Page 1 of 1

Ramsarsáttmálinn.

Posted: 18 Mar 2013 21:58
by Spíri
Hvað segja menn um þennan Ramsarsáttmála, er hann til bóta eða ekki? Í mínu nærumhverfi er friðland frá Skeljabrekku í Andakíl og upp að Hvítárvöllum og er þar Hvanneyri inní. Nú er það þannig að samkvæmt sáttmálanum er algerlega bannað að stunda skotveiðar á landi því er undir þessu skilgreinda svæði og gildir þá líka að ekki má stunda veiðar á ref eða minnk. Er þetta þá enn eitt friðlandið fyrir refinn? En það er óumdeilt að gæsin finnur fyrir öryggi allavega í kring um Hvanneyri þar sem hún á viðkomu í þúsundavís bæði á vorin og haustin.

Re: Ramsarsáttmálinn.

Posted: 18 Mar 2013 22:04
by maggragg
Það er nú reyndar svo að það er ákvörðun Íslendinga að fuglar séu friðaðir á ramsarsvæðum. Það er ekki sjálfgefið að veiðar séu bannaðar á svæðum sem skilgreind eru eftir Ramsarsáttmálanum, en þegar Íslenskir ráðamenn komast með puttana í þetta þá er alltaf þrengsta skilgreining valin. Ég kynnti mér akkurat þetta fyrir ekki svo löngu og held að ég fari með rétt mál.