Page 1 of 1
Winchester Model 70 6mmbr Norma fyrir og eftir breytingar.
Posted: 18 Apr 2013 22:23
by reynirh
Þessi lofar góðu.
Re: Winhester Model 70 6mmbr Norma fyrir og eftir breytingar
Posted: 18 Apr 2013 22:30
by Gísli Snæ
Líst vel á þennan. Hverju ertu að skjóta úr honum, Scenar 105 gr?
Re: Winchester Model 70 6mmbr Norma fyrir og eftir breytinga
Posted: 18 Apr 2013 22:34
by reynirh
Var að skjóta 69gr Berger og 75gr Hornady vmax í fyrra með ágætis árangri,
Bara búin að fireforma núna eftir að ég fékk hann aftur.
Stefnan er að skjóta þeim áfram og 80gr berger og 68gr berger.
Twistið í þessum er 1 í 12 svo að hann ræður ekki við mikið þingra en 80 gr.
Re: Winchester Model 70 6mmbr Norma fyrir og eftir breytinga
Posted: 19 Apr 2013 19:31
by KarlJ
Sæll Reynir og til lukku með gripinn. Er hann eins skota og var lásinn tekin í gegn ef ég mætti spyrja?
er nefnilega með 6mm br í vinnslu

. Er hann standard neck eða þarftu að hefla hálsinn á hylkinu.
Re: Winchester Model 70 6mmbr Norma fyrir og eftir breytinga
Posted: 19 Apr 2013 19:38
by reynirh
KarlJ wrote:Sæll Reynir og til lukku með gripinn. Er hann eins skota og var lásinn tekin í gegn ef ég mætti spyrja?
er nefnilega með 6mm br í vinnslu

. Er hann standard neck eða þarftu að hefla hálsinn á hylkinu.
Sæll sjálfur KarlJ,
Lásinn var réttur og slífaður og gerður einskota, Nýr gikkur frá Rifle Basix, Nýtt hlaup Lotar Walter í 6mmbr norma tight neck 12 twist, og svo nýtt skefti með 3 tommu breiðu forskefti.
Neck er .267 og já það þarf að neck turna patronurnar.
Re: Winchester Model 70 6mmbr Norma fyrir og eftir breytinga
Posted: 15 May 2013 14:03
by reynirh
Fór og prufaði nýtt rest Bald Eagle 1006 og var vægast sagt ánægður.
Útskrifaði hleðsluna N135, 30,6gr, cci br-4 primer, 80gr berger, 17 frá rillum.
Held að ég geri ekki betur með 400 gramma gikk, svo að næsta fjárfesting verður Jewell 1,5 unsu gikkur.
Re: Winchester Model 70 6mmbr Norma fyrir og eftir breytinga
Posted: 15 May 2013 16:37
by gylfisig
Þetta sýnir glögglega hvað 6 BR er skemmtilegt hylki.
Nákvæmt, lítið bakslag, og enginn hamagangur. Þarf ekki að eyða miklum tíma í hylkjavinnu. Með Lapua hylkjunum er hægt að pikka upp hleðslur sem eru að gera sig hjá öðrum, og þær virka í þinn riffil lika.
Frábært hylki.
Re: Winchester Model 70 6mmbr Norma fyrir og eftir breytinga
Posted: 15 May 2013 18:00
by 257wby
Hef alltaf verið svolítið veikur fyrir þessu hylki. Eina sem ég hef heyrt er að það hafi/séu vandamál með "feed"úr magasíni í chamber, það er kannski bara órökstuddur orðrómur?
kv.
Guðmann
Re: Winchester Model 70 6mmbr Norma fyrir og eftir breytinga
Posted: 15 May 2013 20:53
by hgudjons
flott græja hjá þér.
Hvernig er þetta cal að standa sig í hliðarvindi? svipað og .243?
kv
Hörður