6mm284

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

6mm284

Unread post by Spíri »

Ekki vill svo til að einhver hér lumi á góðri hleðslu fyrir 6mm284 fyrir 100grs hornady INTERLOCK kúlu. Þigg einnig með þökkum hleðslur fyrir þetta cal. Hef verið að nota eina ríkishleðslu í minn riffil en það er nosler bst 70 grs og langar að prufa einhverjar nýjar kúlur í hann.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: 6mm284

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég mundi nú fara varlega í að skjóta 100 gr. kúlum úr þessum riffli.
Ég veit dæmi þess að reynt var að skjóta svona þungum kúlum úr svona riffli, það átti að massa hreindýraveiðarnar en eftir nokkur skot var hann orðinn svo fullur af kopar sem ekki var hægt að ná úr honum að það þurfti að skrúfa af honum hlaupip og leggja það í sýru til að hreinsa það.
Ég held að tvistið í þeim riffli hafi verið 1:14 eða 1:16.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Garpur
Posts: 88
Joined: 26 Mar 2012 17:50
Location: Skagafjörður

Re: 6mm284

Unread post by Garpur »

Sæll, ég tek undir með meistarnum, þú verður að skoða hvaða twist þú ert með.
Ég hef prófað 95 grs í minn en það var ekkert spes.

kv
Kv. Garðar Páll Jónsson
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: 6mm284

Unread post by Spíri »

Já þakka ykkur fyrir þetta herramenn, held að ég haldi mig bara við nosler 70 grs hún er að gera það gott hjá mér 4090fps og gatneglir :)
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: 6mm284

Unread post by konnari »

14 twist í 6mm hlaupi stabiliserar max í kringum 70gr. kúlur ! Svo hægt twist mun aldrei höndla 100gr. kúlu.

Þórður ! þú verður að kanna twistið hjá þér áður en þú slærð þessum möguleika út af borðinu :D
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: 6mm284

Unread post by gylfisig »

Ég þekki litið til 6-284.
Veit þó að amk 10 twist verður að vera, til að skjóta 100 grs kúlu úr 6 mm.
Margir 243 rifflar eru vandræðagripir með 100 grs kúlum. Lýsir sér einkum í yfirþrýstingi þó svo ekki sé verið að hlaða heitt skv. manual.
Gallinn er sá að sumir taka út hleðslu fyrir tiltekna 100 grs kúlu í bókinni, en hlaða svo allt aðra gerð af kúlu, þó hún sé sömu þyngdar. Nægir þar að nefna Norma Oryx 100 grs. Hún er ekki oddmjó og viðnámsflötur hennar er nánast enda á milli. Þessa kúlu hef ég þurft að hlaða talsvert undir upp gefnum stöðlum í bók.
Buínn að sjá allmörg dæmi um yfirþrýsting af verstu gerð með þessari kúlu, og reyndar fleiri gerðum líka.
Þetta var kannski aðeins út fyrir efnið, en ég er viss um að fleiri hafi orðið varir við þetta, einkum með tilliti til þess að ásókn í hreindýr hefur vaxið mikið síðustu ár. Ég mæli þá með því að menn noti annað kal en 243. þar sem það hylki er varla að ráða við þessa kúlu.

Ég myndi nú ekkert vera að leita að nýjum hleðslum ef góð er til staðar með 70 grs kúlunni :D
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
johann
Posts: 95
Joined: 18 Jul 2012 08:48

Re: 6mm284

Unread post by johann »

Tek undir þetta hjá Gylfa, t.d. nota ég 37gr af N550 undir Oryx 100gr í 243 en 41gr af sama púðri á Sierra Gameking 100gr. Með tvist rate þarf að skoða kúluformið, lengri kúlur þurfa meiri snúning en styttri.
-----
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: 6mm284

Unread post by Gisminn »

Þarna bættiru aðeins í vitneskjuna mína Jóhann en er samasem merki milli hraða og snúnings eða ræður twistið alfarið för þar?
Á ég þá við að ef ég herði á kúlu herði ég þá líka á snúningnum ?
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
GBF
Posts: 31
Joined: 25 Apr 2012 19:57

Re: 6mm284

Unread post by GBF »

Með auknum hraða herðist á snúningnum miðað við tíma þó sami snúningur sé á kúlunni miðað við vegalengd. Þessvegna er hægt að stabilisera kúlu sem annars sættir sig ekki við tvist hlaupsins, með auknum hraða.
Tvist per se er ekki útilokandi þáttur í stabiliseringu á kúlum :)
Last edited by GBF on 22 Mar 2013 08:52, edited 1 time in total.
Georg B. Friðriksson
johann
Posts: 95
Joined: 18 Jul 2012 08:48

Re: 6mm284

Unread post by johann »

Það er til módel (the Miller Twist Rule) sem reiknar úr gyróskópískan stöðuleikastuðul (úff). Svo er spurningin að reyna að halda stuðlinum á ákveðnum stað. Um þetta má lesa t.d. hjá Berger: http://www.bergerbullets.com/litz/TwistRuleAlt.php

Þetta módel er einföldun, því boat tail form og hverslags ogive prófíll skiptir líka máli - og það eru til reiknivélar fyrir svoleiðis líka, ef menn eiga nákvæm mál af kúlunum sínum.
-----
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
Post Reply