75,x55 Sviss

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

75,x55 Sviss

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Á einhver Sierra hleðslubók og er til í fletta upp þessu cal og ath hvort þar sé hleðsla fyrir 165gr Gameking HPBT og VV púður í þetta .cal eða eh. annað púðu,r það gefur manni þá allavega grunn til að vinna með í Quickload.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: 75,x55 Sviss

Unread post by konnari »

Sæll félagi !

Ég er búinn að fletta í Sierra bókinni og það gefur ekki upp neina hleðslu með þessa kúlu og VV puðri, bara IMR :( En í VV bókinni er gefin upp hleðsla fyrir 167gr. scenar....sem má kannski hafa til hliðsjónar....

N-140min = 42.9 og max = 45.7
N-150min = 40.9 og max = 47.4
N-150min = 42.9 og max = 47.5

Sierra bókin gefur upp accuracy load = IMR 4064 43.9gr. Og hunting load = IMR 4064 45.8gr.
Sierra notar IMR 3031; 4895; 4064; 4320; 4350 og 4831 fyrir þessa kúlu.
Kv.
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
GBF
Posts: 31
Joined: 25 Apr 2012 19:57

Re: 75,x55 Sviss

Unread post by GBF »

Hversvegna telurðu þig þurfa grunn til að vinna með í QL ?
Georg B. Friðriksson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: 75,x55 Sviss

Unread post by gylfisig »

Ég ætlaði einmitt að spyrja þess sama.


En annars segir 5. útgáfa af Sierra manualnum að max við umrædda kúlu sé 45,8 grs af IMR 4064
með 4350 er max51,0 grs.
Með 4320 er max 46,6 grs.
Með 4831 er max 53,0 grs

Hornady 3ja útgáfa er með nánast sömu tölur.
Ekkert getið um VV púður, hvorki í Hornady eða Sierra.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: 75,x55 Sviss

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Takk fyrir upplýsingarnar þetta kemur mér á stað, ég er nú bara ekki betur gefinn eða færari en svo í quickload að ef ég er að finna hleðslu þar þá hef ég sett inn sambærilega milda uppgefna hleðslu frá púður eða kúlu framleiðanda og séð þrýsting og hraða, hef síðan skipt út púður tegund og/eða kúlu þar til ég fæ svipaðar niðurstöður í þrýsting og hraða. Þreifa mig svo áfram með hleðslur þar til ég er sáttur með ákomuna.
Annars þyrfti maður að fá einhvern færan í Quickload til að skóla mann til í þessu! hvernig eru mennað bera sig að þegar startað er frá grunni???
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Post Reply