Page 1 of 1
schultz & larsen otterup M70
Posted: 31 Mar 2013 23:58
by Bc3
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 01 Apr 2013 09:29
by 257wby
Flott vinna á þessum, er hann ekki að skjóta eins og draumur?
kv.Guðmann
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 01 Apr 2013 10:06
by Bc3
Hann var hugsaður sem benchrest 22lr en ég hef ekki prufað hann svona full tilbúin svona beddaðan en áður skaut hann mjög vel og vonandi betur núna

ég prufaði áður líka að sleppa festinguni sem er á hlaupinu og festi hann á 2 stöðum a lásnum eins og er a flestum rifflum en þá skaut hann mjög illa þannig ég festi hann aftur ihlaupið og beddaði að festinguni.
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 01 Apr 2013 12:14
by 257wby
Mér var einmitt bent á að sleppa hlaupfestingunni hjá mér, en þar sem hann var að skjóta mjög vel fyrir breytingu þá ákvað ég að halda henni og pillar beddaði hann í staðinn.
Kv.
Guðmann
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 01 Apr 2013 18:46
by Dui Sigurdsson
Helvíti flottur
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 01 Apr 2013 21:47
by Þ.B.B.
Þetta er aldeilis glæsilegt hjá þér, þessi er svo flottur að hann þarf ekki einusinni að skjóta.
En að öllu gamni slepptu þá vona ég svo sannarlega að hann skjóti í stíl við lúkkið.
Ég ætla að fá minn til að skjóta ásættanlega áður en ég geng lengra, nú er ég búinn að létta gikkinn og gera gikkdragið styllanlegt, koma á hann góðum sjónauka og styllanlegri skeptisplötu(buttplate), pússaði líka skeptið upp og bar á það skeptisolíu, tók svo hlaupið í heilmikla hreinsun og ruddi úr því miklum skít(þarf líklega að taka aðra slíka umferð svo það sé fullreynt)en annars er það næsta í stöðunni að stytta hlaupið og krína.
Þ.B.B.
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 01 Apr 2013 21:56
by Veiðimeistarinn
Alltaf virkilega gaman að fá svona frásagnir og myndir, hjartans þaðkkir og til hamingju með verkfærið.
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 01 Apr 2013 23:00
by Bc3
Takk fyrir þetta strákar. En ja hann skaut ágætlega áður en ég fór út i þessar frammkvæmdir og vonandi að hann skýtur betur núna svona beddaður
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 02 Apr 2013 15:20
by Halldór Nik
Glæsilegt hjá þér Alli, hyggstu bláma hann aftur eða halda honum berum?
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 02 Apr 2013 18:37
by Bc3
Takk fyrir það . Heyrðu ég ætla halda honum svona með að setja bónhúð á hlaupið og allt sem er polerað i hverri viku hehe . Hann á hvort sem er aldrei eftir að sjá rigningu haha en ég hef prufað að glæra yfir svona pólerað svart járn en það flagnar bara engin viðlóðun. Veist þú um eitthvað undraefni?
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 02 Apr 2013 19:38
by Dui Sigurdsson
Bóbó hefur sett glært duracoat yfir og bakað það.
Re: schultz & larsen otterup M70
Posted: 02 Apr 2013 20:05
by Halldór Nik
Mér líst helv vel á Teflon bón og jafnvel Teflon Olíu, þægilegra að koma henni á
Ég var með Otterup mauser 6.5x55 sem ég póleraði og hafði berann í nokkur ár, ég lét málminn gráta áður en ég fullvann hann og var hann vættur vel í Fin-Lube á eftir.
Eins og þú eflaust veist þá þarf að passa upp á húðfituna, hún getur verið brimsölt
