Skotprófin.

Allt sem viðkemur hreindýrum
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Skotprófin.

Unread post by Spíri »

Tók æfingu og komst að þeirri niðurstöðu að .308 er nákvæmur! En þó maður hitti á svona grúppu í dag er ekkert víst að maður hitti á hana aftur á morgunn ;)
Riffill: Tikka t3 308 win, nosler bst 150grs sightron 8-32x56
Attachments
image.jpg
image.jpg (53.69 KiB) Viewed 6654 times
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Skotprófin.

Unread post by Stebbi Sniper »

Þetta er vel gert... 49 stig, ef ég fer rétt með þá náði enginn 50 í fyrra en einhverjir voru með 49. Þetta próf er auðvitað aðeins formsatriði fyrir mjög marga!

En sumir eru mjög stressaðir á meðan á því stendur.
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
johann
Posts: 95
Joined: 18 Jul 2012 08:48

Re: Skotprófin.

Unread post by johann »

Var að skoða þessa skífu í gær og tók eftir því að hringirnir eru ekki allir miðjaðir á sama stað, þannig er 1 mjórri vinstra megin er hægra megin, 2 er feitari vinstra en hægra o.sv.frv.
-----
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Skotprófin.

Unread post by Veiðimeistarinn »

Já því verður ekki á móti mælt að 308 er fanta nákvæmur á 100 metrum, og reyndar á öllum vegalengdum ef menn hafa fjarlægðarmæli og reiknistokk í fórum sínum :lol:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Skotprófin.

Unread post by Spíri »

Góður Sigurður Veiðimeistari, mig langar til að taka prófið með .308 en ég er ekki að fara með hann á hreindýr, vill hafa eitthvað flatara 8-) en þar sem að ég er dómari fyrir skotprófin þá langar mig til að deila smá sögu með ykkur. Þannig var að sá sem skoraði hæst hjá Skotfélagi Vesturlands í fyrra skaut með gömlum Mauser Otterupp 6,5x55 sem hann keypti í hlad fyrir nokkrum árum. Sjónaukinn sem hann var með hefði getað verið keyptur í Rúmfatalagernum og svo þegar hann mætti í prófið hafði viðkomandi ekki skotið úr byssunni í einhver tvö ár! En hann skoraði að mig minnir 46 stig og fór svo og felldi sýna kú með öruggum hætti ;) þannig að það eru ekki alltaf græjurnar sem gera gæfumuninn, til að mynda féll einn sem var að skjóta með Sako TRG :mrgreen:
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
Björn R.
Posts: 105
Joined: 10 Feb 2013 19:10
Fullt nafn: Björn Jensson
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Skotprófin.

Unread post by Björn R. »

Sælir Spíri og Sigurður
Hvernig er það, máttu taka prófið á 308 og veiða dýrið með öðrum riffli. Einhvernveginn stóð ég í þeirri meiningu að það þyrfti að brúka sama verkfærið í prófi og á veiðum. Er það kannski misskilningur hjá mér?
Annars þarf ég ekki að hafa áhyggjur í ár, númer 117 á biðlista á svæði 3

Með kveðju
Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Skotprófin.

Unread post by Spíri »

Nei það er skýrt tekið fram að maður verður að nota sama verkfæri í prófið og veiðina. Ætli ég noti ekki 6mm284 hann er ekki eins nákvæmur og 308 en samt mjög góður.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Garpur
Posts: 88
Joined: 26 Mar 2012 17:50
Location: Skagafjörður

Re: Skotprófin.

Unread post by Garpur »

Sælir, varstu búin að finna hleðslu og kúlu sem þú getur notað í hreindýrið í 6-284?
Kv. Garðar Páll Jónsson
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Skotprófin.

Unread post by Spíri »

Nei ég var ekki kominn með hleðslu fyrir 100grs í 6-284 en ég á 6mm sierra sbt 100 grs kúlur sem gætu hentað er bara ekki búinn að gefa mér tíma í að finna réttu hleðsluna. Annars held ég að hreindýrinu sé nokk sama hvort það fái 70grs nosler í hausinn eða 100 grs sierra 8-) en rétt skal vera rétt og þá verður maður að nota 100 grs :? Annars fér ég bara með 6,5x55 ef það verður eitthvað vesen að finna hleðslu.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
jon_m
Posts: 169
Joined: 16 Dec 2012 11:12
Location: Fossárdalur
Contact:

Re: Skotprófin.

Unread post by jon_m »

Eru menn nokkuð að gleyma tilganginum með skotprófunum ? Þ.e. að menn geti hitt hreindýr á 150 m færi með þeim riffli sem þeir ætla að nota. Það er ekki spurt um stigaskor eða stærð groupunnar á prófinu.

Persónulega finns mér að það mætti sleppa öllum þessum hringjum á skífunni.
Attachments
Skotskífa
Skotskífa
image.jpg (30.49 KiB) Viewed 6201 times
kveðja
Jón Magnús Eyþórsson
jonm@fossardalur.is
http://facebook.com/hreindyr
Sveinbjörn V
Posts: 109
Joined: 13 Dec 2012 20:55

Re: Skotprófin.

Unread post by Sveinbjörn V »

Ég verð nú að segja það að mér finnst ekkert verra að hafa stigagjöfina til hliðsjónar.
Ég hika td. ekki við að segja mönnum að þeir ættu að æfa sig meira ef þeir skora undir 25 stigum á prófinu á 100 metrum. Menn taka bara vel í það og segja að það sé líklega rétt.
Sveinbjörn V. Jóhannsson
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Skotprófin.

Unread post by Gisminn »

prófaði í fyrsta skipti að skjóta á svona skífu og tímamældi sjálfan mig mjög óformlega en hélt ég væri að renna út á tíma og flýtti mér ógurlega enda ekkert meistara skor sem kom. :roll:
Verkfæri = sími með skeiðklukku,Sako 6,5x55 sightron 8-32x56 ofaná honum og Harris tvífótur.
Aðstæður 6 m/s ekki alveg beint á móti skotið liggjandi á gömlum skeiðvelli með stóra grasbrekku með reyndar mikklum snjó sem kúlustoppara
Aðferð.Riffli stilt upp og mark skoðað með bolta opinn. Svo var klukkan sett í gang og ég tók 5 skot uppúr kassa og setti í magasínið og svo í riffilinn,Fann skotmarkið og lokaði boltanum og skaut endurtók hratt og vel í 4 skipti enda þegar ég stoppaði skeiðklukkuna með riffilinn opinn var tíminn 2,27 mínútur og skorið 38 stig 9. 2x8, 7 og svo 6.Kúlurnar voru snnafærandi í kringum hringin nema ein sem var á 6 til hægri og grunar mig skrattakoll að hafa kipt í æsingnum.
En niðurstaða að prófið hefði verið staðið en ég get gert betur með að vanda mig því að ég hef alveg greinilega góðan tíma eftir sem hægt er að nota betur og hafa fallegra skor ;)
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Skotprófin.

Unread post by Spíri »

Tók prófið í gær og það var ein kúla með smá leiðindi, annars bara nokk sáttur! riffill Rem 700, Night Force NXS 5,5-22x56 sjónauki 6mm284 sierra 100grs kúla, hleðsla ekki gefin upp. 8-)
Attachments
skífa.jpg
skífa.jpg (146.88 KiB) Viewed 5740 times
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Skotprófin.

Unread post by Stebbi Sniper »

Flottur Þórður... Hvort er þetta 46 eða 47 stig hjá þér?

Ég var með 46 stig á þessu prófi núna, en ég tók það í skotmóti sem var haldið samtímis við mjög erfiðar aðstæður, vegna tíbrár. Að vísu var blanka logn en tíbráin var svo mikil að ég hitti ekki nema einu af þrem í skífuna á 200 metrunum, hin voru 15 cm undir. Mjög mikil tíbrá blekkir augað og voru flestir ef ekki allir í sömu vandræðum og ég í þessu móti.

Mín skífa er talsvert ljótari en þín, þó skorið sé svipað og markmiðið er að sjálfsögðu að setja 50 stig í framtíðinni.

Ég hef aldrei áður skotið í svona mikilli tíbrá og þetta fór í reynslubankann, nú veit ég hvað skal gera þegar það er svona mikil tíbrá.
2013.jpg
2013.jpg (31.31 KiB) Viewed 5682 times
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Skotprófin.

Unread post by Spíri »

Já Stefán við erum nánast á pari, en þetta voru 47 stig ogmunaði sárgrætilega litlu að að ég hefði náð fleiri tíum. Tíbráin var líka aðeins að stríða mér en ég get samt ekki kvartað, er samt drullusvekktur yfir klaufaskapnum með að klúðra einum flyer í áttuna.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
Post Reply