Sælir spjallverjar,
Eins og sumir ykkar vita þá hef ég verið að dunda mér við að setja saman smá upplýsingakerfi um hreindýraveiðar (http://www.gkr2004.com/hreindyr). Mér fannst vanta betri aðgang að meiri upplýsingum um hreindýraveiðar en bara fjölda felldra dýra. Með hjálp góðra manna þá eru núna komnar inn rétt um 200 færslur með mismikið af upplýsingum reyndar. Vonin er að með komandi veiðitímabili þá verði menn duglegir að skrá inn upplýsingar og að það verði þá meiri fróðleik hægt að sækja í bankann.
Allaveganna þá fór ég að hugsa: Af hverju að einskorða þetta við hreindýr, væri sniðugt að hafa einskonar almenna veiðidagbók fyrir skotveiðar?
Hvað halda menn, væri það eitthvað sniðugt?
Það sem er í kollinum á mér eins og er:
- Skrá tegund dýrs sem fellt var
- Hægt að skilgreina hvaða upplýsingar væri hægt að skrá miðað við tegund dýrs
- Hvar var dýrið fellt (heppur, jörð, GPS hnit), fer eftir hvort GPS sé til staðar eða ekki
- Tengja mynd/myndir við færsluna
- Hægt að merkja færslur sem "einka" eða "opnar" (ef menn vilja ekki sýna hvar veiðisvæðin þeirra eru)
- Númer veiðikorts væri notað til að tengja færsluna við veiðimann
- Mönnum væri frjálst hvort þeir gefi upp nafn tengt veiðikortinu eða ekki
- Hægt að hafa snjallsíma "App" þar sem hægt væri að skrá upplýsingarnar á staðnum og upphala síðan seinna inn í upplýsingabankann
- Og svo framvegis.....
Væri gaman að heyra í ykkur hvort það sé eitthvað vit í þessu og ef svo hvað menn vildu hafa í þessu kerfi og hverskonar aðgang að upplýsingum?
Með kveðju,
Grænásguttinn....
Hugleiðingar um veiðidagbók
- gkristjansson
- Skytta
- Posts: 250
- Joined: 02 May 2012 14:21
- Location: Ungverjaland
Hugleiðingar um veiðidagbók
Kveðja,
Guðfinnur Kristjánsson
Guðfinnur Kristjánsson