Page 1 of 1
Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 01 Mar 2013 15:45
by Gísli Snæ
Jæja, það tók ekki langan tíma. Eftir að hafa ákveðið skyndilega í upphafi vikunnar að mig langaði til að uppfæra sjónaukann á Tikkunni þá skellti ég inn auglýsingu þar sem ég auglýsti hinn frábæra Vortex Viper PST til sölu - bara til að athuga hvort að áhugi væri fyrir honum.
Það var mikill áhugi, og fengu færri en vildur. T.d. var kaupandinn að ganga út um dyrnar hjá mér þegar að sá síðasti hringdi og var sár svekktur að hafa misst af Vortexnum.
En þegar að hann var farinn var næsta verkefni að kaupa nýtt gler og eftir smá umhugsun varð niðurstaðan Nightforce NXS 5,5-22x56 með Zero Stop og High Speed Turrets. Honum var smellt á í dag og þetta er niðurstaðan. Ég er sáttur

Afsakið - myndin tekin á farsíma.
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 01 Mar 2013 17:40
by skepnan
Til lukku með nýja gripinn
Kveðja Keli
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 01 Mar 2013 18:09
by Gísli Snæ
Verst að ég er að fara á sjóinn á eftir og kem ekki heim fyrr en í apríl
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 02 Mar 2013 11:09
by Veiðimeistarinn
Gísli það er gaman að sjá að þó þú eyðir kannski miklum tíma og fé í riffilinn þinn, þá er eldhúsið samt ekki látið sitja á hakanum, það er líka toppgræjað......

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 02 Mar 2013 14:50
by Gísli Snæ
Toppgræjað

Mig vantar ísskáp - frystiskáp, annan ofninn og háf. Verð að fara að eyða minna í byssur.
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 02 Mar 2013 16:14
by konnari
Gísli ! Í hvaða caliberi er aftur riffillinn þinn ?
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 02 Mar 2013 16:21
by karlguðna
iss eldhúsið má bíða !! en byssan er must ,

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 02 Mar 2013 17:32
by atlimann
Djöfull er þetta fallegt verkfæri í allastaði... riffill og gler
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 02 Mar 2013 18:09
by Gísli Snæ
260 Rem Ingvar
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 02 Mar 2013 18:31
by Magnus
Mjög flottur riffill.
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 03 Mar 2013 16:25
by Stebbi Sniper
Þetta tónar allt ákaflega vel saman... Fallegur riffill með flottan sjónauka, í úrvals caliberi... Þetta getur ekki annað en virkað!!!
Það er mjög gaman að sjá hvað þú ert búinn að leggja mikinn metnað í þennan riffil Gísli!
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 03 Mar 2013 19:54
by Gísli Snæ
Takk Stefán. Þarf nú ekkert að segja ykkur hvernig þessi della er

. Maður fær þetta alveg á heilann og hættir ekkert fyrr en maður verður sáttur. Og þegar maður er orðinn sáttur, þá fer maður strax að hugsa um hvað maður getur betrum bætt. Klikkun

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 04 Mar 2013 09:41
by konnari
Gísli Snæ wrote:Takk Stefán. Þarf nú ekkert að segja ykkur hvernig þessi della er

. Maður fær þetta alveg á heilann og hættir ekkert fyrr en maður verður sáttur. Og þegar maður er orðinn sáttur, þá fer maður strax að hugsa um hvað maður getur betrum bætt. Klikkun

Láttu við þekkja það.....þetta er ótrúlegt

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 04 Mar 2013 12:37
by TotiOla
Gísli Snæ wrote:Maður fær þetta alveg á heilann og hættir ekkert fyrr en maður verður sáttur. Og þegar maður er orðinn sáttur, þá fer maður strax að hugsa um hvað maður getur betrum bætt. Klikkun

Maður getur svo sannarlega tekið undir þetta
En virkilega flottur riffill, eins og ég hef sagt áður. Alveg til fyrirmyndar og er að mörgu leiti fyrirmynd þess sem mig langar að gera við Tikkuna mína

Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 04 Mar 2013 15:11
by Gísli Snæ
Bara að brjóta sparibaukinn Tóti og skella sér upp í Hlað og kíkja á nýtt skefti. Þú þarft ekki meira - þinn er það flottur nú þegar.
Virtist vera mikið úrval af GRS þegar ég fór og verslaði sjónaukann, svört, rauð, blá.
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 04 Mar 2013 15:30
by Spíri
Einkar flott tikka hjá þér Gísli ein spurning, hvaða krómhringur er á milli hlaupsins og lássins? og annað pantaðiru botnplötuna og magasínið frá vinum okkar hjá tikkaperformance??
Re: Nýr sjónauki kominn á Tikkuna
Posted: 04 Mar 2013 17:05
by Gísli Snæ
Heyrðu Þórður - þetta er nýtt recoil lug. Arnfinnur setti það á þegar hann beddaði riffilinn. Og já botnplatan og magasínið var pantað frá
www.tikkaperformance.com