum dúr, en samt með öðrum breytingum og útliti. Ætli ég endi ekki bara á því að teikna þetta sjálfur upp.

Image

Re: Teikningar af riffilskeptum!

Posted: 19 Mar 2013 07:45
by Dui Sigurdsson
Ég var að gæla við það um daginn einmitt að gera nýtt skepti á Litlaljót.

Gróflega byggt á AICS
Image