Biðlistarnir

Allt sem viðkemur hreindýrum
Árni
Posts: 145
Joined: 23 Jan 2013 11:14
Fullt nafn: Árni Ragnar

Biðlistarnir

Unread post by Árni »

Hefur einhver staðfestar tölur hvað gengur vanarlega langt inn á biðlistana?

Fékk þetta í pósti áðan og vill halda að það sé möguleiki í ár en það er kannski bara óskhyggja...



Af þeim sem sóttu um hreintarfi á svæði 6 varst þú númer 134 en kvótinn var 85 dýr. Þetta þýðir að 48 eru á undan þér í biðröðinni.
Árni Ragnar Steindórsson
1337@internet.is
S: 666-0808
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Biðlistarnir

Unread post by iceboy »

Það verður erfitt að segja til um það í ár, þar sem að það er 700 færri umsóknir en í fyrra þá má gera ráð fyrir að megnið af þeim séu menn sem hefðu ekki tekið dýr ef þeim hefði boðist þau, ví held ég að það gangi ekki langt á biðlistana í ár en svo veit maður það aldrei
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
Dr.Gæsavængur
Posts: 57
Joined: 05 Jun 2012 15:08

Re: Biðlistarnir

Unread post by Dr.Gæsavængur »

Það er ómögulegt að segja í ár vegna þess að núna vissu menn af skotprófinu áður en þeir sóttu um. Núna eru því einsog Árnmar bendir á 700 færri umsóknir en í fyrra. Sem er stór tala. Og svona án þess að staðhæfa neitt eru þetta örugglega 700 manns sem eru ekki að treysta sér í skotpróf. Þetta eru þá væntanlega þær kennitölur sem hinir svokölluðu kennitölusafnarar hafa fengið til að sækja um fyrir sig síðustu ár. (segi svona:)
En, það byrjar fyrst að sigtast út 1. apríl þegar borga þarf staðfestingargjald, sem eru líklega bara örfáir. Svo aftur í sumar, júní-júlí þegar einhverjir klikka á skotprófunum. Í fyrra var talað um hvað ca.30% fall. Það verður örugglega minna í ár þar sem fólk veit betur út á hvað þetta gengur núna og ekkert ætti að koma á óvart.

Í fyrra var félagi minn númer 204 á biðlista en í lok júlí fær hann símhringingu og er boðið að taka hreindýr. Hann sagði já og fékk tvær vikur til standast skotpróf sem hann gerði svo. Þegar við vorum að skjóta dýrið um miðjan september voru enn dýr sem eftir átti að úthluta. Það gerist nú ekki aftur i ár og það mun líklega ekki ganga svo langt á listana heldur. En ég er númer 35 á lista eða svo og ætla að halda í vonina að ég fái símtal í júlí :)

Það er auðvitað fáranlegt að skotprófin fari fram svona seint. Menn sem eru þá næstir á biðlista fá mjög lítinn tíma til undirbúnings eða eru hreinleg búnir að ráðstafa fríi eða peningum í annað og þá gengur hratt upp listann.

Það er klárt mál að þetta fyrirkomulag verður að endurskoða. Mér finnst að menn ættu að standast skotpróf áður en þeir sækja um dýr, eða tækju prófið mikið fyrr. Þá jafnvel áður en kemur til að borga staðfestingargjald. Og ekkert rugl með veður... Það er sól og 10 stiga hiti núna!
Kv. Atli Freyr Runólfsson
atlifreyrrunolfsson@gmail.com
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Biðlistarnir

Unread post by TotiOla »

Dr.Gæsavængur wrote:Það er auðvitað fáranlegt að skotprófin fari fram svona seint. Menn sem eru þá næstir á biðlista fá mjög lítinn tíma til undirbúnings eða eru hreinleg búnir að ráðstafa fríi eða peningum í annað og þá gengur hratt upp listann.
Tek undir þetta. Það mætti færa þetta fram fyrir umsóknir eða amk. staðfestingargjald mín vegna.
Mbk.
Þórarinn Ólason
Árni
Posts: 145
Joined: 23 Jan 2013 11:14
Fullt nafn: Árni Ragnar

Re: Biðlistarnir

Unread post by Árni »

Má ekki taka skotprófið áður en maður borgar staðfestingargjaldið?
Árni Ragnar Steindórsson
1337@internet.is
S: 666-0808
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Biðlistarnir

Unread post by TotiOla »

Árni wrote:Má ekki taka skotprófið áður en maður borgar staðfestingargjaldið?
Ég veit ekki til þess að það hafi verið í boði. Hef t.d. ekki séð neitt skotfélag auglýsa að maður geti komið. Þetta er líklega á einhverju tímabili sem UST gefur út.

En Magnús og þeir hér inni sem koma að stjórnum skotfélaga eða framkvæmd prófa ættu að geta svarað þessu betur.
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Biðlistarnir

Unread post by Veiðimeistarinn »

Jú auðvitað er hægt að taka skotprófið áður en staðfestingagjaldið er greitt.
Það er aðeins tekið fram að skotprófinu skuli lokiðp fyrir 1. júlí, ekkert minnst á hvenar þá byrjar.
Minni á að allir sem tóku skotprófið eftir 1. júlí í fyrra eru með gilt skotpróf núna fyrir næsta tímabil.
Það styður það enn frekar að hægt sé að drífa sig í skotprófin núna strax.
Endilega prufið þið bara að hafa samband við eitthvert skotfélag og prófdómara þar.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Pálmi
Posts: 119
Joined: 13 Mar 2012 19:40

Re: Biðlistarnir

Unread post by Pálmi »

Það má taka skotpróf allt árið og það gildir í 1 ár.
Kv. Pálmi S. Skúlason

When discussing caliber, Dead is dead and it’s not worth arguing about.
User avatar
TotiOla
Posts: 406
Joined: 07 Mar 2012 21:21
Location: 210 Garðabæ

Re: Biðlistarnir

Unread post by TotiOla »

Pálmi wrote:Það má taka skotpróf allt árið og það gildir í 1 ár.
Ok, þetta grunaði mig ekki. Rangur misskilningur :mrgreen: Þá er það er komið á hreint.

Það er s.s. hentugast að reyna að draga þetta með öllum tiltækum ráðum, fram yfir 1. júlí :P
Mbk.
Þórarinn Ólason
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Biðlistarnir

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Veit ekki til þess að UST. hafi nokkuð rætt við skotfélöginn um framkvæmd þessara prófa í ár, og er nokkuð viss um að einhver félög og prófdómarar eru ekkert spennt fyrir að taka þetta að sér aftur eftir allan skítausturinn frá veiðimönnum í fyrra.
Þannig að þið getið alveg verið rólegir í bili.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
jon_m
Posts: 169
Joined: 16 Dec 2012 11:12
Location: Fossárdalur
Contact:

Re: Biðlistarnir

Unread post by jon_m »

Hér má sjá hvernig staðan var á biðlistunum í lok tímabils í fyrra. En eins og fram hefur komið þá er líklegt að færri detti út í ár.

Image

Þess má svo geta að Umhverfisstofnun mun senda skotfélögum prófskífur fyrir þetta veiðitímabil í næstu viku. Menn geta því byrjað að æfa sig strax og líklega fengið að taka próf í lok næstu viku. Ég veit að hjá Skotfélagi Austurlands (http://www.skaust.net/) verður hægt að taka próf um leið og skífurnar berast.

Á aðalfundi félags leiðsögumenna með hreindýraveiðum var svo ákveðið að skora á Umhverfisstofnun að breyta reglum um skotpróf þannig að skotpróf gildi aðeins á því ári sem það er tekið. Það kemur svo í ljós hvernig Umhverfisstofnun bregst við þeim tilmælum.

kveðja
Jón M
kveðja
Jón Magnús Eyþórsson
jonm@fossardalur.is
http://facebook.com/hreindyr
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Biðlistarnir

Unread post by Gisminn »

Þá er hægt að nota hinn möguleikann ef það er ekki skotfélag með próf í nálægð ég bíð allavega rólegur og sé hvort ég detti inn af bið
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
ísmaðurinn
Posts: 101
Joined: 18 Feb 2012 17:10

Re: Biðlistarnir

Unread post by ísmaðurinn »

Af hverju vilja leiðsögumenn leggja kostnað á skyttur að óþörfu?? Ef þú stenst það í ár því að þurfa að standast það að ári liðnu?? Ertu að segja að menn gleymi hvernig á að skjóta á einu ári? Skil ekki alveg hvað þið eruð að fara með þessu, það er ekki eins og það sé ekki nógu dýrt að veiða dýrin!! Veit að þessi 4500kall drepur engann en þetta er samt 4500kr
Lifa til að veiða, veiða til að lifa, það er lífið..

Sako 85 varmint laminated stainless 260rem með Vortex Viper 6-25X50 PST FFP mrad
Bergþór jóh...
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Biðlistarnir

Unread post by Gisminn »

Þetta er fyrst og fremst til að allir sitji við sama borð. Maður sem er öruggur með að þurfa ekki að taka prófið gæti freistast að sleppa öllum æfingum og við þekkjum það að það er ótrúlega stuttur tími sem þarf til að allt geti farið á annan veg heldur en maður vildi.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Biðlistarnir

Unread post by Veiðimeistarinn »

Bergþór, það var alltaf hugsunin hjá UST og ráuneytinu að veiðimenn þyrftu að taka skotprófið á hverju ári.
Þetta með að skotprófið gildi hjá sumum í tvö ár er vegna galla á útfærslu skotprófsins og þar kemur að því sem Þorsteinn segir og við leiðsögumenn erum sammála, nefninlega að eitt gangi yfir alla og allir sitji við sama borð í þessum efnum.
Erum við ekki alltaf að tala um að jafnræði ríki á sem flestum sviðum.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Biðlistarnir

Unread post by karlguðna »

BIÐLISTARNIR LENGJAST . http://www.ust.is/einstaklingar/frettir ... idretting/
þarna bætast nokkrir við í fimmskiptareglunni :x
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Biðlistarnir

Unread post by Gisminn »

En eiga þeir nokkuð að fá að vera á skiptaregluni því þeir fengu dýr áður en kom að 5 skiptaregluni. ég er á regluni afþví að ég fæ ekki dýr 5 skipti í röð en ekki af því að það hentaði ekki eitthvert árið.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Biðlistarnir

Unread post by karlguðna »

Ég er ekki viss en ég held að það sé sanngjarnt að menn géti hætt við því það er margt sem fer ekki eins og maður ætlaði , þetta róar mig svolítið því ég er ekki alveg klár á því hvort ég hreinlega géti leift mér dýr þetta árið, það á reyndar eftir að koma í ljós og þá er gott að vita að maður þurfi ekki að bíða í fimm ár í viðbót við þau þrjú sem eru komin nú þegar.
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
jon_m
Posts: 169
Joined: 16 Dec 2012 11:12
Location: Fossárdalur
Contact:

Re: Biðlistarnir

Unread post by jon_m »

Ég held að hér sé aðeins um að ræða þá sem fengu úthlutað dýri af biðlista í fyrra. Þ.e. þú mátt ekki sleppa því að taka leyfið ef þú ert dreginn út í útdrættinum, en þú mátt sleppa því ef þú færð úthlutað af biðlista, segjum t.d. næst síðasta daginn.

kveðja
JM
kveðja
Jón Magnús Eyþórsson
jonm@fossardalur.is
http://facebook.com/hreindyr
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Biðlistarnir

Unread post by Gisminn »

Þá lítur dæmið betur út og er ekki ósanngjarnt
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Post Reply