Page 1 of 1

Gikkir

Posted: 28 Feb 2013 15:53
by Árni
Veit einhver hvort einhver verslun hérna á landi gæti átt timney gikki á lager og hvað þeir eru að kosta?

Já eða mögulega jewell...

Re: Gikkir

Posted: 28 Feb 2013 16:18
by Stebbi Sniper
Hringdu í Hlað eða Finna

Hlað: 567-5333
Finni: 696-1324

Ég veit að Finni átti allavega Timney gikk fyrir nokkrum vikum síðan og svo er þetta líklega til í Hlað líka.. Veit ekki með Jewel, en þeir eru svolítið mikið dýrari en Timney.

Re: Gikkir

Posted: 28 Feb 2013 17:26
by Stebbi Sniper
HV Jewel gikkur kostar 60 þúsund +

BR gikkurinn er slatta ódýrari!

Timney kannski 30 hugsanlega innan við það.

Re: Gikkir

Posted: 28 Feb 2013 21:55
by Gunnar Óli
sælir.

ég fékk mér Timney gikk fyrir nokkru og kostaði hann 27.000 kr

en langar að láta fylgja að ég lenti í því að hann brotnaði (vonandi mánudags-eintak) og hafði ég samband við söluaðila en fékk þau svör að lítið væri hægt að gera annað en að "reyna" að laga þetta. hafði ég þá samband við framleiðanda og komst þá að því að ævi-ábyrgð er á Timney gikkum og sendu þeir mér varahluti mér að kostnaðarlausu.

þannig að ég get klárlega mælt með Timney (þó ekki söluaðilanum :evil: )

Re: Gikkir

Posted: 01 Mar 2013 12:35
by Árni
já hlaðverjar eiga þá ekki til nefninlega... var eiginlega að velta fyrir mér hvort einhver annar söluaðili væri

Re: Gikkir

Posted: 01 Mar 2013 12:48
by Stebbi Sniper
Ertu búinn að spyrja Finna?

Re: Gikkir

Posted: 01 Mar 2013 14:47
by Árni
Já hann á ekki heldur, ég pantaði mér bara einn af amazon á $140 með sendingarkostnaði.