Page 1 of 1
					
				Óska eftir riffilsjónauka.  Kominn með !!!!!!!
				Posted: 19 Apr 2013 20:17
				by hpþ
				Er spenntastur fyrir Meopta ZD 3-12x50 og háum turnum / Zeiss Conquest 4,5-14x50 eða 6,5-20x50 og
þá einnig með háum turnum. Annað kemur til greina. Skilyrði að sjónaukinn líti vel út.
			 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 19 Apr 2013 23:18
				by Gisminn
				Sæll vinur varð bara að benda á þennan 
http://www.eshop.is/skyttan/VaraInfo.as ... nCatID=317
Ekki dýr miðað við gæðin en ég veit ekki hvaða útlits smekk þú hefur mér finnst þeir fallegir 

 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 20 Apr 2013 09:00
				by Spíri
				Sæll ég á Meopta artimes 3-12x50. er það eitthvað sem þíu hefur áhuga á? 
doddi76@simnet.is
			 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 20 Apr 2013 15:31
				by hpþ
				Sælir strákar, Sightron segirðu, þyrfti að fá að kíkja í gegnum einn, slíkur kæmi til greina.. hef bara heyrt vel látið af þeim. Artemis er ekki það sem ég er að leita að hins vegar, veit að þeir eru góðir þar sem ég á einn fyrir 

  En sá sem ég er að leita að þarf að vera með markturnum, mega samt vera lokaðir. 

 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 20 Apr 2013 18:15
				by Gisminn
				Hvar á landinu ert þú Halldór ? Og ég hef átt 6-24x50 og svo núna 8-32x56 Sightron og er bara rífandi ánægður með þá báða og mér finnst þeir hjá Skyttan bara frábærir og traustir.
			 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 20 Apr 2013 20:26
				by hpþ
				Ég er í Mosfellsbæ Þorsteinn, sé að þú ert á Blönduósi, eða hvað? 
Það væri kannski rétt að reyna að nálgast einn slíkan til að kíkja í gegnum. Eins og ég sagði áður þá hef ég bara heyrt gott af þeim. 
Hvernig er glerið þegar farið er að slá á birtu, er hann að tapa mikilli skerpu á 24x stækkun?
			 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 20 Apr 2013 20:42
				by Spíri
				Ég á Sightron 8-32x56 er hann mjög góður en ég á líka Night Force 8-32x56 og er hann betri en Sightroninn, en hann er líka helmingi dýrari en sennilega ekki helmingi betri 

  Svo hafa menn verið með mikla standpínu  

  yfir Vortx sjónaukunum sem hlað er að selja, ég hef ekki skoðað svoleiðis grip en eftirspurnin virðist vera langt á undan framboðinu og eru þeir uppseldir i hlað og að mér skilst biðlistar í kanalandinu.
 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 20 Apr 2013 20:59
				by Gisminn
				Sæll það er ótrúlegt hvað hann er bjartur þegar birtu fer að bregða.Eina örugga dæmið sem ég persónulega get borið saman en það var Leupold 4-10 stækkun en ég bara man ekki hver linsan var stór en hann var á 8x og það var komið kvöldhúm en í ca 200 metrum frá voru tré sem hann sá ekki lengur. En minn á 8x sá enn gras sinuna við tréin og laufin á þeim en það getur verið að hann hafi haft minna ljósop en svo á vinur minn annan polda með 14x max stækkun en við bárum þá saman á 8x stækkun og komumst að því að 8x stækkun er ekki það sama og 8x stækkun. Minn stækkaði meira og að mínu mati skýrar en allavega vorum við sammála með að minn væri með betri stækkun þá poldin væri góður.
Og jú ég er á Blönduósi en það eru nokkrir nálægt þér á spjallinu sem geta örugglega leift þér að horfa í gegn nú ef ekki þá verð ég á Akranesi á laugardæginn næsta með tíkina í veiðiprófi og gæti gripið græjuna með  

 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 20 Apr 2013 22:14
				by skepnan
				Sæll Steini, LSP-inn er með 45mm linsu 
 
 
En minn er 4,5-14x50 og það munar um þessa auka 6mm sem að þinn hefur fram yfir 
 
 
En þetta er nokkuð sem að ég hef tekið eftir að stækkun er ekki það sama og stækkun á milli merkja.
Ég hef horft í gegnum mismunandi sjónauka með jafn stóru safngleri fremst en á sömu stækkun er stækkunin ekki sú sama 

  Þetta hefur oft vafist fyrir mér og virðist ekki vera staðlað eins merkilegt og það nú er, ætli þetta hafi eithvað með yarda gagnvart metrum að gera?
En að aðalatriðinu, þá er vel hægt að mæla með Sightron en ég neita samt að hann sé betri en Leupoldinn minn 
 
   
  
    Nei-nei þú verður ekki svikinn af Sightron það er alveg á tæru, ég mæli eindregið með því að þú horfir í gegnum sem flesta og finnur þann sem að hentar þér best og spáir líka í hvaða krossi þér líkar best við. Það er bara gaman að velta þessu fyrir sér og spá og spekúlera 
 
 
Kveðja Keli
 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 22 Apr 2013 09:45
				by hpþ
				Er enn að leita að rétta sjónaukanum.
			 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 22 Apr 2013 15:38
				by karlguðna
				ég gét mælt með þessum , verulega góður en ég hef nú ekki mikla viðmiðun við önnur alvöru merki.
þAð er alveg þess virði að kíkja á hann í búðinni.
http://www.ellingsen.is/verslun/vorur/f ... vara/73324
e.þ. þessi er nú ekkert slor heldur að mér sýnist.
http://www.hlad.is/netverslun/sjonaukar ... d5-5-25x50 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 22 Apr 2013 22:28
				by hpþ
				Já Zeissinn er örugglega góður, þessi nýi Conquest lofar góðu, búinn að kynna mér hann aðeins og skoða í Hlaði. 
Takk fyrir ábendingarnar Karl og þið hinir. 

 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 23 Apr 2013 18:48
				by oliar
				Sæll vinur minn er að selja þennan.......og hann er meira að segja í Mosó 
 
af oliar » 21 Mar 2013 08:44 
Er að auglýsa fyrir vin minn Khales Helia C 3-12x56 með kross no 4.
http://www.kahles.at/eng/products/helia-c/
Sex ára gamall í óaðfinnanlegu ástandi.
Verðhugmynd er 160.000 krónur og allar upplýsingar veitir Arnar í síma 8957563
Ath. Ekki senda svör hér, hringið í manninn !
 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 27 Apr 2013 18:45
				by hpþ
				Enn að leita að rétta sjónaukanum. 

 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.
				Posted: 18 May 2013 00:14
				by hpþ
				Takk fyrir sýndan áhuga, er kominn með sjónauka.
			 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.  Kominn með !!!!!!!
				Posted: 18 May 2013 15:08
				by skepnan
				Sæll Halldór, má maður vera með frekju og forvitnast um hvers konar sjónauka þú fékst þér að lokum?
Kveðja Keli
			 
			
					
				Re: Óska eftir riffilsjónauka.  Kominn með !!!!!!!
				Posted: 18 May 2013 17:12
				by hpþ
				Sæll Þorkell, já þú mátt alveg vera forvitinn, ég komst yfir Zeiss Conquest 4.5-14x50 með markturnum,
eða nákvæmlega það sem ég ætlaði mér. 
