Page 1 of 1

Buxnaskálmar.

Posted: 17 Mar 2013 21:51
by Spíri
Þar sem að plássið í skápnum mínum er af skornum skamti (og fer minnkandi) brá ég á það ráð að klippa skálmar af götóttum gallabuxum og bregða yfir rifflana til þess að þeir yrðu ekki fyrir rispum þegar að maður tekur þá út. Reyndar bjó ég einmitt til rest undir afturskeptið úr gallabuxnaskálm en þá hugmynd gaukaði öðlingurinn Gylfi Sig, Húsvíkingur að mér og er ég með grjón í skálminni :lol: og virkar það vel.

Re: Buxnaskálmar.

Posted: 17 Mar 2013 22:16
by Gisminn
Ég er með sand í buxnaskálm :-)

Re: Buxnaskálmar.

Posted: 17 Mar 2013 22:26
by gylfisig
Ég er bara með fæturna í mínum :D

Re: Buxnaskálmar.

Posted: 17 Mar 2013 22:34
by Gisminn
Hehehe er hann með afturfætur :-)

Re: Buxnaskálmar.

Posted: 17 Mar 2013 23:13
by skepnan
Ég er einmitt með svona "rest" úr gallabuxum en ég fyllti þær með ösku enda ófá tonnin sem ég hef aðgang að hérna :lol: :D
Reyndar mótast hún ótrúlega vel þar sem hún er svo fínkornótt.

Kveðja Keli

Re: Buxnaskálmar.

Posted: 18 Mar 2013 07:01
by Spíri
Keli, þetta er klárlega góð bissness hugmynd markaðssetja fyrir Westan :D
"rest for rifles, with Pure Icelandic volcanic ash. :lol:

Re: Buxnaskálmar.

Posted: 18 Mar 2013 21:06
by skepnan
Já segðu Þórður, ég gæti grætt alveg "böns off monní" :lol: :lol: :lol:

Kveðja Keli

Re: Buxnaskálmar.

Posted: 19 Mar 2013 16:56
by konnari
Spíri wrote:Þar sem að plássið í skápnum mínum er af skornum skammti (og fer minnkandi) brá ég á það ráð að klippa skálmar af götóttum gallabuxum og bregða yfir rifflana til þess að þeir yrðu ekki fyrir rispum þegar að maður tekur þá út.
Mikið kannast ég við þetta nú þegar þröngt er orðið í skápurinn ! Rak fallega Sakoinn minn í hilluna þegar ég tók hann út úr skápnum um daginn og fékk þessa fínu dæld í skeftið :x

Nú er ég búinn að setja fyllt tappa á hornið á hilluna sem er inn í skápnum :D

Re: Buxnaskálmar.

Posted: 19 Mar 2013 18:00
by Gisminn
Kanski ekki alveg tengt en þó tengt ef þeir sem eru að spá í byssuskápum fyrir rifflana sína þá skulu þeir passa að þeir séu nógu djúpir ég rispaði kíkinn minn með núningi í mínum fyrsta skáp