Valdir rétt í tvífæti - Atlasinn kemur til með að standa sig. Keyptir þú hann frá
www.riflesonly.com?
Ef þú ert ekki að koma með hann sjálfur í farangri frá USA þá er 30.000 kr. ekki raunhæft verð. Geri ráð fyrir að þú hafir keypt þennan með Quick relese festingunum og þá kostar hann einn og sér 280 USD. Með innflutningsgjöldum og sköttum verður þetta líklega nær 50.000 kr. Sem er ansi dýrt. En eins og Ómar segir þá virðist Harris ekki vera til og ég mun ekki kaupa Caldwell.
Síðan varðandi spurningarnar þínar um muzzelbrake.
1. - Er þetta 30-40 þús. kr. virði fyrir einstakling sem hefur gaman af skotfimi og veiðum (um 1000 skot á ári og 3-4 veiðitúrar með riffil)?
Já það er nú spurninging. Mitt svar er já, þeir sem verða við hliðina á þér þegar þú skýtur segja nei, konan segir nei, og hinir dellukarlarnir segja já. Ég finn mun á rifflinum mínum. Munurinn er reyndar minna eftir því sem riffilinn hefur þyngst en það er munur. Auðveldara að finna skotmarkið aftur og þú getur skotið allan daginn án þess að verað sár í öxlinni.
2. - Er eina vitið að láta setja gengjur á hlaupið og kaupa þannig, eða er óhætt og jafnvel sniðuguara að kaupa "Clamp On"?
Það er óhætt að kaupa Clamp on. Mitt hefur ekki hreifst. Mjög ánægður með það og myndi mæla með því EF þú ert tilbúinn að bíða aðeins - það tók töluverðan tíma að koma frá
www.roedale.com - en það gæti hafa verði tilfallandi. Ástæðan fyrir Clamp On hjá mér voru m.a. þær að ég var ekki tilbúinn að leggja í þann kostnað að setja gengjur á verksmiðjuhlaupið ef ég myndi fá mér nýtt hlaup og síðan fannst mér Roedale bremsan flott og hún fékk ansi góð meðmæli - sjá t.d. hér þar sem er m.a. sagt " Of all the clamp-on units we have used so far this would have to be deemed the highest quality so far." -
http://www.snipercentral.com/clampmb.phtml
Ef þú ákveður að láta snitta hlaupið held ég að það væri best fyrir þig að láta viðkomandi byssusmið bara smíða bremsuna.
Að lokum get ég sagt að þeir sem hafa séð bremsuna hjá mér hafa allir verið sammála um að smíðavinnan á henni er fyrsta flokkst (þar með taldir Arnfinnur og Hjalli í Hlað).
3. - Hvað kostar ca. að láta renna gengjur á hlaup og jafnvel láta bedda og skipta um recoil lug í leiðinni? (Djöfull hljómar þetta rosalega vel! )
Nú veit ég ekki hvernig vinnan við mína byssu skiptist niður þegar ég lét gera þetta, en þetta er ekki mjög dýrt - Finni var amk mjög sanngjarn. En ætlar þú að láta bedda verksmiðjuskeftið eða ertu að skipta því út líka?