Sæll Guðmann, þetta er fallegur riffill hjá þér og til hamingju með hann, styttirði hlaupið á honum eða er þetta nýtt hlaup?
Ég sé að þú ert með FIOCCHI M 320 Match, eru þau að koma vel út í dananum?
Ég er með einn svona sem ég er ekki búinn að finna réttu skotin í, næ honum ekki ásættanlega þéttum enn og er að íhuga að stytta hlaupið, hef reyndar ekki prófað svona hröð skot eins og þú ert með(1050 fet/sek).
Er hann að skjóta undir 1/2" utandyra á 50m?
Kv.
Þorsteinn.
Þ.B.B. wrote:Sæll Guðmann, þetta er fallegur riffill hjá þér og til hamingju með hann, styttirði hlaupið á honum eða er þetta nýtt hlaup?
Ég sé að þú ert með FIOCCHI M 320 Match, eru þau að koma vel út í dananum?
Ég er með einn svona sem ég er ekki búinn að finna réttu skotin í, næ honum ekki ásættanlega þéttum enn og er að íhuga að stytta hlaupið, hef reyndar ekki prófað svona hröð skot eins og þú ert með(1050 fet/sek).
Er hann að skjóta undir 1/2" utandyra á 50m?
Kv.
Þorsteinn.
Sæll Þorsteinn, ég stytti hlaupið um 14 cm. Þessi skot eru að koma virkilega vel út í honum og ég efast ekki um að hann nái undir 0.5" með þeim á 50 m þegar ég verð búinn að skjóta svolítið úr honum...besta grúppa sem ég skaut í gær var rétt rúmlega 0,5" (honum líkaði einnig mjög vel við þau fyrir breytingu) Var líka með Fiocchi Maxac Soft en þau komu ekki jafn vel út.
Ætla að ná mér í Eley Tenex og sjá hvernig honum líkar við þau.
jamm,hlaup og lás er sprautað með "stainless steel coating" þrælsterkt og lítið mál að laga til ef eitthvað fellur á það.
Set kannski inn fleiri myndir af breytingunni í kvöld.
Takk fyrir það Hrafn
Ég hef alveg ótrúlega gaman að því að föndra við svona dót, næsta verkefni verður að
öllum líkindum nýtt "youth" skepti á CZ Slavia loftriffil.
Ég á líka einn slíkan sem eg hef breytt. Get sett myndir af honum líka ef þú hefur áhuga. En honum líkar best við RWS rifle match og lapua x-act. Var einmitt i 3 sæti i benchrest 22lr um helgina i breyttu riffla flokkinum og hinir voru með 2xanschultz / 1xfeinwerkbau og 1xsauer 3000 þannig þessir 28 þús kr rifflar eru alveg nokkuð náhhvæmirmiðavið verð, en eina sem mér fynst að þeim er að loka boltanum að maður þarf að spenna gorm in sjálfur í stað að ýta handfanginu bara niður eins og á venjulegum riffli
En auðvitað væri maður Meira til i eitthvað að hinum keppnis rifflinum sem maður var að keppa við
Ja ég er búinn að taka þær nokkrar i gegn. Get gert nokkra þræði ef það væri einhver áhugi fyrir því, bara svona uppá gamanið. En þú færð RWS i vesturröst. Er langt síðan þú fékkst þinn? Veistu hvort það eru fleiri til i hlað?
eruði að kaupa einhver match hlaup á þessa .22lr BR riffla eða er bara notað factory hlaupið á þá?
Hef verið að spá soldið í að fara í þetta að undanförnu og var að gæla við að panta mér Shilen eða Volquartsen hlaup á Ruger 77/22. En ég viðurkenni að ég bara þekki ekki hversu mikið það myndi gera þó ég gruni nú að það skipti miklu.
Ég fékk minn í fyrra,veit ekki hvort það sé eitthvað eftir hjá þeim...gæti alveg hugsað mér að eignast 1-2 í viðbót (ýmsar hugmyndir í kollinum).
Væri gaman að sjá fleiri útfærslur.
Bc3 wrote:Hvar fékstu þennan undirsinkaða bolta a fyrstu myndinni sem festist i hlaupið? Eina sem ég hef fundið er bara skinna sem nær 1mm út fyrir boltahausin.
Renndi þennan pillar úr ál öxli,festingin á hlaupinu sest svo á hann að innanverðu.
Límt í með epoxy lími.