Page 1 of 1

223 ?

Posted: 10 Apr 2013 15:48
by Konni Gylfa
sælir félagar. nú vantar mig uppl um álitlegar hleðslur í 223 og þá helst fyrir létta vargkúlu. veit ekki hvað er til af kúlum í þetta en 40gr v-max er nr 1. og ef nosler eða sierra eru með svona léttar varmint kúlur þá er það bara flott.
riffillinn er remington 700 vssf

kv Konni Gylfa 8494968

Re: 223 ?

Posted: 10 Apr 2013 17:51
by konnari
Ég hef aldrei prufað 40 gr. V-Max en hins vegar er 50 gr. V-Max rosa nákvæm ! Þegar ég átti Sako 75 Varmint var ég að hlaða 23.5 gr. af N-133 og það var ótrúlega nákvæmt.

Re: 223 ?

Posted: 10 Apr 2013 19:24
by Konni Gylfa
takk fyrir það konnari (frændi?)

en annars hélt ég að 223 væri til í miklum mæli á íslandi og væri mikið notað??? er mér að skjátlast?
amk ekki margir með uppl um þetta.

Re: 223 ?

Posted: 10 Apr 2013 20:52
by Veiðimeistarinn
Ég held að 222 sé mun algengara kaliber en 223 hér á Íslandi!
Ég hef séð mikið af rifflum í kaliber 222 hérna á klakanum, en sárasjaldan 223 nema helst rekist á einn og einn í byssubúðum.

Re: 223 ?

Posted: 10 Apr 2013 21:02
by maggragg
Ég er algjör .223 maður, enda tengist það bakgrunninum og átti bróðir minn einnig .223 riffill sem ég kunni vel að meta og myndi sennilega fá mér .223 ef ég væri að leita af kalíberi á þessum skala. En hvort að .223 sé algengt hér heima þori ég ekki að tjá mig um...

Re: 223 ?

Posted: 10 Apr 2013 21:23
by Gisminn
En Magnús hefur þú skotið gæs með 223? og ef svo var hún óskemd ?
Mig langar mikið til að vita þetta en ekki enn heyrt né hitt á einhvern með reynslu af gæsveiðum með 223

Re: 223 ?

Posted: 10 Apr 2013 21:26
by maggragg
Nei, skaut bara pappa, ananas og melónu og ávextirnir gjörsamlega tættust þannig að úr varð safi með aldinkjöti... En mjög gaman var það :)

Re: 223 ?

Posted: 10 Apr 2013 21:52
by gylfisig
Ég var með Remington Varmint special í þessu kaliberi, einhv. tíma upp úr 1980 og skaut mikið af gæs með honum. Man ekki eftir neinum meiriháttar skemmdum á gæsunum, en ég man ekki heldur, hvaða kúlu ég notaði. Átti lika nýjan Brno í 222 Rem. og fannst mikill munur á þessum tveimur kaliberum. 223 Rem mikið sprækari, og ég skaut gæsirnar á talsvert lengri færum.

Re: 223 ?

Posted: 12 Apr 2013 10:51
by Garpur
Sæll, ég hef verið að nota 50grs sierra blizt king í minn 223 og meirihlutinn af þeim refum sem ég næ ár hvert falla fyrir honum einnig eitthvað af hrossum og nautum, það er meira tilfallandi :) .
Ég prófaði að hlaða 45grs Hornady í vetur, fullt hylki af N133 og það kom vel út, ég á eftir að vinna aðeins betur í þeirri hleðslu en það kemur með betri tíð, bæjarhólinn er að koma undan snjó þannig að aðstaðan til æfinga skánar dag frá degi.
Ég er búin að prófa Hornay kúlurnar í tvo 222. riffla og það kemur einnig vel út.

Ég vil taka það fram að riffilinn hjá mér viðrist fara betur með þegar hlaðið er heitt upp að vissu marki en það er ekki algilt með riffla.

kv