Page 1 of 1

Smurning í háls

Posted: 16 Mar 2013 17:45
by P17-3006
Sælar skyttur, mig langar að forvitnast hvað eða ef menn nota einhverja smurningu að innanverðum hálsinum eftir að búið er að þrífa hylkin. Ég hef verið að notast við þetta sprey sem maður fær í hlað til að nota á hylkin til að size'a þau. Er eitthvað annað sem virkar betur og jafnar?

Kv. Kristófer

Re: Smurning í háls

Posted: 16 Mar 2013 18:05
by gylfisig
Grafít, hentar ágætlega í hálsana.
Hefur m.a. fengist í Fossberg.

Re: Smurning í háls

Posted: 16 Mar 2013 20:41
by P17-3006
Grafít, Fossberg skoða það og hendi svo spurningu inn seinna hvernig er best að bera sig að.

Takk fyrir.
Kv. Kristófer

Re: Smurning í háls

Posted: 16 Mar 2013 20:52
by Gisminn
já ég nota grafít keypt í veiðihorninu

Re: Smurning í háls

Posted: 16 Mar 2013 20:58
by gylfisig
Notaðu bara eyrnapinna, til að dýfa í grafítið. Strýkur hálsinn svo að innan. Þarft afar lítið af efninu. Er búinn að eiga kannski 50 grömm í mörg ár.

Re: Smurning í háls

Posted: 17 Mar 2013 02:57
by marin
Sæll Gylfi.
Ertu að setja grafítið inn í hálsinn áður en þú mótar hylkin, hvort sem þú notar fullmótun eða hálsmótun, og ef þú notar grafitina áður, hreinsar þú þá alla feiti áður en þú setur kúluna í.

Spyr sá sem ekki veit, hef aðeins verið að hlaða og það hefur gengið fínt en maður vill alltaf læra meira.

Re: Smurning í háls

Posted: 17 Mar 2013 10:18
by gylfisig
Sæll Árni.
Ég nota afar sjaldan feiti, eða spray til að smyrja hylkin, vegna þess að í flestum tilfellum þrengi ég bara hálsana. En auðvitað þarf stundum að fullþrengja og þá þarf að smyrja. Ég strýk alltaf hálsana að innan, áður en ég set hylkið upp í diann. Nú kannast ábyggilega einhverjir við það, að þegar búið er að pressa hylkið upp í dæjann, að erfitt getur verið að koma stönginni á pressunni til baka. Þetta er vegna þess að kúlan (expander ball) sem er á pinna dæjans er að fara til baka, innan í hálsinum. Getur verið ansi stíft að koma stönginni til baka, en það vandamál er úr sögunni, ef þú strýkur hálsinn létt með bursta eða einhverju álíka, sem dýft hefur verið í grafít. Þessi stífleiki getur verið mjög slæmur, því hylkin geta hreinlega tognað við að koma stöng pressunnar til baka.
Sem sagt, byrja á að strjuka hylkin að innan með grafít, áður en pressað er.

Re: Smurning í háls

Posted: 17 Mar 2013 12:22
by Kristmundur
Eg hef notað grafít í mörg ár og það sem eg geri er að eg fekk mér högl no8 og setti í lítið box (undan kúlum) setti svo ca hálfa teskeið af grafít saman við hristi svo vel saman við höglin,
eg dýfi svo bara hálsinum í höglin og er þá búin að smyrja bæði utan og innan,þetta dugar alveg ótrúlega lengi,eina sem er að högl no8 eru í stærri kantinum maður þarf að fylgjast með að þau festist ekki í hálsinum,best væri að vera með högl no12.