Page 1 of 1
Twist Rate Stability Calculator
Posted: 03 Apr 2013 23:07
by Daði Sako
Sælir
Hvað er mikið að marka þessa reiknivél eða eru menn að nota eithvað annað ?
http://www.bergerbullets.com/litz/TwistRuleAlt.php
Re: Twist Rate Stability Calculator
Posted: 03 Apr 2013 23:12
by Gisminn
Prófaði að slá minni kúlu og hraða upp og fékk 8,99 en hvað á ég að gera með þessa upplýsingar ?
Re: Twist Rate Stability Calculator
Posted: 03 Apr 2013 23:28
by Daði Sako
Á þetta ekki að segja til um stöðuleika á kúlum á flugi, eftir hraða og twist
Hversu hratt þær þurfa að fljúga til að fara beint?
Kv Sigurður Daði Friðriksson
kóp
Re: Twist Rate Stability Calculator
Posted: 04 Apr 2013 08:34
by Stebbi Sniper
Sæll Þorsteinn
Ertu viss um að þú hafir sett allar upplýsingar rétt inn? 8.99 er frekar hátt finst mér.
Daði
Þetta segir þér alveg örugglega hvaða kúlum er ekki hægt að skjót. T.d. er 100 grs Scenar kúlan hjá mér med 1.4 í stability factor en klessist öll í sama gat á hundrað metrum. Kúlur undir 1 er líklega ekki hægt að skjóta!
Re: Twist Rate Stability Calculator
Posted: 04 Apr 2013 09:27
by Daði Sako
Jú það sem ég varað spá, við félagarnir vorum að sétja inn allar kúlurnar sem við erum að hlaða og þá komu 6,5 mm kúlurnar mjög illa út engin yfir 1.4.
Erum að spá í hvaða kúlur ganga í jallonen 6,5 284
uppl. sem voru fyrir í töfluni voru bara eithvað bull
Ég nota 155 scenar í 300 win og hún fær1.78 og hann fer mjög vel með hana
Kv Sigurður Daði
Re: Twist Rate Stability Calculator
Posted: 04 Apr 2013 09:33
by E.Har
Þetta á að gefa hugmund um hvaða kúla eða ölluheldur kúlulengd hentar þínu tvisti.
Þetta eru engin geymvísindi en gefur hugmynd. Síðan er ekkert alrétt eða rangt í þessu.
Hjálpar mönnum að fá hugmynd um hvaða kúlu hólkurinn á að skjóta en svo er það bara alltaf götin sem segja endanlega til um hvað hentar í þínum riffli.

Re: Twist Rate Stability Calculator
Posted: 04 Apr 2013 10:57
by Gisminn
Haha þakka þér Stefán ég gaf upp lengd mælda með hólk
En prófaði aftur með rétta lemgd og þá segir það 1,78
Forsendur
6,5mm
8 twist
hraði 2850 ca hún er nálægt því
hiti 5 á celsíus
ekkert í neðsta dálk
Og Sigurður Daði mér var fljótlega á mínum ferli sagt að ef ég vildi nákvæmni með 120 nosler yrði ég að hafa hana hæga í mínu twisti og það passaði eftir því sem ég hægði á henni varð hún nákvæmari.
Re: Twist Rate Stability Calculator
Posted: 04 Apr 2013 13:59
by karlguðna
Takk fyrir "linkinn" Daði , gaman að þessu , nú hefur maður meira að grúska og spekúlera
Re: Twist Rate Stability Calculator
Posted: 04 Apr 2013 23:44
by Stebbi Sniper
Sæll Daði
allt yfir 1,5 þýðir líka að riffillinn stabili þær mjög vel. Undir 1 og þá er mjög ólíklegt að riffillinn þinn skjóti þeim vel.
Milli 1 og 1,4 þýðir að það getur alveg virkað eftir því sem við nálgumst 1 þá minka líkurnar.