Page 1 of 1
Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 05 Apr 2013 18:48
by Stefán Einar
Sælir
Það voru 21% sem borguðu ekki staðfestingagjaldið fyrir hreindýraleyfin skv. frétt á mbl.is:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... utad_a_ny/
Hafa menn einhverja tilfinningu fyrir því hvort þetta hlutfall hafi eitthvað breyst frá fyrri árum?
Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 05 Apr 2013 19:19
by Stebbi Sniper
Þetta þýðir að af 3600 umsóknum eru líklega um 800 mans sem hefðu ekki borgað staðfestingar gjaldið (svokallaðar sýndarumsóknir), þannig að raunverulega eru þetta 2800 mans sem hafa áhuga á því að veiða hreindýr... skemmtileg tölfræði!!!
Annars er bara til ein tegund af tölfræði... það er tölfræði sem lýgur...

Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 05 Apr 2013 19:21
by Kristmundur
Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 05 Apr 2013 20:03
by Stefán Einar
Þetta eru áhugaverðar tölur.
Það er nákvæmlega sama prósentan sem borgar ekki staðfestingagjaldið milli ára.
Tölurnar í fyrra voru: 209 greiddu ekki staðfestingagjaldið af 1009 úthlutuðum leyfum - sem gera 21%.
Maður hefði frekar átt von á lægri tölu í ár - þar sem skotprófið hefði átt að ýta undir hlutfallslega fleiri "alvöru" umsóknir.
Nú er spurning hvort kennitölusöfnun hafi verið marktækt vandamál undanfarin ár.
Hvað segja spekingar um kennitölusöfnun í ljósi þessara talna.
Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 05 Apr 2013 20:32
by Gummig
Sælir. Ég er einn af þeim sem borgaði ekki staðfestingargjaldið þrátt fyrir að hafa sótt um í 4 sinn, og loksins fengi dýr. En í mínu tilfelli eru það alvarleg veikindi í fjölskyldunni sem réðu úrslitum. Kannski er það svo hjá flerirum?
Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 05 Apr 2013 20:39
by Gisminn
Þakka þér útskýringuna og vonandi batnar fjölskyldumeðliminum og vegni þér vel.
Það eru sem betur fer flestir alvöru en auðvita eins og í öllu eru það þessir fáu sem rýra heildina trausti.
Og Stefán ég sendi þér enka skilaboð

Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 06 Apr 2013 00:19
by karlguðna
steini það eru margir verri en þú
Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 10 Apr 2013 16:36
by Veiðimeistarinn
Þá er búið að gefa út stöðuna á biðlistunum vegna hreindýraveiðanna í haust, eftir að staðfestingagjöldin voru greidd nú í byrjun apríl.
http://www.ust.is/einstaklingar/veidi/hreindyr/
Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 10 Apr 2013 17:24
by Dr.Gæsavængur
Ég er allavega sáttur! Var númer 33 á biðlista á svæði 7 og hef núna fengið endurúthlutað kusu

Takk fyrir mig !
Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 10 Apr 2013 20:59
by Björninn
borgaði mitt staðfestingargjald

Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Posted: 10 Apr 2013 21:17
by Gisminn
jamm og ég fékk kúnna mína þannig að ég mun vonandi hitta Sigurð í eigin persónu

Þannig að nú verður nóg að gera í prófstandi.
Hreindýrapróf, Veiðipróf hjá tíkini 27 apríl og svo 22 0g 23 júní
