Page 1 of 1

Mauser M 96

Posted: 07 Apr 2013 08:47
by Kristmundur
Gamli Mauser eftir breytingar.

Re: Mauser M 96

Posted: 07 Apr 2013 09:17
by E.Har
Myndar Maiser.
Mátt gjarnan senda meiri upplisingar um hvað var gert. :D
For svipaða leið fyrir 20 Árum og notaði hann lengi.
Sé alltaf pínu eftir honum, kannski rúllar hann til mín aftur :mrgreen:

Re: Mauser M 96

Posted: 07 Apr 2013 10:28
by Aflabrestur
Flottur!!!!
Endilega koma með fleiri myndir og meira um hvernig og hvað var gert og af hverjum.
Alltaf fundist þessi lás manmetinn að ósekju vegna stóra bróðir, á sjálfur einn svona breyttan bara ekki nærri svona flottan sennilega einn af svo kölluðum Grænlandsrifflum? svo eru amk. 2 aðrir í nánasta félagahópnum annar smíðaður af Jóa Vil.
Annaras er ég alltaf svo lítið tvöfaldur í roðinu þegar kemur að breyttum herrifflum finnst þetta skemmtileg verkefni að fást við og gera vel, en safnarinn í mér þolir ekki þegar það eru teknir heilir flottir og jafnvel óalgengir gripir í svona dund, en ef það er búið að skemma þá á annað borð td. með því að bora fyrir sjónauka og þh. er um að gera að klára dæmið og gera þetta jafn virkilega flott og þessi riffill er.

Re: Mauser M 96

Posted: 07 Apr 2013 16:48
by Kristmundur
Þessi Mauser er model 63 og var eins og sá á myndinni,eg límdi neðan á hann og tálgaði hann til á ýmsa vegu,smíðaði búnaðinn til að hækka kambinn,setti á hann stillinlegan púða,Timney gikkur,
var beddaður þegar eg fékk hann,svo fara á hann gata sigti til að skjóta með honum á 300m.
Hann setur 5 skot í hálf tommu eða betur á 100m með hleðslu sem honum líkar

Re: Mauser M 96

Posted: 10 Apr 2013 19:59
by petrolhead
Virkilega flottur riffill, gaman að sjá svona vel heppnað verk.
Ef ég mætti forvitnast, gastu notað hlaupið sem var á honum eða settirðu nýtt?
Tók líka eftir að þú segir "svo fara á hann gata sigti" nú spyr sá er ekki veit, geturðu verið með gata sigti þó þú sért kominn með festnigar fyrir kíkir ?
Er neflinlega sjálfur með einn svipaðan sem ég ætlaði að fara að dunda við næst þegar ég væri á þurru landi og langar að vera með báða möguleika, gata sigti og kíkir, ef það er hægt.

MBK
Gæi

Re: Mauser M 96

Posted: 10 Apr 2013 22:40
by Kristmundur
Það er hægt að fá festingu fyrir gatasigti sem koma á weaver (Picatinni) basa (fæst hjá brownells) eg verð með Redfield sigti sem passar fyrir mauser,þarf að vísu að taka basan af.Það er orginal hlaup á honum mjög nákvæmnt

Re: Mauser M 96

Posted: 21 Apr 2013 07:02
by petrolhead
Takk fyrir þetta Kristmundur.
Ætli maður þurfi ekki að skipta um fremra sigtið ef maður er með aftara sigti sem fer ofan á basa ?

kv
Gæi

Re: Mauser M 96

Posted: 22 Apr 2013 10:07
by Kristmundur
Þú þarft hærri basa fyrir framsigti en það þarf að mæla út,eg fekk mer redfield framsigti og þurfti að taka
hringinn með gamla sigtinu af,en það er kveikt á (þarf að hita og slá fram af)
Kv.