Víða hef ég vegi farið...
Posted: 26 Feb 2013 11:17
Þannig er mál með vexti, að vegna vinnu minnar þá þarf ég að hafa samband við hina ýmsu skrautfugla þessa lands og nú í bítið hafði dottið út farsímasendir í Hrífunesi. Þá var ekki um annað að ræða en að fara í local símaskránna hjá okkur farsímastrákunum, sem er excel skjal á sameiginlegu drifi þar sem við höldum utan um símanúmer hjá þeim einstaklingum sem við getum þurft að hafa samband við vegna hinna ýmsu mála...
Þessi skrá er nú ekki mikið notuð, en engu að síður nokkuð gagnleg þegar svo ber undir. Það sem vakti athygli mína þegar ég renndi augum yfir hana í leit að símanúmerinu hjá þeim ágæta manni sem hefur með Hrífunes að gera, að í henni eru 3 ágætir Jökuldælingar, kannski ekki allir jafn þekkrir en athugasemdirnar við nöfn þeirra eru samt nokkuð lýsandi fyrir þann anda sem ríkir á mínum vinnustað. Hugsanlega er farið frjálslega með staðreyndir og mönnum kannski gefnir titlar af handahófi sem þeir hafa ekki endilega unnið sér inn. En ég læt þetta flakka hér inn og vona að einhver hafi gaman af smá innanhús húmor hjá Símanum...
Hrólfsstaðir Jökuldal - Guðmundur (frændi) S: 471-**** / Bóndi og löggildur ullarmatsmaður. (Áður hreppstjóri og formaður sóknarnefndar.)
Merki Jökuldal - Stefán & Solla S: 471-**** / Bóndi og veghefilsstjóri einnig formaður kvenfélagsins. Sendum honum eitt sinn Koníak fyrir afburaðar störf í þágu almenns símasambands í Jökuldal, sem fólst aðalega í því að draga nokkra starfsmenn Símans og Mílu upp úr forarpitti fyrir ofan bæinn hjá sér.
Kelduárveita - Sigurður Aðalsteinsson S: 471-1070 / Veiðimaður, bóndi og forsöngvari í karlakór Jökuldæla.
Ekki veit ég nú hvernig Sigurður Aðalsteinsson rataði inn í þessa símaskrá sem forsvarsmaður fyrir Kelduárveitu, hann getur kannski svarað því sjálfur. Þarna vantar líka inn annan mætan íbúa á Jökuldalnum Vilhjálm á Skjöldólfsstöðum, sem hefur unnið frækin afrek á sviði hreindýraveiða og póstferða um Jökuldalinn. En við erum einmitt með sendir upp á Skjöldólfsstaðahnjúk.
Þannig er líka athyglisvert að leiðir okkar Sigurðar hafa sennilega krossast talsvert oftar en hann grunar þar sem ég er búinn að þvælast um öll fjöllin í hans heimasveit á þeim 13 árum sem ég hef unnið við uppsetningar og viðhald á farsímasendum hjá Símanum. Ég man þó ekki eftir því að hafa þurft að hafa samband við hann vegna Kelduárveitu.
Þar inn í eru eitthverjir tugir ferða upp á Háurð, bæði yfir vaðið á Hrafnkelu fyrir neðan Háurðina og innfyrir Aðalból og þar upp hlíðina og aftur út fjallið í öllum mögulegum veðrum á öllum mögulegum tímum árs, til þess eins að Siggi geti horft á sjónvarp, talað í síman og komist á netið... einnig hef ég keyrt í eitthver skipti upp úr Hrafnkelsdal og þaðan sem leið liggur inn í Snæfell bæði að vetri og sumri.